Tæknitól CIA afhjúpuð á Wikileaks

Leyni­þjónusta Banda­ríkjanna getur hlerað alla í gegnum stýri­kerfi snjall­síma, samkvæmt gögnum sem Wikileaks birtir.

Leyni­þjónusta Banda­ríkjanna, CIA, hefur til taks tækni­búnað sem gerir henni mögulegt að fylgjast með fólki, hlera það nálgast upplýsingar þess, í gegnum öll helstu stýri­kerfi snjall­síma og heimilis­tölva. Þá getur stofnunin hlerað fólk í gegnum snjall­sjónvörp sem búa yfir radd­stýringar­kerfi.

Þetta kemur fram í gögnum sem Wikileaks hefur birt, og vitnað er til í umfjöllun allra helstu fjölmiðla heimsins, þar á meðal breska ríkis­útvarpsins BBC.

Á meðal kerfa sem CIA getur hakkað í gegnum, svo til alveg án fyrirvara, eru Windows, Android, iOS frá Apple, OSX and Linux.

Samkvæmt gögnunum hefur CIA náð að þróa leið til að hlera samtöl sem eiga sér stað nærri Samsung snjall­sjónvörpum. M15 leyni­þjónusta Breta er sögð hafa aðstoðað við að koma þeim búnaði upp.

Talsmaður CIA hefur ekki viljað staðfesta það sem fram kemur í gögnunum og yfirvöld hafa ekkert tjáð sig um það.

Búnaðurinn er sagður byggja á marg­víslegum tækni­tólum sem Rússar hafa meðal annars þróað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár