Segir væntanlegt starfsfólk Play „varla að vita kaup og kjör“

Forseti ASÍ hvetur Play til að birta kjara­samninga sem það hefur gert um störf flugliða. Hún segir að undirboð á vinnu­markaði verði ekki liðin. Play telur sig hafa náð allt að 37 prósent kostnaðar­lækkun vegna launa.

Drífa Snædal er forseti ASÍ.
Drífa Snædal er for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Drífa Snædal, forseti Alþýðu­sambands Íslands (ASÍ), hvetur lágfargjalda­flugfélagið Play, sem hyggst hefja starfsemi í nánustu framtíð, til að birta kjara­samning sem það segist hafa gert um störf flugliða sem það ætlar að ráða. Hún segir fólk sem sækir um störf hjá Play varla fá að vita hver kaup og kjör séu. „Þær vísbendingar sem okkur hafa borist hníga í þá átt að greiða á grunnlaun langt undir því sem almennir kjara­samningar segja til um. Ég hvet fyrir­tækið til að birta kjara­samninginn og leggja allt á borðið, ekki aðeins á fólk sem hyggst sækja um störf hjá Play rétt á þessari vitneskju heldur skiptir það okkur öll máli ef verið er að stunda undirboð á vinnu­markaði. Ég ætlast líka til þess að fjár­festar og þeir sem eiga í viðskiptum við fyrir­tækið krefji það um þessar upplýsingar. Það verður ekki liðið að fyrirtæki starfi á íslenskum vinnu­markaði með undir­boðum.“

Þetta kemur fram í reglu­legum föstudagspistli Drífu sem birtur var í morgun.

Kjarninn greindi frá því 7. nóvember síðastliðinn að stjórn­endur Play telji sig hafa náð 27 til 37 pró­sent kostn­að­ar­lækkun á samn­ingum sínum við flug­menn og flug­liða, miðað við þá samn­inga sem WOW air hafði verið með við þær starfs­stétt­ir. Auk þess ætlar flug­fé­lagið að ná betri nýt­ingu á áhöfnum sínum með þeim samn­ingum sem félagið hefur gert, en í þeim felst að það náist 800 til 900 klukku­stunda nýt­ing á hverja áhöfn á ári. Til sam­an­burðar nái Icelandair 550 klukku­stunda nýt­ingu út úr sinum áhöfnum að með­al­tali.

Minna borgað fyrir meiri vinnu

Því liggur fyrir, samkvæmt þeim tölum, að starfs­menn Play munu fá minna borgað en starfs­menn WOW air fengu og munu vinna mun meira en sam­bæri­legir starfs­menn Icelandair gera. Þetta kom fram í fjár­festa­kynn­ingu sem Íslensk verð­bréfa unnu og kynntu fyrir vænt­an­legum fjár­festum í Play í upphafi nóvember­mánaðar. Kynn­ing­in, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, er kirfi­lega merkt trún­að­ar­mál.

Í henni kom fram að stjórn­endur hins nýja flug­fé­lags hafi lagt mikla „vinnu til að lækka alla kostn­að­ar­liði félags­ins umfram þau kjör sem Wow air hafði á sínum tíma.“

Þar sagði enn fremur að þessir samn­ingar hafi þegar náðst við Íslenska flug­stétt­ar­fé­lag­ið, ÍFF, sem var áður stétt­ar­fé­lag flug­manna WOW air. Á kynn­ingu sem for­svars­menn Play héldu í upphafi mánaðar kom fram að flug­fé­lagið hefði þegar gengið til samn­inga við ÍFF um gerð kjara­samn­inga við bæði flug­menn og flug­liða.

Í kynn­ingu Íslenskra verð­bréfa sagði að mikil jákvæðni hefði ríkt beggja megin borðs­ins þegar þessir samn­ingar voru teikn­aðir upp. „Þessir samn­ingar eru sam­bæri­legir við það sem flug­fé­lög eru að gera t.d. í Dublin og á öðrum hag­kvæmum flug­rekstr­ar­stöð­u­m.“

Vandræði með fjármögnun

Síðustu daga hafa fjöl­miðlar greint frá því að illa gangi fyrir stjórn­endur Play að ná í þann 1,7 milljarð króna sem félagið þarf að sækja í hlutafé til að geta hafið rekstur. Viðskipta­hugmyndin á bakvið félagið gengur út á að fá láns­fjármögnun frá breska fjár­festinga­sjóðnum Athene Capital upp á 40 til 80 milljónir evra og safna ofan­greindu hlutafé. Þeir sem leggja til hlutaféð eiga þá að fá helming hlutafjár í Play en stofnendurnir, sem verða lykil­stjórnendur félagsins, eiga að fá hinn helminginn án þess að leggja fram fé.

Morgun­blaðið greindi frá því í morgun að forsvars­menn Play reyni nú að kalla saman hóp fjárfesta í íslenskri ferða­þjónustu í von um að ná saman þeim 1,7 milljarði króna sem vantar til að félagið geti fengið flug­rekstrar­leyfi og hafið starfsemi. Sá fundur eigi að fara fram í dag eða um helgina. Þar sagði einnig að fjár­festar sem Morgun­blaðið hafði rætt við segðu að stofn­endur Play þyrftu að slá af kröfum sínum um að fá 50 prósent í félaginu ef fjár­mögnunin ætti að ganga eftir.

Kjarninn hefur áður greint frá því að áætlanir Play geri ráð fyrir mjög hröðum vexti og að félagið verði um 630 milljón dala virði í lok árs 2022, eða um 78 milljarðar króna. Til saman­burðar er markaðs­virði Icelandair nú rétt undir 40 milljörðum króna. Fjár­festar sem Kjarninn hefur rætt við telja að þessi áform séu helst til of bjartsýn, enda felast í þeim að fjár­festar eigi að geta 12 til 13 faldað fjár­festingu sína á innan við þremur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár