Yfir 80 prósent landsmanna óánægð með bankasöluna – Sjálfstæðismenn ánægðastir

Átta af hverjum tíu landsmenn eru óánægðir með hvernig staðið var að sölu á hlut ríkisins í Íslands­banka í síðasta mánuði og vilja að sett verði upp rann­sóknarnefnd til að rannsaka söluna. Eitt prósent kjósenda Vinstri grænna eru sátt með sölu­ferlið.

Það gustar um ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur um þessar mundir.
Það gustar um rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur um þessar mundir. Mynd: Bára Huld Beck

Rúmlega átta af hverjum tíu lands­mönnum, alls 83 prósent aðspurðra, segjast óánægð með fyrir­komulag á sölu á 22,5 prósent hlut ríkisins í Íslands­banka þann 22. mars síðastliðinn, samkvæmt nýrri könnun Prósents fyrir Frétta­blaðið. Af þessum hópi eru 70 prósent mjög óánægð með hvernig til tókst við söluna. Alls telja 80 prósent að setja eigi upp rann­sóknarnefnd Alþingis til að rannsaka söluna.

Þann 22. mars var ofan­greindur hlutur seldur í lokuðu útboði með tilboðs­fyrir­komulagi og 2,25 milljarða króna afslætti frá markaðs­virði til 207 fjárfesta. Salan hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að litlum fjár­festum, sem keyptu fyrir lágar upphæðir, hafi verið hleypt að í útboðinu, að starfs­menn og eigendur sölu­ráðgjafa hafi keypt og að jafnræðis hafi ekki verið gætt þegar valdir voru þátt­takendur úr hópi skilgreindra fagfjárfesta.

Í könnun Prósents kemur fram að einungis sjö prósent aðspurðra eru ánægð með hvernig til tókst og þar af einungis þrjú prósent mjög ánægð. Athygli vekur að nánast allir hópar samfélagsins virðast jafn óánægðir með söluna á hlut ríkisins í Íslands­banka. Í Frétta­blaðinu í dag segir að það sé nánast enginn marktækur munur er á afstöðu fólks er kemur að kyni, aldri, búsetu, tekjum eða menntun.

Þeir sem kjósa Sjálfstæðis­flokkinn eru þó marktækt ánægðari með söluna en kjósendur annarra flokka. Alls segjast 30 prósent þeirra að þeir séu ánægðir með hana en 44 prósent segjast óánægðir. Til saman­burðar mælist óánægja með söluna að minnsta 78 prósent á meðal kjósenda allra annarra flokka í landinu. Hjá hinum stjórnar­flokkunum, Vinstri grænum og Framsókn, er vart mælanleg ánægja með söluna á hlut ríkisins í Íslands­banka. Einungis eitt prósent kjósenda Vinstri grænna, flokks Katrínar Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra, segjast ánægð með söluna og fimm prósent kjósenda Fram­sóknar, flokks Sigurðar Inga Jóhanns­sonar innviða­ráðherra. Í Frétta­blaðinu kemur fram að enginn stuðnings­maður Samfylkingar, Pírata eða Sósíal­ista sé ánægður með söluna.

Um var að ræða netkönnun Prósents sem var gerð 13. til 19. apríl. Úrtakið var 2.150 manns, 18 ára og eldri og svar­hlutfall var 50,3 prósent.

Formenn stjórnar­flokkanna þriggja komu sér saman um það í byrjun viku að leggja niður Banka­sýslu ríkisins til að bregðast við þeirri miklu óánægju sem verið hefur í samfélaginu með sölu­fyrir­komulagið. Þá fól Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, Ríkis­endurskoðun að rannsaka söluna og sú stofnun á að skila stjórnsýslu­úttekt í júní. Fjármála­eftirlit Seðla­banka Íslands rannsakar auk þess þátt sölu­ráðgjafana fimm í útboðinu, sérstak­lega hvort skilgreining þeirra á hæfi fagfjárfesta standist ekki skoðun og kaup starfs­manna og eigenda sölu­ráðgjafa í útboðinu. Banka­sýsla ríkisins greindi frá því í gær að hún myndi halda eftir sölu­þóknun til ráðgjaf­anna þar til það skýrist hvort þeir hafi gerst brotlegir, en alls eiga allir ráðgjafar að fá um 700 milljónir króna í þóknun fyrir sína aðkomu að útboðinu. Í Morgun­blaðinu í dag er greint frá því að titrings gæti á meðal sölu­ráðgjafa þar sem neikvæð niður­staða í rannsókn á þeim gæti leitt til þess að fyrir­tækin missi starfs­leyfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár