Breskir menn úr fátækum fjölskyldum tvöfalt líklegri til að vera einstæðingar

Ójöfnuður milli breskra karlmanna fer vaxandi, en hann skilar sér einnig í mismun­andi hjúskapar­stöðu þeirra, samkvæmt nýrri breskri rannsókn.

Menn sem fengu uppeldi úr fátækum fjölskyldum eru líklegri til þess að vera einhleypir, samkvæmt könnuninni
Menn sem fengu upp­eldi úr fátækum fjöl­skyldum eru lík­legri til þess að vera ein­hleypir, sam­kvæmt könn­un­inni Mynd: Pexels.com

Mikill munur er á hjúskapar­stöðu breskra karlmanna eftir fjárhag, en samkvæmt nýrri skýrslu enskra samtaka eru miðaldra breskir karlmenn úr fátækari fjöl­skyldum tvöfalt líklegri til að vera einstæðingar en þeir sem koma úr ríkari fjöl­skyldum. The Guardian greinir fyrst frá.

Samtökin, sem heita Institute for Fiscal Studies (IFS), byggðu skýrslu sína á tveimur opinberum hóprannsóknum (Cohort studies) þar sem 17 þúsund einstaklingum sem fæddust í sömu viku, annars vegar árið 1958 og hins vegar árið 1970, var fylgt eftir.

Niður­stöður skýrslunnar sýndu að bil sé á milli hjúskapar­möguleika karlmanna eftir uppeldis­aðstæðum, en bilið hafi einnig farið breikkandi á síðustu árum. Samkvæmt henni var einn af hverjum þremur 42 ára karl­mönnum úr fátækum fjöl­skyldum einstæðingur, saman­borið við einn af hverjum sjö karl­mönnum úr ríkum fjöl­skyldum.

Samkvæmt IFS er umrætt bil ekki einungis afleiðing þess að menn úr fátækum fjöl­skyldum finni sér sjaldnar maka, heldur sé skilnaðar­tíðni þeirra einnig tvöfalt hærri en hjá mönnum úr ríkum fjöl­skyldum.

Ójöfnuður milli kynslóða

Önnur niður­staða IFS var sú að tekju­ójöfnuður karlmanna milli kynslóða hafi farið aukandi, en synir ríkra foreldra eru mun líklegri til að vera ríkir sjálfir nú en fyrir nokkrum árum. Á árinu 2012 hafi tekjur vinnandi 42 ára manna með foreldra í efsta tekju­fimmtungnum verið að meðaltali 88% hærri en þeirra sem áttu fátækari foreldra. Tekju­bilið er nokkuð stærra en árið 2000, en þá höfðu karlmenn með ríka foreldra að jafnaði 47% hærri tekjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár