„Umferðarljósið“ líklegasta niðurstaðan í Þýskalandi

Leiðtogi Jafnaðar­manna­flokksins hefur heitið því að Þjóð­verjar fái nýja ríkis­stjórn fyrir jól. Það gæti orðið langsótt í ljósi sögunnar. Hann vill byrja á að kanna jarð­veginn fyrir stjórn með Græningjum og Frjáls­lyndum demó­krötum.

Olaf Scholz, fjármálaráðherra í fráfarandi ríkisstjórn og leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, mætir á kosningavöku flokksins í gær.
Olaf Scholz, fjár­mála­ráð­herra í frá­far­andi rík­is­stjórn og leið­togi Jafn­að­ar­manna­flokks­ins, mætir á kosn­inga­vöku flokks­ins í gær. Mynd: EPA

Olaf Scholz, leiðtogi Jafnaðar­manna­flokksins sem hlaut flest atkvæði (25,7 prósent) í þing­kosningunum í Þýska­landi í gær, segir líklegast að næsta ríkis­stjórn verði auk flokks hans skipuð Græningjum og Frjáls­lyndum demó­krötum. Kristilegir demó­kratar, flokkur Angelu Merkel, fengu 24,1 prósent atkvæða og hafa líkt og Jafnaðar­menn lýst því yfir að þeir vilji leiða komandi stjórnar­myndunar­viðræður.

Formenn allra flokka sem náðu kjöri eru sagðir ætla að hittast í dag og kanna jarð­veginn fyrir viðræðum. Þótt Jafnaðar­menn og Kristilegir demó­kratar, sem eiga báðir sæti í fráfar­andi ríkis­stjórn, hafi náð mestu fylgi í kosningunum vilja margir meina að sigurvegari þeirra sé flokkur Græningja sem jók fylgi sitt mest allra flokka eða í 15 prósent.

Á fyrsta blaðamanna­fundi Scholz eftir kosningarnar spurði breskur blaða­maður hann hvort hann hygðist senda vöru­bílstjóra til Bretlands­eyja þar sem skortur á þeim hefur orðið til þess að teppa og setja stundum verulega úr skorðum afhendingu vara á borð við matvæli.

„Frjáls för vinnuafls er hluti af Evrópu­sambandinu og við lögðum mikið á okkur til að sannfæra Breta um að ganga ekki úr því,“ var svar Scholz. Hann benti svo á að mögulega mætti rekja skort á vöru­bílstjórum í Bretlandi til of lágra launa. Eftir þetta afgerandi svar bætti hann við að auðvitað væri mikilvægt að halda áfram góðum tengslum milli Þýska­lands og Bretlands.

„Það er skýrt í okkar huga að við ættum að fá umboð til að búa til ríkis­stjórn,“ sagði hann enn fremur á fundinum og bætti við að Græningjar og Frjáls­lyndir demó­kratar hafi aukið fylgi sitt „og þess vegna munum við reyna að mynda stjórn með þessum flokkum“. Sagðist hann vilja að slíkar viðræður hæfust sem fyrst.

Stjórn sem byggði á félags­hyggju, umhverfis­vernd og frjáls­hyggju ætti sér sögu og hefð í Þýska­landi. Slíka stjórn þurfi að mynda eigi að vera hægt að „takast á við áskoranir framtíðar“.

Scholz lofar að Þjóð­verjar fái nýja ríkis­stjórn fyrir jól. Fyrir svo stuttum stjórnar­myndunar­viðræðum er ekki rík hefð í landinu. Árið 2017 tók það til dæmis hálft ár að mynda stjórn.

Annar tveggja formanna flokks Græningja, Robert Habeck, sagði eftir að úrslit kosninganna voru orðin ljós að honum virtist sem Jafnaðar­menn væru „framfara flokkur“ og að vel færi á því að hefja stjórnar­myndunar­viðræður við þá. Til að ná meirihluta á þinginu þyrfti hins vegar þriðja flokkinn og nefndi hann líkt og Scholz Frjáls­lynda demókrata. Þessi mögulega samsteypu stjórn hefur verið kennd við umferðar­ljós enda grænn litur Græningja, rauður einkennis­litur Jafnaðar­manna­flokksins og gulur Frjáls­lyndra demókrata. Habeck ítrekaði svo helstu áherslumál flokksins. „Allar ríkis­stjórnin verða að grípa til aðgerða til að sporna við loftslags­breytingum.“ Þá leggja Græningjar einnig aðal­áherslu á útrýmingu félags­legs misréttis í Þýska­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár