Mynd: EPA

Djúpu sporin hennar Merkel

Heil kyn­slóð hefur alist upp með Angelu Merkel á valda­stóli. Á sextán ára valda­tíma hefur hún feng­ist við risa­vaxin vanda­mál og leyst þau flest en ein krísan stendur eftir og það er einmitt sú sem Merkel-kyn­slóðin hefur mestar áhyggjur af.

Ungt fólk í Þýska­landi hefur alist upp með einn og sama leið­tog­ann við stjórn­völ­inn, Angelu Merkel, sem var kjörin kansl­ari árið 2005, fyrst kvenna. Svo löng valda­tíð í vest­rænum heimi verður að telj­ast óvenju­leg. Enn óvenju­legri er þó ef til vill sú stað­reynd að Merkel verður, eftir sín tæpu sextán ár á valda­stóli, fyrsti leið­togi Þýska­lands eftir síð­ari heims­styrj­öld til að fara frá völdum af fúsum og frjálsum vilja.

Merkel hefur ekki verið óum­deild en hefur markað djúp spor í sögu lands síns, mörg hver til góðs fyrir þjóð­ina og heims­byggð­ina alla. Hún hefur staðið frammi fyrir risa­vöxnum verk­efnum: Fjár­mála­hruni, sögu­legri mót­töku flótta­fólks, brestum í Evr­ópu­sam­band­inu og heims­far­aldri – svo fátt eitt sé nefnt. En einu stærsta verk­efn­inu, að fást við lofts­lags­vána, var hún ef litið er á stóru mynd­ina aðeins rétt byrjuð að snerta á. Það mun því koma í hlut arf­taka hennar að leiða þýsku þjóð­ina út úr því sjálf­skap­ar­víti til fram­tíðar. Og þannig mögu­lega setja for­dæmi fyrir aðra borg­ara þessa heims að fylgja. Það væri í takti við arf­leifð Merkel sem hefur þótt merki­lega fær í því að róa öldur og stilla saman ólíka strengi, þótt sumir hafi vissu­lega slitnað. Ákvarð­anir sem upp úr slíku sam­ráði spruttu hafa hins vegar ekki alltaf verið vin­sælar.

Í eitt fyrsta skiptið sem nýr leið­togi Kristi­legra demókrata í Þýska­landi kom opin­ber­lega fram árið 2001 kom hann mörgum fyrir sjónir sem nokkuð óör­uggur. Kannski fannst fólki vanta hið valds­manns­lega yfir­bragð sem fyrr­ver­andi for­menn höfðu haft. Hinn nýi for­maður virt­ist ekki njóta sín í sterkum kast­ljósum sjón­varps­stöðv­anna. Og ein­hverjum fannst svörin við spurn­ingum blaða­manna heldur lit­laus – jafn­vel leið­in­leg. Þessi mann­eskja verður aldrei kansl­ari, hvísl­uðu ein­hverjir.

Þessi mann­eskja var Angela Merkel sem átti svo um munar eftir að sanna hið gagn­stæða. Nei, hún hafði ekki sama valds­manns­lega yfir­bragð sem ein­kenndi karl­ana. Hún tal­aði rólega, jafn­vel lágt, en var laus við hroka og yfir­læti. Fylgdist vel með. Hlustaði. Með þessa eig­in­leika sína og fleiri að vopni komst hún til valda, varð kansl­ari Þýska­lands og valda­mesti leið­togi Evrópu ef út í það er farið.

Merkel í sextán áramótaávörpum til þjóðar sinnar.
Merkel í sextán ára­móta­á­vörpum til þjóðar sinnar.

En krís­urnar voru einnig mun nær. Stjórn­völd fengu það óþvegið er mann­skæð flóð urðu í Þýska­landi í sumar. Þá var stjórn Merkel gagn­rýnd fyrir að hafa sofnað á verð­inum og einnig bent á að hinar for­dæma­lausu rign­ingar sem þá urðu væru aðeins smjör­þef­ur­inn af því sem koma skal vegna lofts­lags­breyt­inga.

Ungt fólk af Merkel-kyn­slóð­inni varð fyrst til að benda á að frek­ari hörm­ungar af þeim toga gætu ein­kennt næstu ár og ára­tugi. Unga fólkið sem hafði fengið aðra sterka kven­fyr­ir­mynd: Gretu Thunberg.

Þegar Angela Merkel tók við völdum leit heim­ur­inn sann­ar­lega öðru­vísi út en hann gerir í dag. George W. Bush var for­seti Banda­ríkj­anna og Tony Blair for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Margir héldu að sam­heldni Evrópu yrði vart haggað úr þessu. Að frjáls­lynd lýð­ræð­is­öfl væru komin til að vera. Annað átti eftir að koma á dag­inn. Fjár­málakreppan og gríð­ar­legur straumur flótta­fólks til álf­unnar olli sundr­ung og um miðjan síð­asta ára­tug voru popúl­ísk öfl farin að fá byr undir báða vængi og ýta undir þjóð­ern­is­hyggju sem flestir höfðu talið heyra sög­unni til. Evr­ópu­sam­starfið og sívax­andi völd Þjóð­verja innan þess var gagn­rýnt.

Evr­ópu­sam­bandið stóð þennan storm af sér að mestu, jafn­vel þótt Bretar tækju þá ákvörðun að yfir­gefa það. Donald Trump var svo kos­inn for­seti Banda­ríkj­anna um svipað leyti og þar með tók sam­starf við þessi tvö stór­veldi, eina helstu banda­menn Þjóð­verja, að stirðna. Á for­síðum dag­blaða var Merkel í kjöl­farið kölluð „síð­asti varð­maður frjáls­lyndis“ á Vest­ur­löndum.

Donald Trump reynir að kyssa Merkel á fundi G20 ríkjanna árið 2019.
Donald Trump reynir að kyssa Merkel á fundi G20 ríkj­anna árið 2019.

Lofts­lags­málin hafa síð­ustu ár kallað fram háværa kröfu á Merkel og hennar stjórn að ganga lengra í laga­setn­ingu og aðgerðum sem miða að því að draga úr losun gróð­ur­húsa­lof­t­eg­unda. Slík lög­gjöf varð að veru­leika árið 2019 en mörgum þótti ekki nógu langt gengið og gagn­rýn­is­radd­irnar þögn­uðu alls ekki. Umhverf­is­vernd­ar­sam­tök sögðu alls ekki nóg að gert. Merkel svar­aði: „Stjórn­mál snú­ast um hvað er ger­legt“.

Fram­bjóð­andi flokks Græn­ingja í kansl­ara­kosn­ing­unum, Annalena Baerbock, greip þessi orð á lofti og hefur í kosn­inga­bar­áttu sinni sagt að stjórn­mál snú­ist ekki aðeins um hvað sé hægt að gera heldur „hvað við getum látið ger­ast“.

Merkel hefur hins vegar nokkrum sínum á sínum póli­tíska ferli gengið lengra en búist var við, bæði af hennar stuðn­ings­mönnum og and­stæð­ingum, og „látið hluti ger­ast“. Eftir jarð­skjálft­ann á Japan árið 2011, sem olli því að leki kom að kjarn­orku­ver­inu í Fukus­hima, til­kynnti hún að öllum slíkum verum yrði lokað í Þýska­landi fyrir árið 2022.

Einkunnarorðin

Eft­ir­minni­leg er svo ákvörðun hennar um að taka á móti einni milljón fólks á flótta árið 2015 er stríðið í Sýrlandi var í hámarki. Á meðan sumum löndum hennar fannst allt of langt gengið tóku aðrir þess­ari ákvörðun hennar sem vís­bend­ingu um styrk hennar og ákveðni í því að breyta ímynd Þýska­lands – að sýna að Þjóð­verjar hefðu í reynd lært af for­tíð­inni.

Flokks­systkin hennar í Kristi­legum demókrötum voru alls ekki öll sam­mála henni. En Merkel varð ekki haggað. „Ég verð að vera hrein­skilin. Ef við þurfum að fara að biðj­ast afsök­unar á því að sýna vin­áttu í neyð þá er þetta ekki mitt land,“ sagði hún í sept­em­ber árið 2015. „Við getum þetta,“ sagði hún svo eft­ir­minni­lega.

Heimsfaraldurinn hefur verið enn ein krísan sem Merkel hefur þurft að fást við.
Heims­far­ald­ur­inn hefur verið enn ein krísan sem Merkel hefur þurft að fást við.

Merkel á ekki ein skilið heið­ur­inn af þeim fram­förum sem orðið hafa í Þýska­landi í hennar stjórn­ar­tíð. Ýmis umbóta­mál má rekja til sam­starfs­flokks­ins í tólf ár af sextán, Jafn­að­ar­manna­flokks­ins. Saman hafa flokk­arnir tveir sett á odd­inn ýmis vel­ferðar- og mann­rétt­inda­mál, s.s. afnám her­skyldu, lág­marks­laun, lengra fæð­ing­ar­or­lof og heim­ilað gift­ingar sam­kyn­hneigðra.

Hennar síð­asta kjör­tíma­bil hefur svo verið litað af heims­far­aldr­inum og Merkel var aftur komin í sviðs­ljósið sem aldrei fyrr. Hún brást hratt við með því að setja á ýmsar harðar sam­fé­lags­legar aðgerðir. Í sjón­varps­ávarpi þar sem hún greindi löndum sínum frá því sem í vændum væri rifj­aði hún upp æsku sína í Austur-Þýska­landi en það hafði hún sjaldan gert á opin­berum vett­vangi. „Fyrir ein­hvern eins og mig, sem barð­ist ákaft fyrir ferða­frelsi, er aðeins hægt að rétt­læta svona aðgerðir af brýnni nauð­syn.“ Með sinn bak­grunn í efna­fræði átti hún svo ekki í vand­ræðum með að hlusta á vís­inda­menn­ina og taka þeirra ráð­legg­ingum.

Enda skil­uðu þessar hörðu aðgerðir góðum árangri, rétt eins og við þekkjum hér á Íslandi. Fyrsta bylgjan var að mestu kveðin niður en allt fór að horfa til verri vegar á ný síð­asta haust. Þá vildi Merkel aftur grípa til harðra aðgerða en kom þeim ekki í gegn vegna and­stöðu leið­toga sam­bands­ríkj­anna sextán. Þeir sáu hins vegar að sér er líða tók á vet­ur­inn og far­ald­ur­inn hélt áfram að áger­ast.

En hvað finnst Angelu Merkel sjálfri standa upp úr á ferli sínum? Um það vill hún hafa sem fæst orð. „Ég hugsa ekki um hlut­verk mitt í sögu­legu sam­hengi,“ segir hún nýlegu við­tali við Financial Times. „Ég ein­fald­lega vinn vinn­una mína.“

Hún stóðst þó ekki mátið á kosn­inga­fundi Kristi­legra demókrata í síð­asta mán­uði og fór yfir nokkur þeirra mála sem hún telur standa upp úr. Að minnka atvinnu­leysi um helm­ing er þar efst á blaði. Að hefja orku­skipti í Þýska­landi með lokun kjarn­orku­vera og fljót­lega allra kola­vera. Og að end­ingu: Að hafa bjargað evr­unni.

Allt eru þetta mál sem eiga það til að breyt­ast hratt, hvort sem það er atvinnu­leysi, lofts­lags­mál eða sam­staða innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Það hefur reynslan af valda­tíð Merkel sýnt okkur. En nú mun það koma í hlut næsta kansl­ara að fást við þau verk­efni.

En hver verður það?

Angela Merkel: Kanslari Þýskalands 2005-2021.
Angela Merkel: Kanslari Þýska­lands 2005-2021.

Kosið verður til þings í dag. Skoð­ana­kann­anir hafa ekki verið afger­andi síð­ustu vikur. Græn­ingjar voru á miklu flugi í sumar en úr fylgi þeirra hefur dregið að und­an­förnu. Armin Laschet, arf­taki Merkel í Kristi­legum demókrötum, náði hins vegar framan af ekki sér­stöku flugi. Jafn­að­ar­mað­ur­inn Olaf Scholz átti betra gengi að fagna en undir lok kosn­inga­bar­átt­unnar voru þeir Scholz og Laschet nán­ast á pari.

Líkt og hér heima verða því þýsku kosn­ing­arnar mjög spenn­andi og þriggja flokka stjórn er talin vera í kort­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár