Obama stígur af sviðinu

Barack Obama steig af hinu pólitíska sviði eftir að hafa flutt kveðju­ræðu sína sem Bandaríkja­forseti í heimaborg sinni Chicago.

Barack Obama er forseti Bandaríkjanna þar til Donald Trump sver embættiseið í Washington 20. janúar.
Barack Obama er for­seti Banda­ríkj­anna þar til Donald Trump sver emb­ætt­is­eið í Washington 20. jan­úar. Mynd: EPA

Barack Obama flutti kveðju­ræðu sína sem forseti Banda­ríkjanna í heimaborg sinni Chicago í nótt. Hún var tilfinninga­þrungin. Obama talaði fyrir fjöl­breyttu samfélagi Banda­ríkjanna og mikilvægi þess að Banda­ríkin héldu í þau góðu gildi sem hefðu byggt „innflytjenda­landið“ Banda­ríkin upp frá rótum.

Obama var kjörinn forseti í nóvember 2008 en tók formlega við í janúar 2009, þegar miklir efnahags­erfiðleikar voru vítt og breitt um heiminn. Atvinnu­leysi var í kringum 10 prósent Í Banda­ríkjunum þegar hann tók við en á átta ára valdatíma Obama hefur efna­hagurinn styrkst og atvinnu­leysið minnkað. Það mælist nú undir 5 prósent. Hann var fertugasti og fjórði forsetinn og fyrsti svarti maðurinn til að verða forseti.

Hann sagði að lýðræðið væri eitthvað sem fólk þyrfti að taka virkan þátt í. „Þið ráðið,“ sagði hann og talaði fyrir því að kosninga­þátttaka þyrfti að aukast í Banda­ríkjunum. Hann hrósaði Michelle Obama konu sinni, og tveimur dætrum þeirra hjóna, fyrir að standa með honum í gegnum pólitískan feril hans. „Ekkert hefur gert mig jafn stoltan og þið,“ sagði hann og beindi orðum sínum til dætra sinna.

Í ræðu sinni sagðist hann bjartsýnn á framtíð Banda­ríkjanna, og hrósaði ungu kynslóðinni í landinu, sem væri snjöll, drífandi, skapandi og full af jákvæðri orku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár