Bankar á Wall Street hafa rokið upp í verði

Trump tekur ekki við stjórnar­taumunum fyrr en í janúar en frá því hann tók við sem forseti hefur verð á hluta­bréfum í Banda­ríkjunum rokið upp.

Óhætt er að segja að kosninga­sigur Donalds Trump hafi komið eins og vítamín­sprauta fyrir hlutabréfa­markaðinn í Banda­ríkjunum, og þá einkum og sér í lagi banka. Frá því 8. nóvember, þegar Trump var kosinn forseti Banda­ríkjanna, hefur virði hluta­bréfa rokið upp.

Sérstak­lega hefur síðasta vika á markaði einkennst af miklum hækkunum en á aðeins fimm viðskipta­dögum hefur virði hluta­bréfa hækkað um 5 prósent samkvæmt hlutabréfa­vísitölu Nasdaq.

Í viðskipta­ritinu IBD Weekly er fjallað um stöðu mála á hlutabréfa­markaði og því velt upp hvort fjár­festar á markaði - einkum og sér í lagi hluthafar fjármála­fyrirtækja - séu að reikna með því að langt tímabil mikilla hækkana sé framundan (Will Trump Unleash A New Bull Market?).

Er í umfjölluninni horft til þess að Trump vilji hafa sambærileg áhrif á fjármála­markaði eins og Ronald Reagan hafði á níunda áratugnum. Þá var dregið úr eftirliti og ýtt undir fjár­festingu og hækkun eigna­verðs með marg­víslegum aðgerðum, ekki síst skatta­lækkunum á fyrirtæki. „Er að hefjast nýtt tímabil mikilla hækkana á eignum?,“ er spurt í umfjöllun IBD Weekly.

Í umfjöllun Bloomberg segir frá því í gær segir að hlutabréf í bönkum á Wall Street hafi hækkað um 300 milljarða Bandaríkja­dala, eða um 34 þúsund milljarða króna, á aðeins 25 dögum. Svo virðist sem stærstu hluthafar stærstu fjármála­fyrir­tækjanna séu vissir um að Trump muni gera breytingar á reglu­verkinu sem nýtast bönkunum til enn frekari vaxtar og sóknar. Undir stjórn Baracks Obama hafa yfirvöld styrkt eftirlit með bönkum en Trump hefur lofað því að draga úr eftirliti.

Útfærðar tillögur frá honum liggja þó ekki fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár