Segir það vekja furðu hvernig stjórnmálamenn og fjölmiðlar „hamast á dómsmálaráðherra“

Hreinn Loftsson segir dóms­mála­ráð­herra ekki hafa gert neitt rangt þegar hún hringdi í lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á aðfanga­dag vegna Ásmund­ar­sals­máls­ins. Fjöl­miðlar hafi ekki virt helgifrið og heimtað svör frá ráð­herr­anum.

Hreinn Loftsson, lögmaður og annar aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.
Hreinn Loftsson, lög­maður og annar aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra. Mynd: RÚV/Skjáskot

Hreinn Loftsson, annar aðstoð­ar­manna Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra, segir það vekja „furðu hvernig ákveðnir fjöl­miðlar og sumir stjórn­mála­menn hafa ham­ast á dóms­mála­ráð­herra“ vegna sím­tala hennar til Höllu Bergþóru Björns­dóttur, lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á aðfanga­dag 2020 vegna Ásmund­ar­sals­máls­ins svo­kall­aða. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem Hreinn birti á Facebook seint í gær­kvöldi.

Þar segir Hreinn að ekk­ert hafi komið fram varð­andi sím­tölin annað en að ráð­herr­ann hafi verið að afla skýr­inga og upp­lýs­inga um „mjög óvenju­lega“ dag­bók­ar­færslu lög­reglu á meintu sótt­varna­broti í Ásmund­ar­sal kvöldið áður, á Þor­láks­messu. Í umræddri dag­bók­ar­færslu, sem send var á fjöl­miðla að morgni aðfanga­dags í fyrra, sagði að einn „hátt­virtur ráð­herra“ hefði verið við­staddur veislu í salnum þar sem grunur var um sótt­varn­ar­brot. Síðar var stað­fest að sá ráð­herra var Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og efna­hags- og við­skipta­ráð­herra.

Hreinn segir að Áslaug Arna hafi ekki verið að skipta sér að rann­sókn máls­ins með sím­tölum sínum til lög­reglu­stjór­ans eða að hlut­ast til um ein­stakar lög­reglu­að­gerðir. „Kannski hefði farið best á því að láta helg­ina líða en þá verður á hinn bóg­inn að hafa í huga að tíma­setn­ing lög­regl­unnar á jóla­kveðj­unni til „hátt­virts ráð­herra“ var í hæsta máta sér­kenni­leg og kall­aði á skýr­ingar af hennar hálfu án frek­ari dráttar. Fjöl­miðlar virtu engan helgifrið og heimt­uðu svör frá dóms­mála­ráð­herra við ýmsum spurn­ingum. Honum var aftur nauð­syn­legt að afla sér upp­lýs­inga frá lög­regl­unni til að geta áttað sig á mál­inu og til að geta svarað og brugð­ist við með eðli­legum og réttum hætti. Þetta gerði ráð­herr­ann með sím­tölum sínum við lög­reglu­stjór­ann á aðfanga­dag og var í fullum rétti til þess.“

Vissi að Bjarni hefði verið í Ásmundarsal

Nýverið opin­ber­aði RÚV að Áslaug Arna hefði hringt tví­­­­­vegis í Höllu Berg­þóru á aðfanga­dag 2020 í kjöl­far þess að lög­­­reglan hafði greint fjöl­miðlum frá því að „hátt­­­virkur ráð­herra“ hefði verið staddur í sam­­­kvæmi í Ásmund­­­ar­­­sal kvöldið áður, þar sem grunur er um að sótt­­­varn­­­ar­brot hafi verið framið. Umræddur ráð­herra reynd­ist vera Bjarni Bene­dikts­­­son, for­­­maður Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins og fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra. Áslaug Arna sagði í lið­inni viku við RÚV að sam­­­töl hennar við lög­­­­­reglu­­­stjór­ann hafi verið vegna spurn­inga sem hún hafði um verk­lag og upp­­­lýs­inga­­­gjöf við gerð dag­bók­ar­færslna lög­reglu. „Fjöl­miðlar spurðu mig hvort hún væri eðli­leg. Ég þekkti ekki verk­lag dag­bók­ar­færslna lög­regl­unnar og spurði aðeins um það.“

Heim­ildir Kjarn­ans herma að Áslaug Arna hafi verið spurð um það þegar hún mætti á fundi stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar í gær­morgun hvort hún hafi fengið upp­lýs­ingar um verk­lags­reglur hjá lög­reglu­stjór­an­um, og að hún hafi svarað því ját­andi. Þeim upp­lýs­ingum hafi hins vegar ekki verið miðlað til neinna fjöl­miðla.

Þar sagð­ist Áslaug Arna ekki hafa verið í sam­bandi við Bjarna áður en hún hringdi í Höllu Bergþóru en í sam­tali við RÚV eftir fund­inn stað­festi Áslaug Arna að hún hafi vitað að Bjarni væri hinn „hátt­virti ráð­herra“ sem minnst hafði verið á þegar hún hringdi.

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd ákvað í gær að kalla lög­reglu­stjór­ann á fund sinn í dag og fá hennar hlið á mál­inu.

Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir, þing­maður Við­reisnar sem situr í nefnd­inni, tók málið upp undir liðnum störf þings­ins í síð­ustu viku og sagði þar að hegðun Áslaugar Örnu og gerðir væru „mik­ill dóm­greind­ar­brest­ur“ að hennar mati. Erindið hafi getað sett lög­reglu­stjór­ann í „óþægi­lega stöð­u.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár