Vissi að Bjarni hefði verið í Ásmundarsal þegar hún hringdi í lögreglustjórann

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hafði ekki verið í sam­bandi við Bjarna Bene­dikts­son áður en hún hringdi í lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á aðfanga­dag. Hún vissi hins vegar að hann væri sá ráð­herra sem hefði verið í Ásmund­ar­sal.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra seg­ist ekki hafa verið í sam­bandi við Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, áður en hún hringdi í Höllu Bergþóru Björns­dóttur, lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, á aðfanga­dag í fyrra. Þetta kom fram á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í morgun þegar Áslaug Arna kom fyrir nefnd­ina og svar­aði spurn­ingum nefnd­ar­manna um málið, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Á vef RÚV er hins vegar haft eftir dóms­mála­ráð­herra að hún hafi vitað að það var Bjarni sem hafði verið í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu, þar sem grunur er um að sótt­­varn­­ar­brot hafi verið framið. Í sömu frétt segir Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, að hann sjái ekk­ert sem bendi til þess sem stendur að ráð­herra hafi farið yfir mörk eft­ir­lits­hlut­verks síns og haft óeðli­leg afskipti af máli sem væri í rann­sókn hjá lög­reglu.

Upplýsingum ekki miðlað áfram til fjölmiðla

Nýverið opin­ber­aði RÚV að Áslaug Arna hefði hringt tví­­­vegis í Höllu Berg­þóru á aðfanga­dag 2020 í kjöl­far þess að lög­­reglan hafði greint fjöl­miðlum frá því að „hátt­­virkur ráð­herra“ hefði verið staddur í sam­­kvæmi í Ásmund­­ar­­sal kvöldið áður, þar sem grunur er um að sótt­­varn­­ar­brot hafi verið framið. Umræddur ráð­herra reynd­ist vera Bjarni Bene­dikts­­son, for­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins og fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra. Áslaug Arna sagði í lið­inni viku við RÚV að sam­­töl hennar við lög­­­reglu­­stjór­ann hafi verið vegna spurn­inga sem hún hafði um verk­lag og upp­­lýs­inga­­gjöf við gerð dag­bók­ar­færslna lög­reglu. „Fjöl­miðlar spurðu mig hvort hún væri eðli­leg. Ég þekkti ekki verk­lag dag­bók­ar­færslna lög­regl­unnar og spurði aðeins um það.“

[adspot]Heim­ildir Kjarnans herma að Áslaug Arna hafi verið spurð um það á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í morgun hvort hún hafi fengið upp­lýs­ingar um verk­lags­reglur hjá lög­reglu­stjór­anum, og að hún hafi svarað því ját­andi. Þeim upp­lýs­ingum hafi hins vegar ekki verið miðlað til neinna fjöl­miðla.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sendi frá sér til­kynn­ingu sjálf 26. des­em­ber, tveimur dögum eftir að Ásmund­ar­sals­málið kom upp, þar sem hún gerði sjálf grein fyrir því að upp­lýs­ingar um að „hátt­virtur ráð­herra“ hefði veið á við­burð­inum sem lög­reglan stöðv­aði í salnum á Þor­láks­messu væru á skjön við vinnu­reglur hennar. Per­sónu­vernd taldi ekki ástæðu til að aðhaf­ast vegna dag­bók­ar­færsl­unnar þar sem almennt njóti opin­berar per­sónur minni frið­helgi en aðrar.

Lögreglustjórinn kemur á morgun

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd ákvað í dag að boða lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á fund sinn á morgun til að fá hennar hlið á mál­inu.

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar sem situr í nefnd­inni, tók málið upp undir liðnum störf þings­ins í síð­ustu viku og sagði þar að hegðun Áslaugar Örnu og gerðir væru „mik­ill dóm­greind­ar­brestur“ að hennar mati. Erindið hafi getað sett lög­reglu­stjór­ann í „óþægi­lega stöðu.“

Halla Bergþóra var í við­tali í Silfrinu á RÚV í gær en í upp­hafi þess kom fram að hún vildi ekki tjá sig að sinni um sím­töl dóms­mála­ráð­herra til sín á aðfanga­dag þar sem málið væri komið til með­ferðar hjá stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþing­is.

Þegar greint var frá því að for­m­­leg rann­­sókn væri hafin á sam­kom­unni, þann 30. des­em­ber í fyrra, sagði í til­­kynn­ingu frá lög­­­reglu að rann­­sóknin fæli meðal ann­­ars í sér að yfir­­­fara upp­­­­­tökur úr búk­­­mynda­­­vélum lög­­­­­reglu­­­manna með til­­­liti til brota á sótt­­­vörn­­­um. Rann­­sókn­inni lauk seint í jan­úar og málið var í kjöl­farið sent til ákæru­sviðs sem tekur ákvörðun um það hvort að sekt­­ar­­boðum verði beitt eða hvort ekki þyki ástæða til þess. Þar er málið enn til með­­­ferð­­ar.

Þá greindi mbl.is frá því í lok síð­ustu viku að nefnd sem hefur eft­ir­lit með störfum lög­reglu sé að kanna sam­skipti hennar við fjöl­miðla eftir að sam­kvæmið í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu var leyst upp. Einnig verður kannað hvort sam­ræmi sé milli þess sem komi fram á upp­töku og þess sem skrifað var í skýrslu lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár