Finnst það „mikill dómgreindarbrestur“ hjá Áslaugu að hafa hringt í lögreglustjórann

Þing­maður Við­reisnar gagn­rýnir dóms­mála­ráð­herra fyrir að hringja í lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eftir að lög­reglan upp­lýsti um að annar ráð­herra, for­maður flokks hennar, hefði verið í sam­kvæmi sem leyst var upp vegna gruns um sótt­varn­ar­brot.

„Hegðun og gerðir ráð­herra þennan dag finnst mér hins vegar mik­ill dóm­greind­ar­brestur og kalla á það að ráð­herra svari því af hvaða ástæðu hún hafði sam­bandi við lög­reglu­stjór­ann þennan dag og eftir hverju hún var að leita.“ Þetta sagði Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, á Alþingi í dag undir liðnum störf þings­ins.

[links]Þar vís­aði hún í að í gær­kvöldi opin­ber­aði RÚV að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefði hringt tví­vegis í Höllu Bergþóru Björns­dóttur, lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á aðfanga­dag 2020 í kjöl­far þess að lög­reglan hafði greint fjöl­miðlum frá því að „hátt­virkur ráð­herra“ hefði verið staddur í sam­kvæmi í Ásmund­ar­sal kvöldið áður, þar sem grunur er um að sótt­varn­ar­brot hafi verið framið. Umræddur ráð­herra reynd­ist vera Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Áslaug Arna sagði í gær við RÚV að sam­töl hennar við lög­reglu­stjór­ann hafi verið vegna spurn­inga sem hún hafði um verk­lag og upp­lýs­inga­gjöf. Að öðru leyti hafi hún ekki rætt umrætt mál við lög­reglu­stjór­ann og „ekki haft afskipti af rann­sókn þessa máls eða ann­arra.“

Setti lögreglustjóra í óþægilega stöðu

Þorbjörg Sigríður sagði í pontu Alþingis í dag að hún ætl­aði sér ekki að full­yrða neitt um það af hvaða ástæðu dóms­mála­ráð­herra kaus sjálf að hringja í lög­reglu­stjóra tvisvar á aðfanga­dag, enda viti hún það ekki umfram þær skýr­ingar sem ráð­herra hefur sjálf gefið á því. „En skýr­ingar hennar sjálfrar benda hins vegar til þess að erindið gat í það minnsta mjög auð­veld­lega sett lög­reglu­stjóra þarna í óþægi­lega stöðu.“

[adspot]Hún spyr hvort það hafi virki­lega ekki hvarflað að Áslaugu Örnu að sam­skiptin og bein sím­töl hennar sjálfrar til lög­reglu­stjóra væru óeðli­leg á þessum tíma­punkti? „Til lög­reglu­stjóra sem þarna var í blá­byrjun rann­sóknar á meintum brotum á sótt­varn­ar­lögum að hálfu sam­flokks­manns og for­manns þessa ráð­herra. Krafan er ekki bara sú að stjórn­völd tjái sig ekki um ein­stök mál heldur gæti þess í hví­vetna að snerta ekki á þeim heldur og að þau gefi aldrei annað til kynna. Og mér finnst sím­tal ráð­herra til lög­reglu­stjóra á þessum tíma­punkti því miður til þess fallið að vekja upp spurn­ingar á skiln­ingi á þessum mörkum.“

Málið enn til meðferðar hjá lögreglu

Ásmund­ar­sals­málið snýst um að í dag­bók lög­regl­unnar að morgni aðfanga­dags 2020 hafi komið fram að milli 40-50 manns hafi verið staddir í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu eftir að búið hafi verið átt að rýma sal­inn sam­kvæmt sótt­varn­ar­reglum.

Í sam­kvæm­inu voru fjar­lægð­ar­mörk og grímu­skylda enn fremur ekki virt og ölvun gesta verið tals­verð. Fólk hefði jafn­vel faðm­ast og kysst í kveðju­skyni eftir að sam­kvæmið var leyst upp.

Á meðal gesta reynd­ist vera Bjarni Bene­dikts­son. Hann sagði í við­tölum eftir að málið komst í hámæli að hann teldi ekki ástæðu til að segja af sér ráð­herra­emb­ætti vegna máls­ins.

Þegar greint var frá því að form­leg rann­sókn væri hafin á sam­kom­unni, þann 30. des­em­ber í fyrra, sagði í til­kynn­ingu frá lög­reglu að rann­sóknin fæli meðal ann­ars í sér að yfir­fara upp­tökur úr búk­mynda­vélum lög­reglu­manna með til­liti til brota á sótt­vörn­um. Rann­sókn­inni lauk seint í jan­úar og málið var í kjöl­farið sent til ákæru­sviðs sem tekur ákvörðun um það hvort að sekt­ar­boðum verði beitt eða hvort ekki þyki ástæða til þess. Þar er málið enn til með­ferðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár