Brosir meira á Íslandi

„Slavneskt fólk brosir ekki,“ segir Ioanna Paniukova, sem hefur búið á Íslandi síðasta eina og hálfa árið. Örlögin leiddu hana til Íslands frá stríðs­hrjáðu heima­landinu, Úkraínu.

Bros
Bros Ioanna Paniu­kova segir slav­neskt fólk ekki brosa, ólíkt fólk­inu á Íslandi. Viðhorf hennar til lífs­ins breytt­ist þegar hún flúði stríðið í Úkraínu og flutti til Íslands. „Ég brosi miklu meira á Íslandi. Lífið er fal­legt.“ Mynd: Golli

Ég er frá Úkraínu og hef búið á Íslandi í eitt og hálft ár. Þetta er fyrsta starfið mitt á Íslandi, hér á kaffi­húsinu á Kjarvals­stöðum. Ég kann vel við mig hérna, hér get ég kynnst íslenskri menningu og fólkinu, ég reyni að tala og skilja íslensku og fólkið og hugarfar þess. Þetta er alveg nýtt fyrir mér. Þetta er áskorun að tala tungu­málið en fólkið hér hjálpar mér. Ég átti íslenskan kærasta en við erum nýhætt saman. Svona er lífið bara.   

Stríðið hefur haft stress­andi áhrif. Fjöl­skyldan mín er enn þá í Kiev, þau geta ekki farið neitt. Ég vildi ekki fara frá þeim, ég gat ekki hugsað mér að fara ef þau myndu svo deyja. En örlögin leiddu mig hingað. Vinkona mín sem býr hér bauð mér í heimsókn og ég kom hingað í frí. Þremur dögum eftir að ég kom aftur heim til Úkraínu bókaði ég mér flug, aðra leiðina, til Íslands. Og hér er ég. 

„Ég gat ekki hugsað mér að fara ef þau myndu svo deyja. En örlögin leiddu mig hingað.“

Mér líður vel á Íslandi. Það skiptir máli að vera hluti af samfélaginu og ég er að reyna það. Ég vil ekki vera fórnar­lamb og að fólk líti fyrst og fremst á mig sem flótta­mann. Ég er mennsk, ég er manneskja sem er að byrja nýtt líf. Ég segi alltaf að einn daginn muni ég yfirgefa þessa eyju lengst úti í hafi en nú er ég ekki viss. Kannski verð ég bara hér? 

Fólkið hér er svo brosmilt, slavneskt fólk brosir ekki. Viðhorf mitt til lífsins breyttist þegar ég flutti til Íslands, ég er jákvæðari manneskja. Ég brosi miklu meira á Íslandi. Lífið er fallegt.“

Kjósa
45
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár