Eina stjórnmálakonan fékk aðeins hrós fyrir að líta vel út

Af sjö fulltrúum stjórn­málaflokka á þingi voru sex karlmenn í Kryddsíld Stöðvar 2. Þegar stjórnmála­leið­togarnir voru beðnir að gefa hver öðrum hrós var körlunum hrósað fyrir andlegt atgervi en konunnni einni hrósað fyrir útlitið.

Katrín og Benedikt
Katrín og Benedikt Katrín Jak­obs­dóttir var eini stjórn­mála­leið­tog­inn sem fékk aðeins hrós fyrir útlit sitt. Mynd: Stöð 2

Sjö fulltrúar stjórn­mála­flokkanna á Alþingi ræddu saman í Krydd­síldinni á Stöð 2 á gamlársdag. Ein kona var fulltrúi stjórn­málaflokks. Þáttar­stjórn­andinn, Logi Bergmann Eiðsson, bað flokks­formennina að hrósa hver öðrum fyrir eitthvað í fari þeirra. 

Karl­mennirnir sex gáfu hver öðrum lyndis­einkunn á grund­velli mannkosta eins og gáfnafars, yfir­vegunar, samskipta­hæfni og fleira sem viðkemur persónu­leika þeirra. Konan, Katrín Jakobs­dóttir, formaður Vinstri grænna, fékk hins vegar ein hrós fyrir það eitt að líta vel út þann daginn.

„Mig langar svolítið að gerta tilraun sem er stundum gerð í fyrir­tækjum til að efla liðsanda, sem er að segja eithvað fallegt um sessu­nautinn, segja eitthvað jákvætt,“ sagði Logi Bergmann.

„Mér kemur honum fyrir sjónir sem jákvæður og lífs­glaður maður,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar­flokksins, um Loga Einarsson, formann Samfylkingarinnar.

„Bráð­greindur maður sem er gaman að hafa kynnst,“ sagði Logi Einarsson um Smára McCarthy, umboðs­mann Pírata.

„Rosalega hugul­samur, það …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár