„Hann er ekki Messías“

Andy Burnham, sem fékk viðurnefnið „konungur norðursins“ sem borgar­stjóri Manchester, virðist standa á þröskuldi þess að verða næsti leiðtogi Verkamanna­flokksins og næsti forsætis­ráðherra Bretlands. Þetta er þriðja atlagan að formanns­stólnum og að hans sögn „síðasta tækifærið“ til að breyta Verkamanna­flokknum. Nú vinnur hann að því að róa fjárfesta. En hver er þessi maður sem var fagnað svo innilega af samflokks­mönnum þegar hann sór embættiseið sem þingmaður?

Andy Burnham virðist standa á þröskuldi þess að verða næsti leiðtogi Verkamanna­flokksins og næsti forsætis­ráðherra Bretlands. Nú vinnur hann að því að róa fjárfesta sem óttast að ríkis­útgjöld og skuldir muni aukast undir hans stjórn.

Sem borgar­stjóri Manchester hlaut hann viðurnefnið „konungur norðursins“, en gaf borgar­stjóra­stólinn eftir með því að taka sæti á breska þinginu í auka­kosningum.

Eftir að hann hafði svarið eið sem þingmaður heilsaði hann stuðnings­mönnum sínum í Westminster Hall með hnefann á lofti og tók sjálfs­mynd fyrir framan hóp um 200 þingmanna Verkamanna­flokksins. Honum var vel tekið af samflokksmönnum sínum sem fögnuðu með honum. Þeirra á meðal var Wes Streeting, fyrr­verandi ráðherra, sem var framan af talinn helsti keppinautur Burnham um forsætis­ráðherra­embættið.

Sjálfs­myndAndy Burnham tók þessa sjálfs­mynd með þing­mönnum Verka­manna­flokks­ins eftir að hann sór eið sem þing­maður.

Á þinginu heyrðist einn þingmaður hrópa …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár