Í Kína ræður foringinn, aftur

Forseti Kína sér um sína á aðal­flokksþingi sem haldið haldið verður í vikunni. Lesa má framtíð kínverskra stjórn­mála næstu 15-20 árin út frá því hverjir eru inni og hverjir úti eftir þingið.

Útlit er fyrir að gamal­grónar hefðir verði rofnar í tvígang í vikunni framundan þegar valda­skipti verða á aðalþingi kínverska Kommúnista­flokksins í Peking. Þingið er haldið á fimm ára fresti og hætta þá leiðtogar sem komnir eru á aldur og yngri flokks­gæðingar taka við. Ef ákveðin manna­skipti verða ekki að veruleika mun óvissa í kínverskum stjórn­málum aukast og stjórná­mála­skýrendur greina aftur­hvarf til áratuga embættis setu aðal­mannsins í flokknum líkt og tíðkaðist á tímum Maós formanns. 

Fyrir þingið er mesta spennan um það hverjir verma hvaða sæti í fasta­nefnd miðstjórnar flokksins. Miðstjórnin telur um 200 flokks­menn en einungis 7 sitja í fasta­nefndinni. Þessir 7 sjá um æðstu yfir­stjórn ríkisins. Lesa má framtíð kínverskra stjórn­mála næstu 15-20 árin út frá því hverjir eru inni og hverjir úti. Áður hefur einföldum aldurs­reglum verið beytt við val í nefndina en nú sér fram á meiri háttar breytingar.

Stóru breytingarnar tvær

Önnur breytingin hefur að gera með aldurs­takmark þeirra sem sitja í fasta­nefndinni. Skömmu eftir að Maó dó, tók Deng Xiaoping við sem helsti leiðtogi Kína og hafði frumkvæði að ótrúlegri efnahags­uppbyggingu landsins fram á okkar tíma. Óskrifaðar reglur sem kenndar eru við hann kváðu á um að embættis­menn sem væru 67 eða yngri gætu hlotið ný fimm ára skipunar­tímabil en þeir sem væru 68 eða eldri yrðu að hætta (reglan er kölluð 67 upp, 68 niður). Nú þykir líklegt að í það minnsta einn eldri maður í fasta­nefndinni fái að halda sæti sínu eftir flokks­þingið. Það er hann Wang Qishan, 69 ára agameistari flokksins, sem leitt hefur herferð gegn spillingu í flokknum og þykir sérlega hlið­hollur Xi Jinping forseta í þeim störfum.

Hin breytingin hefur að gera með val á framtíðar­arftaka Xi Jinpings forseta. Samkvæmt stjórnar­skránni þarf hann að hætta sem forseti ríkisins eftir tvö kjör­tímabil en hann getur haldið áfram sem aðal­flokks­ritari lengur og í Kína er að flokkurinn sem ræður. Sú hefð hefur verið að einn eða tveir ungir og efnilegir fulltrúar flokksins koma í fasta­nefndina á sama tíma og nýr forseti eða eftir fyrra af hans tveimur fimm ára skipunar­tímabilum. Þessir arftakar þurfa að vera yngri en 57 þannig að þeir séu ekki orðnir of gamlir (rúmlega sextugir) þegar forseti og forsætis­ráðherra hætta og nýjir taka við. Bæði Hu Jintao forseti sem tók við völdum 2002 og Xi Jinping forseti og Li Keqiang forsætis­ráðherra sem skipaðir voru 2012 öðluðust sína dýrmætustu reynslu á þennan hátt.

Sjanghæ-klíkan og Ungliðahreyfingin

Þeir Xi Jinping og Li Keqiang tilheyra tveimur öflugustu klíkunum í kínverska Kommúnista­flokknum. Xi forseti og Jiang Zemin fyrr­verandi forseti eiga það sameiginlegt að hafa verið aðal­flokks­ritarar í Sjanghæ og eiga þar sterkt bakland og tengslanet. Þeir tilheyra Sjanghæ-klíkunni.

Li forsætis­ráðherra og Hu Jintao fyrr­verandi forseti voru í ungliða­hreyfingu flokksins og klíkan þeirra er kennd við hana. Sú síðarnefnda hefur undan­farið fallið í skuggann á þeirri fyrr­nefndu.

Nú eru líkur á því að Xi Jinping muni einfald­lega sleppa því að skipa ungan og efnilegan flokks­gæðing sem arftaka. Helsta ástæðan sem nefnd hefur verið er sú að Xi vilji standa vörð um völd sín og halda áfram sem formlegur leiðtogi flokksins lengur en í tíu ár. Einnig hefur verið gefið til kynna að hann vilji hleypa lífi í kappreið­arnar um æðstu embættin.

Ákvarðanir Deng Xiaoping í gröfinni

Áhugavert er að Deng Xiaoping tókst í sína tíð að útnefna framtíðar leiðtoga Kína áður en hann dó árið 1997. Efnilegur flokks­maður, Hu Jintao, úr Ungliða­hreyfingunni var skipaður í fasta­nefnd árið 1992 og tók við sem forseti árið 2002. Voru það fyrstu frið­samlegu leiðtoga­skiptin í Kína á tímum kommúnista.

Nú, fimmtán árum síðar, eru fimm af sjö meðlimum fasta­nefndarinnar komnir á aldur og ættu, venju samkvæmt, að stíga til hliðar í vikunni. Aðdrag­andinn að aðal­flokks­þinginu í Peking fer fram á bak við tjöldin og lítið er vitað um hverjir hætta og hverjir bætast við þar til tíðinda dregur.

Kjarnaleiðtogi

Orðrómur um tvær áður­nefndar breytingar endur­spegla sterka stöðu Xi Jinpings forseta. Í fyrra var hugtakið kjarna­leiðtogi notað um hann opinber­lega og var það í fyrsta skipti eftir stjórnar­kreppuna í kjölfar mótmælanna á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Þá notaði Deng Xiaoping sama hugtak til að byggja upp einstaklings­bundinn stuðning við nýjan leiðtoga, Jiang Zemin, án þess þó að skilja hann frá öðrum meðlimum fasta­nefndarinnar með formlegum flokks­titli.

Forveri Xi Jinpings í forseta­stóli, Hu Jintao, var aldrei kallaður kjarna­leiðtogi og tókst aldrei að tryggja sér nógu sterkt bakland og smala sínum mönnum í æðstu stöður líkt og Xi Jinping er nú að gera. Enn fremur reynir áróðursvél flokksins að hífa Xi Jinping upp á sama stall í hugmynda­fræðilegu samhengi og Maó formaður og Deng Xioping.

Pappírstígrar og drekar

Áfram­haldandi valdaseta agameistarans Wang Qishan er bæði orsök og afleiðing aukins vægis Xi Jinpings forseta. Wang Qishan hefur leitt baráttuna gegn spillingu embættis­manna og ráðist gegn bæði pappírs­tígrisdýrum (lægra settum) og drekum (hærra settum). Allt í allt er talið að yfir 100 embættis­menn með tign jafngilda eða hærri en vara-ráðherra eða vara-héraðs­stjóri hafi verið ákærðir. 250 hátt settir embættis­menn hafa misst æruna og 1.4 miljón flokks­manna verið ákærðir eða áminntir.

Áhuga­verðustu dæmin um hausana sem fengið hafa að fjúka eru m.a. tilfelli Zhou Yongkang, fyrr­verandi forstóra Petrochina, kínverska olíu­risans, og æðsta yfirmann öryggis­mála í landinu. Hann var í fasta­nefnd miðstjórnarinnar á sama tíma og Xi Jinping forseti. Hann var rekinn úr flokknum fyrir margar sakir, m.a. fjárdrátt og lauslæti. Fyrr­verandi viðskipta­ráðherra Kína, Bo Xilai, var rekinn úr embætti aðal­flokks­ritara í Chongqing eftir morð eiginkonu hans á breskum kaup­sýslumanni, Neil Heywood. Það var lygileg atburðarás þar sem m.a. yfir­lögreglu­stjórinn í héraðinu flúði í bandaríska ræðis­skrifstofu í næstu stórborg eftir æsilegan bíla­eltingaleik. Nú nýlega hurfu tveir af virtustu herforingum Frelsis­hers alþýðunnar, þeir Fang Fenghui og Zhang Yang, af sjónar­sviðinu.

Í ljósi bráðlegra leiðtoga­skipta var brott­vikning Sun Zhengcai, aðal­flokks­ritara í Chongqing héraði, úr flokknum sérlega eftirtektar­verð þar sem hann var álitinn næsti forsætis­ráðherra og yrði þá næst valda­mestur í landinu á eftir forseta. Sun Zhengcai var rekinn fyrir að brjóta gegn hugsjónum flokksins, sjálf­tekju og leti í starfi. Mál hans verður tekið fyrir dómstóla sem í Kína þýðir að yfir­gnæfandi líkur eru á lífstíðar­fangelsi. Sun Zhengcai var hlið­hollur Hu Jintao, fyrr­verandi forseta. Með fráhvarfi hans losnaði núverandi forseti við efnilegan kálf úr Ungliða­hreyfingar-klíkunni.

Bandamenn og arftakar

Í kjölfar þessara höfðingja­víga er staða forsetans enn öruggari en forvera hans við sömu tímamót. Öruggt er að hann fái nýtt fimm ára skipunar­tímabil á aðal­flokks­þinginu. Almanna­rómur í Peking hermir að staða hans sé svo sterk að ekki verði framtíðar­arftakar tilnefndir í fasta­nefndina heldur einungis nánir bandamenn forsetans. Hér á eftir verður bakgrunni nokkurra þeirra lýst en hann varpar ljósi á þyrnum stráða vegferð þeirra til metorða. Aldur þeirra er eftirtektarverður þar sem hefðir um aldurs­takmark verða e.t.v. rofnar. Gróflega er reglan sú að þeir sem komast í fasta­nefndina og eru yngri en 58 eiga séns á því að verða forseti eða forsætis­ráðherra.

Li Zhanshu (67) er framkvæmda­stjóri kínverska Kommúnista­flokksins og var áður aðal­fokksritari í Guizhou og Xi’an héruðum. Hann þykir njóta sérstaks trausts Xi Jinping og ferðast oft erlendis með forsetanum. Athygli vakti þegar hann fór sem sérstakur sendiboði forsetans til funda við Vladimir Pútín í Moskvu. Li var fyrstur miðstjórnar­manna til að nota hugtakið kjarna­leiðtogi um Xi Jinping.

Cai Qi (61) starfaði með Xi Jinping á 17 ára löngum og mikil­vægum starfs­árum forsetans í suðræna strand­héraðinu Fujian, miklu verslunar­svæði meginlands­megin við Tævan-sund. Xi Jinping var aðal­flokks­ritari þar í héraðinu á árunum 2002 til 2007. Cai Qi hefur risið hratt upp metorða­stigann eftir að Xi varð forseti og var skipaður aðal­flokks­ritari í höfuð­borginni Peking s.l. maí. Titillinn aðal­flokks­ritari í héraði eða nokkrum stærstu risa­borgum Kína er hæsta svæðis­bundna staðan sem flokks­maður getur hlotið. Það að gegna henni í Peking getur varla verið áhrifa­meira. Cai er uppruna­lega frá Fujian héraði.

Chen Min’er (56) var aðal­flokks­ritari í fátækasta og afskekktasta héraði Kína, Guizhou, og þótti standa sig vel við efnahags­lega uppbyggingu. Í júlí var hann skipaður aðal­flokks­ritari í einni af risa­borgunum, Chongqing, þeirri sömu og hvar áður­nefndir Bo Xilai og Sun Zhengcai féllu í ónáð. Chen er uppruna­lega frá Zhejiang, næsta héraði norðan við Fujian, þar sem Xi Jinping var líka aðalflokkssritari. Chen Min’er var áróðurs­stjóri hans í Zhejiang. Hann þykir vera kandídat í fasta­nefnd miðstjórnarinnar og ef aldurs­reglur verða virtar þá passar hann ágætlega sem næsti maður í forseta­stólinn eftir næsta fimm ára tilskipunar­tímabil.

Chen Quanguo (61) er hörku­tólið í hópnum en hann var áður leiðtogi í Tíbet og nú í Xinjiang en í báðum héruðum gætir mikillar ólgu meðal stórra minnihluta­hópa, Tíbet-Búddista í fyrra héraðinu og Uygur-múslima í því síðara. Hann þykir hafa staðið sig vel í að stjórna þessum afskekktu landsvæðum. Ekki þarf að spyrja hvort stjórna með harðri hendi þar sé honum til fram­dráttar. Chen hefur aldrei unnið beint með Xi Jinping.

Li Xi (60) er aðal­flokks­ritari í Liaoning, þunga­iðnaðar­héraði í norð-austur hluta Kína skammt frá Kóreu­skaganum. Hann vann áður í Shaanxi héraði, á heima­slóðum fjöl­skyldu Xi Jinping.

Saman­tektir erlendu blaðanna á hugsanlegum kandídötum í efstu stöður kínverskrar stjórn­mála nefna allt frá fimm og upp í fimmtán nöfn. Við ofan­greindan lista má bæta helstum við þeim Ding Xueqiang (55) sem er e.k. aðstoðar­maður Xi Jinping og vann með honum þegar hann var aðal­ritari í Sjanghæ um skamma hríð og He Lifeng (62) sem er stjórnar­formaður Þróunar- og Endurbóta­ráðs (e.k. súper-efnahags­stefnu­stofnunar Kína).

Foringinn ræður

Stóra spurningin eftir þingið verður sú hvort í fasta­nefndinni verði einvörðungu bandamenn Xi Jinpings forseta í eldri kantinum og enginn augljós arftaki blasi við. Einnig verður spennandi að sjá hvort Li Keqiang haldi áfram sem forsætis­ráðherra eða verði lækkaður í tign. Ef Xi Jinping bolar honum, valda­mesta manni númer 2, út yrði lítið eftir af Ungliða­hreyfingunni og banda­mönnum þeirra í efsta lagi kínverskra stjórn­mála. Það yrðu stór­fréttir. Kínverskum jafnt sem erlendum frétta­skýrendum, og jafnvel tveimur eftir­lifandi forsetum Kína, yrði brugðið. Þeim fyrr­nefndu verulega en þeim tveim síðarnefndu óverulega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár