Hanna Birna: „Örugglega hefði ég átt að segja af mér“

„Örugglega hefði ég átt að segja af mér,“ segir Hanna Birna Kristjáns­dóttir, fyrr­verandi innan­ríkis­ráðherra, um viðbrögð sín í kjölfar rann­sóknarinnar á leka­málinu. Hanna Birna verður í viðtali í Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld. Hún snýr jafnframt aftur á Alþingi í dag, en þing­fundur hefst þar klukkan þrjú.

Í frétt Vísis af viðtalinu segir að Hanna Birna viðurkenni í því ýmis mistök sem hún vildi að hún gæti tekið til baka. Þá muni hún ræða um það hvern hún grunaði og hvað hún vissi um lekamálið í kvöld. Ef hún ætli sér að vera áfram í stjórn­málum þurfi hún að vinna sér inn traust þjóðarinnar á ný.

„Síðustu fjóra mánuði hef ég ekki veriđ tilbúin að ræða við fjölmiðla því ég vissi að ég hefði einfald­lega brotnað og það vildi ég alls ekki enda mitt starf ekki að láta vorkenna mér heldur að fylla aðra bjartsýni og von. Í dag er ég á betri stað og er tilbúin að tala og útskýra," segir hún í viðtalinu.

Hanna Birna sagði af sér sem innan­ríkis­ráðherra þann 21. nóvember síðastliðinn. Hún hefur síðan þá verið í fríi frá þing­störfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár