Líkamsvirðingarbarátta í áratug

Árið 2004 kom Sigrún Daníels­dóttir fílefld heim af alþjóðlegri ráðstefnu um átröskun, nýbúin að kynnast Heilsu óháð holdafari. Upp frá því hófst baráttan fyrir líkams­virðingu.

13. mars er Dagur líkams­virðingar. Þetta er mikill örlaga­dagur því þennan dag árið 2009 fór fyrsta blogg­færslan út af líkams­virðingar­blogginu og sama dag þremur árum síðar voru Samtök um líkams­virðingu stofnuð - án þess að nokkur hefði áttað sig á tengslum dagsetninganna.

Í dag er vert að líta yfir farinn veg og skoða hvernig baráttan fyrir líkams­virðingu hefur þróast hér á landi. Það er alltaf erfitt að tímasetja upphaf samfélags­baráttu því oft áttar maður sig ekki á því að baráttan sé byrjuð fyrr en löngu eftir að hún er farin af stað. Saga barátt­unnar fyrir líkams­virðingu fer þó að spanna ansi langan tíma eftir því hvenær byrjað er að telja. Í mínum huga hófst baráttan árið 2004. Þá kom ég fílefld heim af alþjóðlegri átröskunar­ráðstefnu, nýbúin að kynnast heilsu óháð holdafari (Health at Every Size), og var svo upprifin að ég skrifaði langa blaða­grein í fljúgandi innblæstri um árangurs­leysi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár