Í þá tíð… Hildarleikur í Boston varð grunnur að sjálfstæði Bandaríkjanna

Neistinn sem varð til þess að frelsi­stríð amerísku nýlendanna braust út er talinn hafa verið í Boston á þessum degi árið 1770.

Fjöldamorðin í Boston urðu sannkallaður vendipunktur í sambandi Breta við nýlendurnar í Norður-Ameríku. Sjálfstæðisröddum óx ásmegin upp frá þessum atburði sem John Adams forseti sagði grunninn að sjálfstæði Bandaríkjanna.
Fjöldamorðin í Boston urðu sann­kall­aður vendi­punktur í sam­bandi Breta við nýlend­urnar í Norður-Ameríku. Sjálf­stæð­is­röddum óx ásmegin upp frá þessum atburði sem John Adams for­seti sagði grunn­inn að sjálf­stæði Banda­ríkj­anna.

Á þessum degi fyrir réttum 247 árum síðan, hinn 5. mars árið 1770, sló í brýnu milli nýlendubúa og breskra hermanna í Boston. Úr varð eftir­minnilegur hildar­leikur þar sem fimm lágu í valnum og með því er talið að neisti hafi hlaupið í púður­tunnuna sem varð til þess að frelsis­stríð amerísku nýlendanna braust út.

Kergja vegna skattlagningar

Umræddir atburðir áttu sér nokkurn aðdrag­anda þar sem kergja hafði verið að byggjast upp í nýlendunum allt frá því að breska þingið lagði sérstakan skatt á pappírs­sölu þar („The Stamp Act“) árið 1765. Það þótti nýlendu­búum gróf aðför að réttindum þeirra, þar sem þeir álitu að einungis stjórn­völd í nýlendunum sjálfum ættu að hafa skatt­lagningar­vald yfir íbúum þeirra.

Breska ríkið var hins vegar að horfa til þess að taka inn frekari tekjur frá vestur­heimi til að bjarga fjárhagi ríkisins, sem stóð talsvert höllum fæti eftir hið svokallaða Sjö ára stríð þar sem Bretar tókust meðal annars á við Frakka um yfirráð yfir nýlendum í Norður-Ameríku og sigruðu.

Stamp Act mætti harðri mótspyrnu og var brátt afnumið, en Bretar voru stað­ráðnir í því að afla frekari tekna í ríkissjóð með skatt­lagningu í nýja heiminum. Þá var einnig reynt, ljóst og leynt, að bæta hag Austur-Indíafélagsins sem átti í rekstrar­erfiðleikum.

Ein af þeim aðgerðum sem lagt var í The Townshend Acts, sem var sett á árið 1767 og fól í sér tolla á margs konar innfluttan varning. Það var enn til að æra nýlendubúa sem lifðu eftir slag­orðinu „No Taxation Without Representation!“, en það fól í sér að á meðan nýlendu­búar ættu sér ekki málsvara á breska þinginu, myndu þeir aldrei sætta sig við skatt­lagningu af hendi þess.

Talverður órói einkenndi því samskipti almennings og yfirvalda á þessum tíma. Einna helst í Massachusetts og sérstak­lega Boston þar sem brugðið hafði verið á það ráð að kalla til hóp hermanna til að verja tollheimtu­menn gegn aðkasti.

Stundum lenti hermönnum og heima­mönnum saman, eins og dag einn í byrjun mars 1770, á bryggjunni í Boston þar sem tugir tóku þátt í hasarnum.

Fullvíst var talið að uppúr myndi sjóða áður en langt mundi líða og þess var sannarlega ekki langt að bíða.

Ófriður við tollhúsið

Að kvöldi hins 5. apríl söfnuðust bæjarbúar í Boston enn einu sinni saman til að mótmæla skatt­lagningar­stefnu Breta og fóru að láta snjó­boltum og grjótum rigna yfir tollhúsið og hinn eina hermann sem þar var á vakt, Hugh White að nafni. White hafði gert illt verra með því að slá ungan mótmælanda fyrir að móðga einn yfir­manninn í breska herliðinu. White kallaði til liðsauka og komu átta hermenn til viðbótar á svæðið en máttu láta það sama yfir sig ganga.

Þeir máttu sín lítils gegn æfum hópi, sem taldi, að því að haldið er, á milli þrjú og fjögur hundruð manns. Hermennirnir röðuðu sér upp í hálfhring fyrir framan aðaldyr toll­hússins og hlóðu byssur sínar.

Spennan var rafmögnuð og mátti lítið út af bera til að allt færi á versta veg. Mann­söfnuðurinn manaði hermennina til að skjóta og grýtti snjó­boltum og grjóti að hermönnunum.

Örlagaskot og ódæðisverk

Svo fór að einn hermaðurinn, Hugh Montgomery, fékk eina sendinguna í sig. Hann féll við og missti byssuna sína og brást hinn versti við. Hann beið ekki fyrirmæla yfirmanns síns, höfuðs­manns að nafni Thomas Preston, heldur skaut að mann­fjöldanum.

Einhverjir úr hópi mótmælenda réðust að Mongtomery og Preston höfuðs­manni, sem enn hafði ekki gefið skipun um að skjóta. Þá hófu hermennirnir að skjóta handahófs­kennt að hópnum og skutu ellefu menn. Þrír létu lífið strax, einn þá um nóttina og sá fimmti tveimur vikum síðar.

Hópurinn dreifðist nokkuð en safnaðist aftur saman í næstu götum. Ríkis­stjórinn Thomas Hutchinson var strax kallaður til og hét ítarlegri rannsókn á því sem gerst hafði. Tókst honum þar að róa mann­skapinn um stundar­sakir.

Vatn á myllu mótmælanda

Atburðurinn hafði mikið áróðurs­gildi fyrir þá sem börðust gegn breskum stjórn­völdum og voru þeir sem létust í „Fjölda­morðunum í Boston“ jarð­settir með mikilli viðhöfn. Þá birti dagblaðið Boston Gazette myndristu eftir Paul Revere þar sem fært var nokkuð í stílinn og látið sem skot­hríðin hefði verið fyrir­skipuð. Mynd þessi, sem sjá má hér efst í greininni, vakti mikil viðbrögð og auk þess voru gefin út mörg dreifi­bréf þar sem framgöngu hermannanna og breskra stjórvalda var líst á afar neikvæðan hátt. Allt var þetta vatn á myllu andstæðinga Breta.

Réttað var yfir áttmenningunum, en aðeins tveir voru sakfelldir fyrir manndráp, enda þótti sannað að þeir hefðu verið þeir einu sem skutu beint inn í mann­fjöldann. Þeir voru dæmdir til dauða, en refsingu þeirra var síðar breytt í brenni­merkingu á þumal.

Grunnurinn að sjálfstæði Bandaríkjanna

Þessi atburður markaði vatnaskil í samskiptum Breta og íbúa í nýlendunum þrettán á austur­strönd Norður-Ameríku. Með þessu breyttist viðhorf almennings til Georgs III Breta­konungs, og sagði John Adams, síðar forseti Banda­ríkjanna og einn af hinum svokölluðu „Founding Fathers“, eða lands­feðrum, að þennan örlaga­ríka dag hafi grunnurinn verið lagður að sjálf­stæði Banda­ríkjanna. (Þess má geta að Adams var einmitt verjandi bresku hermannanna í réttar­höldunum yfir þeim.)

Næstu ár urðu fleiri skærur milli nýlendubúa og Breta vegna skatta- og tollamála, en Bretar drógu í land með flestar sértækar tekju­öflunar­ráðstafanir fyrir utan toll á innflutt te.

Við það var ekki unað og í desember 1773 fór hópur mótmælenda um borð í bresk skip sem lágu við höfn í Boston og hentu tugum tonna af tei í sjóinn. Hörð viðbrögð Breta við þeirri uppákomu færðu deilu­aðila enn nær ófriði sem svo braust út með Frelsis­stríði Banda­ríkjanna sem stóð frá 1775 til 1783.

Annað markvert sem gerðist 5. mars:

1616

Bók Kópernikusar, Um snúninga himinhvelanna, er sett á bannlista kaþólsku kirkjunnar, rúmum 70 árum eftir útgáfu. Þar tíundar Kópernikus meðal annars sólmiðjukenningu sína.

1933

Nasistaflokkurinn í Þýskalandi hlýtur 43,9% atkvæða í þingkosningum. Skömmu síðar er ýtt í gegnum þingið lögum sem tryggja foringjanum, Adolf Hilter, alræðisvald.

1946

Winston Churchill flytur tímamótaræðu þar sem hann fordæmir framferði Sovétríkjanna í Mið- og Austur-Evrópu eftir lok seinna stríðs. Hann segir meðal annars að Járnhlið hafi verið reist í gegnun Evrópu „milli Stettin við Eytrasalt niður að Trieste við Adríahaf“.

1953

Jósef Stalín, leiðtogi Sovétríkjanna, deyr. Var hann fáum harmdauði, enda hafði hann milljónir lífa á samvisku sinni etir áratuga ógnarstjórn þar sem enginn var óhultur fyrir gerræðislegum grimmdarverkum hans.

1963

Fyrirtækið Wham-O fær einkaleyfi á Húla-hringnum.

1963

Kántrísöngkonan Patsy Cline deyr í flugslysi.

1969

Jim Morrison, söngvari rokksveitarinnar Doors, ákærður fyrir ósæmilega framkomu á tónleikum í Miami. Ákæran var í nokkrum liðum; meðal annars átti hann að hafa berað sig, ofurölvi, fyrir framan tónleikagesti. Morrison hafnaði sáttatillögu sem fól í sér að hljómsveitin héldi tónleika endurgjaldslaust og var dæmdur til sektar og hálfs árs fangavistar. Ekki kom til þess að Morrison sæti af sér dóminn þar sem hann lést í París nokkrum mánuðum eftir uppkvaðningu dómsins. Hann var svo náðaður árið 2010.

1970

Samningurinn gegn útbreiðslu kjarnorkuvopna (NPT) tekur gildi eftir staðfestingu í 43 ríkjum.

1982

Sovéska könnunarfarið Venera 14 lendir á yfirborði Venusar og starfar þar í 57 mínútur í 456 °C hita.

Afmælisbörn dagsins:

Dean Stockwell - leikari (81), Tokyo Sexwale - stjórnmálamaður (64), Aasif Mandvi - grínisti (51), John Frusciante - gítarleikari (47), Eva Mendes - leikkona (43).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár