Fyrrum framkvæmdastjóri Stefnis í forystu kjaramála fyrir hönd ríkisins

Nýr skrif­stofustjóri stofnunar innan fjármála­ráðuneytisins sem leiðir samninga­nefnd ríkisins við gerð kjara­samninga hefur gegnt stjórnunar­störfum í fjármála­geiranum í áratugi.

Jökull H. Úlfsson, nýskipaður skrifstofustjóri kjara- og mannauðssýslu ríkisins.
Jökull H. Úlfsson, nýskip­aður skrif­stofu­stjóri kjara- og mannauðs­sýslu rík­is­ins. Mynd: Aðsend

Jökull Heiðdal Úlfsson, fyrrum framkvæmda­stjóri Stefnis hf., hefur verið skipaður af fjármála­ráðherra sem skrif­stofustjóri kjara- og mannauðs­sýslu ríkisins til næstu fimm ára. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birtist á vef stjórnar­ráðsins í morgun.

Kjara- og mannauðs­sýsla ríkisins er sérstök ráðuneytis­stofnun sem sinnir verkefnum á sviði mannauðs­mála ríkisins. Þá hefur stofnunin einnig leitt samninga­nefnd ríkisins við gerð kjara­samninga, auk þess sem hún er í samstarfi við samtök launa­fólks og samtök sveitar­félaga um launa- og kjaramál sem og umbætur á vinnu­markaði.

Jökull gegndi stjórnunar­störfum hjá Arion banka í yfir 20 ár, en þar var hann meðal annars forstöðu­maður mannauðs og forstöðu­maður á þróunar- og markaðs­sviði. Þá var hann einnig forstöðu­maður í eigna­stýringu Arion banka og framkvæmda­stjóri Stefnis hf. sem er stærsta sjóðs­stýringar­fyrirtæki landsins, í eitt ár.

Samkvæmt tilkynningu stjórnar­ráðsins hefur hann svo að undan­förnu starfað sjálfstætt á sviði stefnu­mótunar, mannauðs­mála og innleiðingu straumlínu­stjórnunar.

Alls sóttu 17 um embættið, en þrír umsækjendur drógu umsókn sína til baka. Hæfni hinna 15 umsækjendanna var svo metið af sérstakri hæfnis­nefnd, sem var skipuð af fjármála­ráðherra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár