Framkvæmdastjóri Stefnis lætur af störfum rúmu ári eftir að hafa tekið við

Framkvæmda­stjóra­skipti hafa orðið í stærsta sjóðs­stýringar­fyrirtæki landsins, sem er í eigu Arion banka.

Jökull H. Úlfsson.
Jökull H. Úlfsson. Mynd: Aðsend

Jökull H. Úlfsson, framkvæmda­stjóri Stefnis, hefur óskað eftir að láta af störfum. Stjórn Stefnis, sem er stærsta sjóð­stýringar­fyrirtæki landsins og í eigu Arion banka, hefur komist að samkomu­lagi við Jökul um starfslok.

Krist­björg M. Kristins­dóttir, stað­gengill framkvæmda­stjóra Stefnis, mun taka tíma­bundið við starfi framkvæmda­stjóra eða þar til stjórn hefur ráðið í stöðuna. Jökull mun ljúka tilteknum verkefnum fyrir Stefni og vera stjórn og settum framkvæmda­stjóra til ráðgjafar, að því er kemur fram í tilkynningu.

Þar er haft eftir Sigrúnu Rögnu Ólafs­dóttur, stjórnar­formanni Stefnis, að Jökli sé þakkað fyrir samstarfið sem hafi verið „ánægjulegt og árangurs­ríkt eins og starfsemi Stefnis á árinu 2019 ber vitni. Stjórn óskar Jökli alls hins besta í fram­tíðinni.“

Einungis eru rúmir fjórtán mánuði frá því að Jökull tók við framkvæmda­stjóra­starfinu hjá Stefni af Flóka Halldórs­syni, sem hafði stýrt félaginu um árabil. Flóki settist í kjölfarið í stjórn Stefnis.

Jökull starfaði árunum 2002 til 2012 við eigna­stýr­ingu hjá Arion banka og for­verum hans. Hann leiddi inn­leið­ingu straum­línu­stjórn­unar hjá bank­anum á árunum 2012 til 2015 eða allt þar til hann tók við sem for­stöðu­maður mannauðs bank­ans. Jök­ull hafði setið í stjórn Stefnis frá árinu 2014 áður en að hann gerðist framkvæmda­stjóri. Jök­ull er við­skipta­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verð­bréfa­við­skipt­u­m.

Stefnir var með um 250 milljarða króna í virkri sjóða­stýringu í lok árs 2019. Hjá Stefni starfa um 20 sérfræðingar í fjórum teymum við stýringu á fjöl­breyttu úrvali verðbréfa-, fjár­festingar- og fagfjárfesta­sjóða. Einnig stýrir félagið eignum nokkurra samlags­hlutafélaga sem stofnuð hafa verið í kringum framtaks­fjár­festingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár