Bjarni endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins

Bjarni Benediktsson hlaut 59,4 prósent atkvæða í formanns­kjöri Sjálfstæðis­flokksins á lands­fundi hans í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson hlaut 40,4 prósent atkvæða.

Bjarni Benediktsson var kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins með nokkrum yfirburðum í dag. Mótframbjóðandinn, Guðlaugur Þór Þórðarson, hlaut þó 40,4 prósent atkvæða.
Bjarni Bene­dikts­son var kjör­inn for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins með nokkrum yfir­burðum í dag. Mót­fram­bjóð­and­inn, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, hlaut þó 40,4 pró­sent atkvæða. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

„Ég lýsi Bjarna Benediktsson rétt­kjörinn formann Sjálfstæðis­flokksins,“ sagði Kristín Edwald er hún hafði kynnt niður­stöður kosningar í formanns­kjöri á lands­fundi flokksins í dag.

Bjarni hlaut 1.010 atkvæði eða 59,4 prósent en Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra, hlaut 687 atkvæði eða 40,4 prósent. 1.712 landsfundar­fulltrúar kusu og voru 1.700 atkvæðanna gild. Þrjú atkvæði voru greidd öðrum en fram­bjóðendunum tveimur.

„Við skulum snúa bökum saman,“ sagði Bjarni er úrslitin voru kunn. „Saman erum við ósigrandi.“

Guðlaugur óskaði Bjarna „innilega til hamingju með glæsilegt kjör“. Hann sagðist hafa boðið sig fram því hann hefði einlæga trú á því að hægt væri að gera betur í Sjálfstæðis­flokknum. „Þessi lands­fundur er fyrsta skrefið í því.“

Núna liggur það fyrir að Bjarni Benediktsson er formaður Sjálfstæðis­flokksins, sagði Guðlaugur Þór, „og við styðjum hann til þeirra verka.“

Bjarni hefur verið formaður frá árinu 2009 eða í þrettán ár.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir er ein í framboði til vara­formanns en um embætti ritara keppast þau Bryndís Haralds­dóttir, Vilhjálmur Árnason og Helgi Áss Grétarsson. Úrslit í því kjöri skýrast síðar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár