„Gjör rétt – ávallt“

Fjármála- og efnahags­ráðherra segir að laun dómara eins og annarra æðstu embættis­manna séu ekki lækka. Um sé að ræða leið­réttingu. Hann segir að það sé ekkert minna en siðferðis­brestur að skila því ekki sem ofgreitt var úr opinberum sjóðum.

Bjarni Beneditsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dits­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Í raun er málið ósköp einfalt. Það snýst um að útgreidd laun voru hærri en þau laun sem greiða átti lögum samkvæmt. Það er óþolandi að þetta hafi gerst en við því verður að bregðast.“

Þetta skrifar Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahags­ráðherra um ofgreidd laun æðstu embættis­manna ríkisins í færslu á Facebook í dag.

Kjarninn greindi frá því í dag að Dóm­ara­fé­lag Íslands mót­mælti harð­lega „ólög­mætri ákvörðun fjár­mála­ráð­herra um ein­hliða og aft­ur­virka skerð­ingu á kjörum dóm­ara“. Í yfir­lýs­ingu frá félag­inu segir að ákvörð­unin sé í and­stöðu við gild­andi lög um launa­kjör dóm­ara og með henni sé vegið að rétti borg­ar­anna til rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir sjálf­stæðum og óvil­höllum dóm­stóli. Aðgerð­irnar feli í sér atlögu fram­kvæmda­valds­ins að dóms­vald­inu sem ekki eigi sér hlið­stæðu í íslenskri rétt­ar­sög­u.

Kjartan Björg­vins­son, hér­aðs­dóm­ari og ­for­maður stjórnar Dóm­ara­fé­lags­ins, birtir yfir­lýs­ing­una á Face­book-­síðu sinni. „Sú und­ar­lega ákvörðun blasti við dóm­urum lands­ins í morgun að laun þeirra voru lækkuð fyr­ir­vara­laust,“ skrifar hann enn­frem­ur. „Þessi lækkun mun vera í umboði fjár­mála­ráð­herra sem hefur boðað frek­ari og aft­ur­virkar skerð­ingar á launum dóm­ara.“

Telur málstaðinn býsna auman

Bjarni segir aftur á móti í færslu sinni á Facebook að laun dómara eins og annarra æðstu embættis­manna séu ekki lækka, eins og formaður dómara­félagsins hefur sagt.

„Þau eru leiðrétt núna um mánaða­mótin og hækka svo frá 1. júlí um 6,9 prósent frá þeirri leið­réttingu. Frá þeim tíma verða launin nákvæmlega þau sem þau eiga að vera lögum samkvæmt. Að ræða um geðþótta­ákvörðun fjármála­ráðherra í þessu samhengi er fráleitt. Fjárhæðin er lögákveðin.

Málstaður þeirra sem mótmæla því að nú eigi að leiðrétta ofgreidd laun er býsna aumur. Ég vænti þess að þeir vilji bera fyrir sig að hafa tekið við of háum launum undan­farin ár í góðri trú,“ skrifar hann.

„Stenst augljóslega enga skoðun“

Þá telur Bjarni að önnur rök séu yfir­sterkari – og muni miklu.

„Þegar í hlut eiga æðstu embættis­menn ríkisins, alþingis­menn, ráðherrar, forseti lýðveldisins, dómarar, seðla­bankastjóri og saksókn­arar á ekki að þurfa opinberar skeyta­sendingar til að útskýra að rétt skal vera rétt.

Að halda því fram, líkt og formaður dómara­félagsins gerir, að þetta einfalda mál snúist um rétt borg­aranna til rétt­látrar máls­meðferðar fyrir sjálf­stæðum og óvilhöllum dómstólum stenst augljós­lega enga skoðun,“ skrifar hann jafnframt.

Ráðherrann segir að málið snúist frekar um að fólkið í landinu ætti ekki að þurfa að hlusta á að það sé flókið fyrir efsta lag ríkisins, æðstu embættis­mennina, að skila því sem ofgreitt var úr opinberum sjóðum. Annað væri hrikalegt fordæmi og ekkert minna en siðferðis­brestur.

„Gjör rétt. Ávallt,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár