Ekki ranglega greidd laun heldur „geðþóttabreyting framkvæmdavaldsins“

Sú „ein­hliða“ og „fyr­ir­vara­lausa“ ákvörðun að lækka laun dóm­ara felur í sér „atlögu fram­kvæmda­valds­ins að dóms­vald­inu sem ekki á sér hlið­stæðu í íslenskri rétt­ar­sögu,“ segir for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands.

Kjartan Björgvinsson, héraðsdómari og varaformaður Dómarafélags Íslands.
Kjartan Björg­vins­son, hér­aðs­dóm­ari og vara­for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Dóm­ara­fé­lag Íslands mót­mælir harð­lega „ólög­mætri ákvörðun fjár­mála­ráð­herra um ein­hliða og aft­ur­virka skerð­ingu á kjörum dóm­ara,“ segir í yfir­lýs­ingu frá félag­inu. „Ákvörð­unin er í and­stöðu við gild­andi lög um launa­kjör dóm­ara og með henni er vegið að rétti borg­ar­anna til rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir sjálf­stæðum og óvil­höllum dóm­stóli. Aðgerð­irnar fela í sér atlögu fram­kvæmda­valds­ins að dóms­vald­inu sem ekki á sér hlið­stæðu í íslenskri rétt­ar­sögu.“

Kjartan Björg­vins­son, hér­aðs­dóm­ari og for­maður stjórnar Dóm­ara­fé­lags­ins, birtir yfir­lýs­ing­una á Facebook-síðu sinni. „Sú und­ar­lega ákvörðun blasti við dóm­urum lands­ins í morgun að laun þeirra voru lækkuð fyr­ir­vara­laust,“ skrifar hann enn­fremur. „Þessi lækkun mun vera í umboði fjár­mála­ráð­herra sem hefur boðað frek­ari og aft­ur­virkar skerð­ingar á launum dóm­ara.“

[adspot]

Hann segir aðferð­ina setja alla sem reki mál á hendur rík­inu í þá stöðu að eiga von á því „að fram­kvæmda­valdið geti lækkað laun dóm­ara eftir eigin geð­þótta. Þar með eru borg­ar­arnir sviptir rétt­látri máls­með­ferð og því að geta borið mál sín undir sjálf­stæðan og óvil­hallan dóm­stól í sam­ræmi við ákvæði stjórn­ar­skrár­innar og Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu“.

Greint var frá því á vef Fjár­sýslu rík­is­ins í morgun að ráð­herrar, alþing­is­menn, for­seti Íslands, dóm­arar, sak­sókn­arar, lög­reglu­stjórnar, ráðu­neyt­is­stjórar, seðla­banka­stjóri og vara­seðla­banka­stjórar ásamt rík­is­sátta­semj­ara hefðu alls fengið 105 millj­ónir króna í ofgreidd laun frá árinu 2019. Þar sagði að 260 ein­stak­lingar, þar af 215 sem enn eru í starfi, verði krafðir um end­ur­greiðslu á ofgreiðsl­unni.

Þessi mis­tök eru sögð eiga rætur sínar að rekja aftur til þess þegar Kjararáð var lagt niður.

[links]Halla Gunn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri ASÍ, spyr í ummælum við Facebook-færslu Kjartans hvort það sem við dóm­ur­unum blasti í morgun, líkt og Kjartan kemst að orði, eigi ekki við um alla emb­ætt­is­menn og kjörna full­trúa sem fengu ofgreidd laun? „Sjálf­sagt að ræða hvort það sé eðli­legt að taka þau til baka með þessum hætti en kannski dálítið vel í lagt að telja það ógn við rétt­ar­ríkið.“

Kjartan svarar Höllu og bendir á að miðað við þær upp­lýs­ingar sem Dóm­ara­fé­lagið hafi séu þetta ekki rang­lega greidd laun eins og þau ber að ákveða sam­kvæmt ákvæðum laga nr. 79/2019 „heldur geð­þótta­breyt­ing fram­kvæmda­valds­ins“. Til­kynn­ing fjár­sýsl­unnar frá í dag sé því ekki rétt og „bein­línis vill­andi“.

Varðandi ákvarð­anir rík­is­ins um launa­mál dóm­ara og áhrif þeirra á sjálf­stæði dóms­valds­ins megi benda á dóm núver­andi for­seta Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu Róberts Spanó, sem hann kvað upp árið 2006 sem þá settur dóm­ari. „Ríkið undi þeim dómi en í þessu máli er fram­kvæmda­valdið á enn tæp­ari grunni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár