Ráðherrar, þingmenn og forsetinn á meðal þeirra sem fengu 105 milljónir í ofgreidd laun

Þjóð­kjörnir fulltrúar og ýmsir hátt­settir embættis­menn sem færðir voru undan Kjararáði fyrir nokkrum árum hafa fengið meira borgað úr ríkis­sjóði en þeir áttu að fá. Um er að ræða hóp sem er með miklu hærri laun en meðal Íslend­ingurinn.

Á meðal þeirra sem fengu ofgreidd laun eru ráðherrar í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.
Á meðal þeirra sem fengu ofgreidd laun eru ráð­herrar í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Mynd: Bára Huld Beck

Ráðherrar, alþingis­menn, forseti Íslands, dómarar, saksókn­arar, lögreglu­stjórnar, ráðuneytis­stjórar, seðla­bankastjóri og vara­seðla­banka­stjórar ásamt ríkis­sátta­semjara fengu alls 105 milljónir króna í ofgreidd laun frá árinu 2019. Þetta kemur fram á vef Fjársýslu ríkisins. Þar segir að 260 einstaklingar, þar af 215 sem enn eru í starfi, verði krafðir um endur­greiðslu á ofgreiðslunni.

Þessi mistök eiga rætur sínar að rekja aftur til þess þegar Kjararáð var lagt niður. Það ráð ákvað í októ­ber 2016 að hækka laun for­­­­­­­seta Íslands, þing­far­­­­­­­ar­­­­­­­kaup alþing­is­­­­­­­manna og laun ráð­herra gríðar­lega. Laun þing­­­­­­­­manna hækk­­­­­­­­uðu hlut­­­­­­­­falls­­­­­­­­lega mest við ákvörðun Kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­­­­­­sent.

Eftir mikla samfélags­lega gagnrýni var sam­­­þykkt á Alþingi í sum­arið 2018 að leggja kjara­ráð nið­ur. Þess í stað átti að hækka laun í æðstu emb­ætt­is­manna og kjör­inna full­trúa í takti við þróun launa­vísi­tölu. Lög þess efnis voru samþykkt 2019 og launin hafa verið greidd samkvæmt þeim síðan þá.

Kjarninn greindi frá því í ágúst í fyrra að á fimm árum hefðu grunnlaun þingmanna hækkað um rúmlega 80 prósent, í 1.285.411 krónur á mán­uði.

Grunn­laun ráð­herra hækkað enn meira í krónum talið. Þeir voru með 1.257.425 krónur í laun snemm­sum­ars 2016 en 2.131.788 krónur á mán­uði í ágúst í fyrra. Laun þeirra höfðu því hækkað um 874.363 krónur á tíma­bil­inu, eða um 70 pró­sent.

Til við­bótar við ofan­greint geta þing­menn fengið ýmis­konar við­bót­ar­greiðslur vegna kostn­aðar sem fellur til vegna starfs­ins, eða auka­starfa á borð við nefnd­ar­for­mennsku.

Biðst afsökunar og rukkar upphæðina til baka

Í tilkynningu á vef Fjársýslu ríkisins er greint frá þeim mistökum sem gerð hafa verið við útreikningi launa þjóð­kjörinna manna, ráðherra og tiltekinna embættis­manna ríkisins, með þeim afleiðingum 260 manns hafi fengið verulega ofgreidd laun. Samanlögð upphæð þeirra er 105 milljónir króna.

Fjársýsla ríkisins uppfærir krónutölu­fjárhæð launa þessa hóps ár hvert til samræmis við tölur Hagstofunnar í samráði við kjara- og mannauðs­sýslu ríkisins og launin eiga að taka breytingum til hækkunar 1. júlí. „Í ljós hefur komið að allt frá gildis­töku laganna hefur viðmið við framkvæmdina verið launa­vísitala ríkis­starfsmanna, en ekki það viðmið sem tilgreint er í lögunum, þ.e. meðaltals­breyting reglulegra launa ríkis­starfsmanna milli ára. Við framkvæmd hækkunar launa þessa hóps hefur því ekki verið notast við lögbundið viðmið frá gildis­töku laganna og laun hækkað meira en þau áttu að gera. Fjármála- og efnahags­ráðuneytið hefur tekið ákvörðun um leið­réttingu vegna þessa og að farið verði fram á að viðkomandi endur­greiði ofgreidd laun frá gildis­töku laganna.“

Heildar­fjöldi einstaklinga sem hafa fengið laun sem leiðrétt verða er um 260 og hafa þeir allir fengið bréf um málið. Greiðslan verður ýmist dregin af launum eða kröfur stofnaðar í jöfnum hlutum í tólf mánuði.

Í tilkynningunni segir: „Eru hlut­aðeigandi beðnir velvirðingar á því óhagræði sem þetta kann að hafa í för með sér og mun Fjár­sýslan gera það sem hægt er til að aðstoða hvern og einn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár