Laun ráðherra á Íslandi hafa hækkað um 874 þúsund á fimm árum

Laun þing­manna hafa hækkað um 80 pró­sent frá fyrri hluta árs 2016. Laun ráð­herra hafa hækkað um 70 pró­sent en samt um 300 þús­und krónum meira en laun þing­manna. Hækk­an­irnar eru í engu sam­ræmi við almenna launa­þróun.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur hækkað umtalsvert í launum á kjörtímabilinu.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur hækkað umtals­vert í launum á kjör­tíma­bil­inu. Mynd: Heimasíða forseta Íslands.

Í byrjun sum­ars 2016 voru grunn­laun þing­manna á Íslandi 712.030 krónur á mán­uði. Nú, fimm árum síðar, eru þau 1.285.411 krónur á mán­uði. Þau hafa því hækkað um 573.381 krónur á tíma­bil­inu, eða um rúm­lega 80 pró­sent.

Grunn­laun ráð­herra hækkað enn meira í krónum talið. Þeir voru með 1.257.425 krónur í laun snemm­sum­ars 2016 en fá nú 2.131.788 krónur á mán­uði. Laun þeirra hafa því hækkað um 874.363 krónur á tíma­bil­inu, eða um 70 pró­sent. Þetta má sjá með því að skoða birtar upp­lýs­ingar um launa­kjör þing­manna og ráð­herra aftur í tím­ann og bera saman við launa­tölur í dag eftir að síð­asta launa­hækkun þing­manna og ráð­herra tók gildi í sumar.

[links]Meðaltal heild­ar­tekna á Íslands, sam­kvæmt tölum frá Hagstofu Íslands, var 450 þús­und krónur í árs­lok 2015. Í lok síð­asta árs voru þau 591 þús­und krónur og höfðu því hækkað um 141 þús­und krónur, eða 31 pró­sent á tíma­bil­inu. Miðgildi heild­ar­tekna lands­manna var 358 þús­und krónur í lok árs 2015 og 488 þús­und um síð­ustu ára­mót. Það hafði því hækkað um 130 þús­und, eða 36 pró­sent á tíma­bil­inu.

Laun þing­manna hafa því hækkað um 432 þús­und krónur umfram þær krónur sem með­al­tal heild­ar­tekna lands­manna hefur hækkað á tíma­bil­inu og um 443 þús­und krónur umfram mið­gildi heild­ar­tekna.

Laun ráð­herra hafa hækkað um 733.363 krónur umfram með­al­tals­tekjur lands­manna og um 744.363 umfram mið­gildi þeirra tekna. Hækkun ráð­herra­laun­anna nemur rúm­lega 150 pró­sent af mið­gildi heild­ar­tekna á Íslandi.

Til við­bótar við ofan­greint geta þing­menn fengið ýmis­konar við­bót­ar­greiðslur vegna kostn­aðar sem fellur til vegna starfs­ins, eða auka­starfa á borð við nefnd­ar­for­mennsku.

Ákvörðun Kjararáðs afdrifarík

Laun þing­manna voru 712.030 krónur á árinu 2015, og raunar fram á mitt ár 2016. Laun for­seta Alþingis voru á sama tíma 1.257.425 krónur, en hann nýtur sömu launa- og starfs­kjara og ráð­herrar. Þing­manna­launin hækk­uðu svo í 762.940 krónur 1. júní 2016 og laun for­seta Alþingis og ráð­herra urðu á sama tíma 1.347.330 krónur.

[adspot]Síðan kom kúvend­ing. Kjara­ráð ákvað í októ­ber 2016 að hækka laun for­­­­­­seta Íslands, þing­far­­­­­­ar­­­­­­kaup alþing­is­­­­­­manna og laun ráð­herra. Sam­­­­­­kvæmt úrskurði kjara­ráðs urðu laun for­­­­­­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­­­­­­ar­­­­­­kaup alþing­is­­­­­­manna 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­­­­­­sæt­is­ráð­herra að með­­­­­­­­­­­töldu þing­far­­­­­­ar­­­­­­kaupi varð 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­­­­­arra ráð­herra að með­­­­­­­­­­­töldu þing­far­­­­­­ar­­­­­­kaupi urðu 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun þing­­­­­­­manna hækk­­­­­­­uðu hlut­­­­­­­falls­­­­­­­lega mest við ákvörðun Kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­­­­­sent.

Sam­­þykkt var á Alþingi í sum­arið 2018 að leggja kjara­ráð niður. Þess í stað átti að hækka laun í æðstu emb­ætt­is­manna og kjör­inna full­trúa í takti við þróun launa­vísi­tölu.

Frestuðu hækkunum en hættu ekki við þær

Fyrsta hækk­unin átti að taka gildi sum­arið 2019 og taka við af hækkun vísi­töl­unnar árið 2018. Í tengslum við gerð Lífs­kjara­samn­ing­anna, sem skrifað var undir í apríl 2019 var ákveðið að fresta þeirri hækkun til 1. jan­úar 2020. Í þeim samn­ingum var ákveðið að semja um krónu­tölu­hækk­anir þannig að lægstu laun myndu hækka umfram almenna launa­hækkun. Þingmenn voru þó á meðal þeirra hópa sem eru und­an­skildir þessu.

Laun þeirra hækk­uðu um 6,3 pró­sent í byrjun árs 2020. Þingmenn fengu 70 þús­und krónur meira í vas­ann, for­sæt­is­ráð­herra 127 þús­und og aðrir ráð­herra 115.055 krónur. Um síð­ustu ára­mót hækk­uðu launin aftur, nú um 3,4 pró­sent, en þeirri hækkun hafði verið frestað um hálft ár vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Það skil­aði hverjum þing­manni 40 þús­und krónum í við­bót­ar­laun á mán­uði, for­sæt­is­ráð­herra um 73 þús­und krónum og öðrum ráð­herrum um 66 þús­und krónum.

Enn hækka launin

Í sumar hækk­uðu laun þing­manna svo aftur, nú um 6,2 pró­sent, og eru orðin 1.285.411 krónur á mán­uði. Grunn­laun for­sæt­is­ráð­herra eru 2.282.450 krónur og ann­arra ráð­herra 2.131.788 krónur á mán­uði.

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata, greindi frá þessu á heima­síðu sinni í síð­asta mán­uði. Ekki er búið að upp­færa heima­síðu Alþingis í sam­ræmi við þetta til að gera þessar upp­lýs­ingar aðgengi­legar almenn­ingi. Þar er enn til­tekin gamla launa­talan.

Launa­hækk­unin nemur rúmum 75 þús­und króna. Laun for­sæt­is­ráð­herra hækk­uðu um 133 þús­und krónur á mán­uði og ráð­herra hækk­uðu um 124 þús­und krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár