Segir launahækkun þingmanna rof milli kjara æðstu ráðamanna og almennings

Forseti ASÍ segir að þing­menn und­ir­gang­ist ekki þá grunn­hug­mynd að hækka lægstu laun umfram almenna launa­hækkun, líkt og samið var um í lífs­kjara­samn­ingnum, heldur taki sér hækkun langt umfram aðra.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), gagn­rýnir nýlega launa­hækkun þing­manna harð­lega í nýjum pistli, en laun þeirra hækk­uðu um 75 þús­und krónur í sumar upp í 1.285.411 króna grunn­laun.

Drífa segir að með þess­ari hækkun hafi enn á ný orðið rof milli kjara æðstu ráða­manna og almenn­ings og segir að æðstu hópar sam­fé­lags­ins séu áfram sem áður und­an­skildir frá því sem um almenn­ing gildir. „Í jan­úar síð­ast­liðnum hækk­uðu taxta­laun um 24 þús­und krónur en almenn hækkun launa var 15.750 krónur. Þau sem muna kjara­bar­átt­una í upp­hafi árs 2019 vita vel hvað þurfti mikið átak til að ná slíkum árvissum hækk­unum í þriggja og hálfs árs samn­ingi. Grunn­hug­myndin var að tryggja hækkun lægstu launa umfram almenna launa­hækkun. Þingmenn und­ir­gang­ast ekki þessa hug­mynda­fræði heldur taka hækk­unum miðað við launa­vísi­tölu opin­berra starfs­manna.“

[adspot]Drífa segir að sam­fé­lags­leg sátt muni aldrei nást ef stórir hópar eru skildir eftir í lífs­gæðum og aðrir hópar telji sig und­an­skilda almennum takti. Á tímum sem þeim sem nú séu, þar sem bar­átta við kór­ónu­veiru yfir­skyggi allt, sé hætta á því að slík grund­vall­ar­mál gleym­ist. „Fólk í fram­lín­unni; sem vinnur í versl­unum og þjón­ustu, við umönnun, kennslu og í heil­brigð­is­kerf­inu getur ekki búið við annan eins vetur og var í fyrra. Þol­mörk­unum er náð en óvissa um fram­haldið er verst. Álagið og afkomu­ótt­inn sem fylgt hefur þessum vágesti er lam­andi og því brýn­asta málið að tryggja fulla mönnun og hvíld vinn­andi fólks og aðlaga atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerfið að sveifl­óttum vinnu­mark­aði í skugga veirunnar. “

Krónutöluhækkanir til að hækka lægstu launin

Skrifað var undir hina svoköll­uðu lífs­kjara­samn­inga í apríl 2019. Kjara­samn­ing­arnir náðu til yfir 110 þús­und manns á íslenskum vinnu­mark­aði en um er að ræða versl­unar-, skrif­stofu- og verka­fólk. Þeir gilda frá 1. apríl 2019 til 1. nóv­em­ber 2022.

[links]Launa­hækk­anir sem í honum fel­ast eru taldar í krónum. Almenn laun hækk­uðu um 17 þús­und krónur frá 1. apríl 2019. Þau hækk­uðu síðan aftur um 18 þús­und krónur 1. apríl 2020, um 15.750 krónur 1. jan­úar 2021 og eiga að hækka um 17.250 krónur 1. jan­úar 2022. Þá var samið um ein­greiðslu til allra almennra launa­manna upp á 26 þús­und krónur sem var til útgreiðslu í byrjun maí 2019.

Með því að hafa launa­hækk­anir í krónu­tölum en ekki hlut­falls­tölum átti að tryggja að þeir sem hafi hæstu launin myndu ekki hækka um fleiri krónur en þeir sem voru með þau lægstu.

Sér­stak­lega var samið um auknar hækk­anir fyrir þá sem vinna á taxta­launum. Alls áttu laun þeirra sem eru með kaup­taxta að hækka um 90 þús­und krónur á samn­ings­tím­anum. Lág­marks­tekjur fyrir fullt starf verða sam­kvæmt þeim 368 þús­und krónur 1. jan­úar 2022. Auk þess hækkar des­em­ber­upp­bót úr 89 þús­und krónum í 98 þús­und krónur á samn­ings­tím­anum og orlofs­upp­bót úr 48 þús­und krónum í 53 þús­und krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár