Netflix tekur yfir Millarworld

Afþreyingar­fyrirtækið Netflix tók yfir Millarworld, útgefanda mynda­sagna Mark Millar, síðasta mánudag. Þetta er fyrsta yfirtakan í tuttugu ára sögu fyrir­tækisins.

Ted Sarandos, yfirmaður útgáfu Netflix.
Ted Sarandos, yfir­maður útgáfu Netflix. Mynd: EPA

Netflix Inc. framkvæmdi sína fyrsta yfirtöku á mánudaginn, en streymis­veitan tók yfir rekstur myndasögu­útgefandans Millarworld. Þetta kemur fram í tilkynningu fyrir­tækisins.

Millarworld, sem er í eigu rithöfundarins Mark Millar, hefur staðið að baki mörgum mynda­sögum, en þekktastar þeirra eru „Kick-Ass“ og „Kingsman.“ Samkvæmt frétt Reuters eru þessar tvær sögur þó undan­þegnar yfir­tökunni, en allar aðrar mynda­sögur útgefandans munu fylgja með auk þess sem fleiri verði fram­leiddar fyrir streymis­veituna.

Yfirtakan er keimlík kaupum Disney á ofur­hetju­vörumerkið Marvel Studios árið 2009, en Ted Sarandos, yfirmaður útgáfu Netflix, líkti Mark Millar við Stan Lee, manninn á bak við „Spider-Man,“ „Avengers“ og „X-Men.“

Með yfir­tökunni er steymisveitan að færa sig að auknum krafti inn á markað ofur­hetjumynda-og þátta, en margar þáttaraðir úr smiðju Marvel, líkt og „Jessica Jones,“ „Luke Cage“ og „Daredevil,“ hafa notið mikilla vinsælda á Netflix.

Fyrstu viðbrögð fjárfesta við yfir­tökunni virtust nokkuð góð, en í kjölfar frétta­tilkynningarinnar hækkaði hlutabréfa­virði Netflix um 1% um tíma á mánudaginn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár