Norsk laxeldisfyrirtæki takast á um eignarhald á auðlindinni á Íslandi

Norsku lax­eld­is­fyr­ir­tækin Salmar, eig­andi Arnarlax á Bíludal, og NTS, sem er stærsti hlut­hafi Arctic Fish á Ísafirði í gegnum Norway Royal Salmon, takast nú á um fram­tíð­ar­eign­ar­hald NTS. Salmar vill kaupa NTS en leið­andi hlut­hafi NTS vill ekki selja. Ef af kaup­unum verður mun sam­þjöppun í eign­ar­haldi í lax­eldi á Íslandi aukast enn meira og mun nær allt lax­eldi á Vest­fjörðum verða í eigu sama fyr­ir­tækis.

Barist um eiganda Arctic Fish
Barist um eig­anda Arctic Fish Stærstu eig­endur Salmar og NTS berj­ast nú um yfir­ráðin yfir síð­ast­nefnda fyr­ir­tæk­inu. Þetta eru þeir Gustav Witzoe og Helge Gaso. Á sama tíma er tek­ist á sam­þjöppun í lax­eldi á Íslandi á vett­vangi Alþingis. Mynd: Samsett / Intrafish

„Heilt yfir þá skapar þessi mögu­leiki frá­bæran upp­haf­s­punkt til að byggja eitt­hvað ennþá sterkara saman, svo að einn plús einn verði meira en tveir,“ segir Gustav Witzoe, stofn­andi og for­stjóri norska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Salmar AS, stærsta eig­anda lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax á Bíldudal, í grein­ar­gerð í nýjasta árs­reikn­ingi félags­ins fyrir 2021 sem gerður var opin­ber fyrir nokkrum dögum. Witzoe talar þarna um til­raunir Salmar til að kaupa lax­eld­is­fyr­ir­tækið NTS sem á 68 pró­senta hlut í móð­ur­fé­lagi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Fish á Ísafirði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár