Þrúgandi starfsumhverfi, versnandi tengsl og ekki greitt í samræmi við kjarasamninga

Algengt var að starfs­menn bandaríska sendi­ráðsins á Íslandi eyddu klukku­stundum af vinnu­deginum í að hjálpa fyrr­verandi sendi­herra að semja eina færslu á samfélags­miðla, samkvæmt innra eftirliti bandarísku utan­ríkis­þjónustunnar.

Jeffrey Ross Gunter fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hér á landi fær vægast sagt slæma umsögn frá fyrrverandi undirmönnum sínum í bandaríska sendiráðinu í skýrslu innra eftirlits utanríkisþjónustu landsins.
Jeffrey Ross Gunter fyrr­ver­andi sendi­herra Banda­ríkj­anna hér á landi fær væg­ast sagt slæma umsögn frá fyrr­ver­andi und­ir­mönnum sínum í banda­ríska sendi­ráð­inu í skýrslu innra eft­ir­lits utan­rík­is­þjón­ustu lands­ins. Mynd: Bandaríska sendiráðið

Starfs­kjarastefna bandaríska sendi­ráðsins hér á landi hefur árum saman ekki verið í fullu samræmi við gildandi kjara­samninga á íslenskum vinnu­markaði. Bæði desember- og júlí­uppbót starfs­manna í sendi­ráðinu hefur staðið í stað allt frá árinu 2009 og þá hefur sendi­ráðið ekki innleitt breytingar sem lúta að styttingu vinnu­vikunnar og fjölda frídaga, þrátt fyrir að eiga að uppfæra starfs­kjarastefnu sína árlega með tilliti til gildandi samninga á vinnu­markaði.

Þetta er á meðal þess sem hnýtt er í, í nýlegri úttekt innra eftirlits bandaríska utan­ríkis­ráðuneytisins á starfsemi sendi­ráðsins í Reykjavík. Innra eftir­litið bendir í skýrslunni á fjölda annmarka í starfsemi sendi­ráðsins og varpar ljósi á það að starfsemi sendi­ráðsins var í hálfgerðu uppnámi á meðan á skipunar­tíma fyrr­verandi sendi­herra, Jeffrey Ross Gunter, stóð.

Starfsfólk enn að jafna sig eftir Gunter

mbl.is vakti fyrst íslenskra miðla athygli á skýrslu innra eftirlitsins í gærkvöldi, en hún er birt opinber­lega á vef innra eftirlitsins og sögð „viðkvæm“, en þó ekki trúnaðarmál. Í henni segir að við vettvangs­rannsókn innra eftirlitsins hér á landi hafi komið í ljós að starfs­fólk sendi­ráðsins væri enn að jafna sig á því sem þau lýstu sem ógnandi starfs­umhverfi, sem skapað hefði verið af sendi­herranum fyrr­verandi.

Því var meðal annars lýst af hálfu starfs­manna að Gunter hefði hótað því að lögsækja starfs­fólk sem lýsti sig ósammála honum, efaðist um óskir hans eða sýndi honum ekki nægilega hollustu, að hans mati.

Margir starfs­menn lýstu því sömuleiðis við fulltrúa innra eftirlitsins að starfs­menn sem áttu í samskiptum við ráðuneytið í Washington starfa sinna vegna hefðu mátt búa við hótanir af hálfu sendi­herrans fyrr­verandi, sem Donald Trump skipaði í embætti sendi­herra á Íslandi í maí árið 2019.

Versnandi tengsl við íslensk stjórnvöld

Í vettvangs­ferð innra eftirlitsins komust starfs­menn þess að því að í sendi­ráðinu væri um þessar myndir lögð mikil áhersla á að byggja aftur upp samband við íslensku ríkis­stjórnina, sem hefði hrakað mjög á skipunar­tíma Gunters.

Í skýrslunni segir að á einum tíma­punkti hafi sambandið við íslensk stjórn­völd orðið svo slæmt, vegna framgöngu sendi­herrans fyrr­verandi, að embættis­maður í ráðuneytinu hafi biðlað til skrif­stofu Evrópu- og Evrasíu­tengsla í bandarísku utan­ríkis­þjónustunni um að vinna beint með íslenska utan­ríkis­ráðuneytinu til þess að tryggja betra utan­umhald um tvíhliða samskipti Banda­ríkjanna og Íslands.

Gunter er sagður hafa farið á svig við diplómatískar venjur og siði í samskiptum sínum við íslensk stjórn­völd, meðal annars með yfir­lýsingum um viðkvæm varnarmál. Sendi­ráðið vísar sérstak­lega til færslu sem hann setti inn á Facebook-síðu bandaríska sendi­ráðsins með yfir­lýsingu um að Banda­ríkin ætluðu að fjárfesta yfir 170 milljónum dala í ýmis verkefni á Íslandi, til þess að styrkja samband ríkjanna.

„Þetta og fleiri samráðs­lausar yfir­lýsingar fyrr­verandi sendi­herrans sköpuðu deilur meðal almennings á Íslandi,“ segir í skýrslu innra eftirlitsins.

Þar er einnig tekið fram að starfs­álag þeirrar deildar sem hefur umsjón með almanna­tengslum sendi­ráðsins hefði stóraukist, vegna þeirrar áherslu sem sendi­herrann fyrr­verandi setti á að ná til fólks í gegnum samfélags­miðla. Dæmigert hefði verið að sú deild „verði fjölda klukku­stunda í vinnu með sendi­herranum fyrr­verandi til þess að framleiða eina færslu á samfélags­miðlum.“

40 prentarar fyrir 43 skrifborð

Það kennir ýmissa grasa í þessari skýrslu innra eftirlitsins og meðal annars segir frá því að mannauðs­fulltrúi sendi­ráðsins hafi verið gjör­samlega á haus í sínu starfi, aðallega vegna þeirrar byrði sem fylgdi því að sýsla með mannauðsmál öryggis­varða sendi­ráðsins.

Mat sendi­ráðsins var það að 60 prósent af vinnutíma mannauðs­fulltrúans færi í umsýslu vegna starfa þeirra 30 öryggis­varða sem starfa hjá sendi­ráðinu, en þeir eru ráðnir beint til starfa hjá sendi­ráðinu hér á landi og hafa verið frá árinu 2004, í stað þess að störfunum þeirra sé útvistað.

Við flutning sendi­ráðsins í nýja og rammgerða byggingu að Engja­teigi á síðasta ári fjölgaði öryggis­vörðunum um helming – og með því jókst álagið á mannauðs­fulltrúann, sem hafði lítinn tíma til að sinna öðrum starfs­skyldum sínum.

Einnig segir frá því í skýrslunni að sendi­ráðinu hafi láðst að láta gera úttekt á jarð­skjálfta­þoli 11 af 15 þeirra bygginga þar sem sendi­ráðið leigir í dag íbúðir undir starfs­menn sína. Samkvæmt ábendingu innra eftirlitsins þarf að kalla burðarþols­verkfræðing til verksins.

Innra eftir­litið hnýtir einnig í það sem kallað er „óhófleg notkun einka­prentara“, en í útttekt þess kom í ljós að sendi­ráðið væri með 40 prentara í notkun, fyrir einungis 43 skrifborð – nánast prentari á hvert borð. Staðlar bandarísku utan­ríkis­þjónustunnar kveða nefnilega á um að einungis eigi að vera einka­prentarar á borðum þeirra sem hafi knýjandi þörf á slíkum, en að öðru leyti skuli nota sameiginlega prentara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár