Efling slítur viðræðum – Verkfallsundirbúningur hefst

Ekki náð­ist saman í kjara­við­ræðum milli Eflingar stétt­ar­fé­lags og Samtaka atvinnu­lífs­ins. Samn­inga­nefnd Eflingar sleit við­ræð­unum í dag eftir að Samtök atvinnu­lífs­ins hafn­aði til­boði þeirra frá því á sunnu­dags­kvöld.

Verkfall framundan
Verkfall framundan Samn­inga­nefnd Eflingar sleit kjara­við­ræðum við SA í dag. Mynd: Efling

Samn­inga­nefnd Eflingar ákvað í hádeg­inu að slíta við­ræðum sínum við Samtök atvinnu­lífs­ins. Næstu skref eru að und­ir­búa verk­falls­að­gerðir.

Efling sendi Samtökum atvinnu­lífs­ins til­boð að kvöldi sunnu­dags­ins síð­asta upp á kjara­samn­ing til fimmtán mán­aða. Í sam­tali við Stundina í gær lýsti Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, því að myndu við­semj­endur stétt­ar­fé­lags­ins hafna því til­boði sem grund­velli áfram­hald­andi við­ræðna liti Efling svo á að við­ræður væru árang­urs­lausar og því myndi und­ir­bún­ingur verk­falls­að­gerða hefj­ast, ef svo yrði.

Ljóst er að ekki hefur gengið saman með samn­ings­að­ilum á fundi hjá rík­is­sátta­semj­ara í morgun. Stundin hefur reynt að ná tali af Sólveigu Önnu en ekki haft árangur sem erf­iði. Þá var Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, upp­tek­inn þegar Stundin náði tali af honum.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Maðurinn með fimm milljónit á mánuði dregur ekki fólk í dilka, þeir sem sjá ekki í gegnum þennan frasa hjá honum eru að mínu viti blindir á réttlæti.
    Ég styð Eflingu heilshugar. Tek það sérstaklega fram að mig hefur aldrei skort fé fyrir næstu máltíð.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaradeila Eflingar og SA

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár