Yfirvöld í Þýskalandi heita fundarlaunum vegna eftirlýsts manns

Embætti ríkis­saksóknara í Þýska­landi birti í dag nafn manns frá Túnis sem leitað er vegna árásarinnar í Berlín í fyrradag, þegar flutninga­bifreið var ekið inn í mannmergð á jóla­markaði. Tólf létu lífið og 48 særðust, þar af margir alvarlega.

Einnig var heitið peninga­upphæð, 100 þúsund evrum, fyrir upplýsingar sem leiða til handtöku mannsins.

Samkvæmt tilkynningu frá saksóknara­embættinu heitir maðurinn Anis Amri og er tuttugu og fjögurra ára. Hann er talinn geta verið hættu­legur og vopnaður.

Greint var frá því fyrr í dag að skilríki mannsins hefðu fundist í flutninga­bifreiðinni sem notuð var í árásinni á jóla­markaðinn. Yfirvöld í Þýska­landi voru búin að fylgjast með manninum og skiptast á upplýsingum um hann á þessu ári, vegna gruns um áform um hryðju­verk.

Maðurinn hefur dvalið í Þýska­landi undan­farna mánuði en kom til Ítalíu frá Túnis árið 2011 og bjó þar í þrjú ár, áður en hann fór til Þýska­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár