Netflix vex og vex

Nýjustu tölur frá Netflix komu fjár­festum á óvart og jókst markaðs­virði félagsins um fjögur prósent í dag.

Netflix kom fjár­festum í opna skjöldu í dag með nýjum tölum sem sýndu mikinn vöxt áskrifenda. Þeir eru nú orðnir tæplega 140 milljónir um allan heim.

Tæplega sjö milljónir áskrifenda bættust við frá júlí og fram til loka september, að því er segir í umfjöllun Wall Street Journal.

Markaðs­virði félagsins hefur aukist ævintýra­lega á undan­förnum árum, en það er nú tæplega 160 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 20 þúsund milljörðum króna.

Netflix hyggst halda áfram miklum vexti þegar kemur að fram­leiðslu á sjónvarps­þáttum og kvik­myndum, en í heild verður vöxturinn meira en 4 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 500 milljörðum króna, á þessu ári. Það þýðir að Netflix er nú farið að nálgast umfang fram­leiðslunnar hjá Amazon og HBO, helstu keppinautunum þegar kemur að efnis­veitum.

Netflix var upphaf­lega stofnað árið 1997 hefur hin síðari ár, vaxið hratt eftir að fyrir­tækið hóf að sækja á alþjóða­markað með einfalda vöru; áskrift að efnis­veitu á netinu, þar sem finna má fjöl­breytt sjónvarps­efni.

Eitt vinsælasta efnið sem Netflix hefur framleitt eru þættir um fíkniefna­stríðið í Kolumbíu, Narcos. Fjórða sería er nú væntanleg, 17. nóvember.

Tugþúsundir áskrifenda efnis­veitunnar eru á Íslandi, en kannanir hafa sýnt að allt að 80 þúsund séu með áskrift af Netflix.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár