Áslaug Arna líkar við Loga sem segist saklaus af ásökunum

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra og fyrr­verandi dómsmála­ráðherra, er gagnrýnd fyrir að láta sér líka við yfir­lýsingu sem fjölmiðla­maðurinn Logi Bergmann Eiðsson birti á Facebook í kvöld. Þar er hann að bera af sér sakir um að hafa brotið á ungri konu.

Ráðherrann
Ráð­herr­ann Áslaug Arna sætir nú gagn­rýni vegna stuðn­ings við yfir­lýs­ingu Loga. Mynd: Stundin / JIS

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, fyrr­verandi dómsmála­ráðherra og núverandi vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra, hefur í kvöld verið gagnrýnd fyrir að láta sér líka við yfir­lýsingu fjölmiðla­mannsins Loga Bergmanns Eiðssonar á Facebook.

Sagðist ætla að bera ábyrgð

Skjáskot af sam­skiptum Vítalía birti sam­tal við Loga þar sem hann sagði að hann tæki ábyrgð á því sem gerð­ist.

Í yfir­lýsingunni segist Logi saklaus af því að hafa brotið á ungri konu á síðasta ári í golfferð. Hann viðurkenndi þó að hafa farið yfir mörk í einkalífi fólks „með því að fara inn í herbergi sem ég átti ekki að fara inn í.“ Segir hann það hafa verið mistök sem hann vilji axla ábyrgð á. Áður hafði konan, Vítalía Lazareva, 24 ára, birt skjáskot af samskiptum við Loga á samfélags­miðlum þar sem hann er spurður hvort hann axli ábyrgð á því sem gerðist og hann svarar því …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Jú, Sjálfstæðisflokkurinn er afar kynferðislegur flokkur, ef ekki hreinlega kynóður. Hvergi þrífast nýfrjáshyggja, trumpismi, pervertismi, úrkynjun og óeðli betur en innan vébanda þessara skipulögðu glæpasamtaka.
    Nú er mál að linni og Sjálfstæðisflokkurinn verði leystur upp.
    0
  • Sveinn Hansson skrifaði
    „Ég tók bara afstöðu með því að styðja þær vinkonur mínar og þolendur sem hafa stigið fram í að segja sína sögu,“ sagði hún við Vísi.

    Já auðvitað, Vítalía er ekki vinkona hennar og með erlent nafn þar að auki !!!!!!!!
    Afutur á móti eru Logi og Svanhildur vinir hennar !!!!
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Auðvitað er Logi alsaklaus. Það skilja allir :-)

    Meira að segja Áslaug Arna :-) :-) :-)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár