Þolinmæðin gegn hörðum aðgerðum þrotin

Þórólfur Guðnason sóttvarnar­læknir segir það stjórn­valda að taka ákvörðun um hvort þau séu tilbúin að grípa til harða aðgerða til að kveða Covid-bylgjuna niður eða ekki. Víðir Reynisson segir að almanna­varnir finni mjög skýrt að þolinmæðin gegn hörðum sótt­varnar­aðgerðum sé þrotin hjá mjög mörgum.

Stjórnvalda að ákveða aðgerðir
Stjórn­valda að ákveða aðgerðir Þórólfur sagði að stjórn­völd yrði að taka ákvörðun um hvort þau grípi til harðra aðgerða til að kveða niður yfir­stand­andi Covid-19 bylgju eða ekki. Mynd: Heiða Helgadóttir

Útbreiðsla kórónu­veirunnar í samfélaginu er orðin mikil og eftir því sem tíminn líður verður erfiðara að ná utan um bylgju faraldursins og kveða hana niður. Það er stjórn­valda að taka ákvörðun um til hvort þau séu tilbúin að grípa til harðra aðgerða til að svo megi verða.

Þetta sagði Þórólfur Guðnason á upplýsinga­fundi almanna­varna og land­læknis­embættisins í dag. „Ég held að það sé fyllsta ástæða til að hafa áhyggjur af þessari þróun sem við erum að sjá og þá sérstak­lega því álagi sem getur skapast á heilbrigðis­kerfið okkar,“ sagði Þórólfur. Hann sagðist jafnframt vera í stöðugum samskiptum við heilbrigðis­ráðherra, formlegum og óformlegum. „Ég held að það sé komið að því að stjórn­völd þurfa að huga vel að því til hvaða aðgera eigi að grípa. Það er ekki víst að ég á þessum tíma­punkti leggi til einhverja ákveðnar aðgerðir. Við erum búin að ganga í gegnum þetta margoft, með þeim aðgerðum sem við höfum gripið til, og við vitum hvað virkar og hvað ekki. Ég held að það sé núna stjórn­valda að taka ákvörðun um það, að gefnu áhættu­mati og útliti, hvort stjórn­völd eru tilbúin til að grípa til harða aðgerða til að kveða bylgjuna hérna niður eða ekki.“

„Ég held að það sé núna stjórn­valda að taka ákvörðun um það, að gefnu áhættu­mati og útliti, hvort stjórn­völd eru til­búin til að grípa til harða aðgerða til að kveða bylgj­una hérna niður eða ekki“
Þórólfur Guðnason
sótt­varn­ar­læknir

Þórólfur lýsti því að honum þætti miður hvernig umræðan um Land­spítala, og þær áhyggjur sem stjórn­endur þar á bæ hefðu viðrað af álaginu sem á spítalanum væri, hefði verið síðustu daga. Máls­metandi fólk hefði þannig gert lítið úr þeim áhyggjum en enginn væri betur til þess fallin að meta stöðuna en spítalinn sjálfur. Spurður hvort hann hefði lýst þeirri skoðun sinni við stjórn­völd að styrkja þyrfti heilbrigðis­kerfið svaraði hann því til að það hefði hann margoft gert. Það yrði hins vegar ekki gert í einu hendingskasti. „Helsta ráðið til að vernda heilbrigðiskerifið og Land­spítalann, ef fram fer sem horfir að innlögnum fer að fjölga og alvarlegum veikindum, það er að reyna að minnka útbreiðsluna í samfélaginu. Það er sú leið sem við getum farið núna og gripið hraðast inn í.“

Hafa áhyggjur af afleiðingum helgarinnar

Hópa­mynd­anir helg­ar­innar áhyggju­efniVíðir segir að eftir eigi að koma í ljós hvaða áhrif hópa­mynd­anir um versl­un­ar­manna­helg­ina kunni að hafa.

Víðir Reynisson yfir­lögreglu­þjónn sagði að svo virtist sem verslunar­manna­helgin hefði gengið stór­áfallalaust fyrir sig. Engu að síður hefði verið mikill erill og mikið um hópa­myndanir og af því hefðu almanna­varnir áhyggjur, í ljósi þess hversu smit væru útbreidd í samfélaginu. Það ætti eftir að koma í ljós hvort að samkomur myndu hafa frekari áhrif á útbreiðslu veirunnar.  

Þórólfur benti á að Delta-afbrigði veirunna hefði því sem næst alveg tekið yfir hér á landi og ljóst væri að bólu­settir bæði smituðust og smituðu aðra. Útbreiðsla smits í landinu væri mjög hröð og raðgreiningar sýndu að uppruna flestra smitanna mætti rekja til hópa­myndunar, til að mynda á skemmtistöðum og hópferðum Íslendinga erlendis.

Í þessari bylgju kóróna­veiru­faraldursins hafa um 24 þurft að leggjast inn á sjúkrahús, af ríflega 1.470 smitum innanlands frá því í byrjun júlí. Það samsvarar um 1,6 prósentum en í fyrri bylgjum hefur hlutfall þeirra sem hafa þurft á sjúkrahús­innlögn að halda verið á bilinu 4 til 5 prósent. Um 70 prósent þeirra sem greinst hafa með veiruna frá 1. júlí hafa verið full­bólusettir og af þeim hefur 1 prósent þurft að leggjast inn á sjúkrahús. Hlutfall þeirra sem hafa veikst og þurft á sjúkrahús­innlögn að halda er hins vegar 2,4 prósent. Þórólfur sagði því ljóst að bólu­setning veitti vörn gegn alvarlegum veikindum en ekki væri vitað hversu góða vörn hún veitt til að mynda öldruðum og fólki með undir­liggjandi sjúkdóma.

„Þol­in­mæðin fyrir þess­ari veiru og fyrir þessum aðgerðum og þessu stóra verk­efni okkar er þrotin hjá mjög mörgum“
Víðir Reyn­is­son
yfir­lög­reglu­þjónn

Um 30 þúsund manns eldri en 16 ára eru nú óbólusettir og um 70 þúsund börn yngri en 16 ára. Stefnt er að því að bjóða börnum á aldrinum 12 til 15 ára bólu­setningu á næstu vikum og er unnið að útfærslu á því verkefni.

Boltinn hjá stjórnvöldum

Þórólfur var spurður hvort hann væri hræddur um að smit í samfélaginu væri orðið of útbreitt til að hægt yrði að ná því niður, nema með mjög hörðum viðbrögðum sem lítil stemning væri fyrir í samfélaginu. „Vissulega er rétt að eftir því sem tíminn líður og útbreiðslan verður meiri verður erfiðara að ná utan um þessa bylgju. Því fyrr sem gripið verður til aðgerða því betri árangur næst,“ sagði Þórólfur og bætti því við að þolið í samfélaginu gegn sótt­varnar­aðgerðum væri orðið minna en verið hefði. Því riði á að stjórn­völd tækju ákvörðun um hvernig halda skyldi áfram.

„Eins og Þórólfur nefndi þá finnum við það mjög skýrt að þolinmæðin fyrir þessari veiru og fyrir þessum aðgerðum og þessu stóra verkefni okkar er þrotin hjá mjög mörgum. Maður skilur það alveg en því miður er það þannig að við þurfum að halda áfram og það er ekkert annað í stöðunni. Við þurfum ekkert öll að vera sammála um allt en markmiðin okkar þurfa að vera skýr, og það sem meira er að hagsmunir okkar allra fara saman í því að við náum sem bestum tökum á þessari veiru, lifum með henni eins lengi og við þurfum því það er veiran sem er óvinurinnn en ekki við hvert annað. Það skiptir bara miklu máli að sýna mismunundi skoðunum hvers annars skilning, reyna að setja okkur í spor annarra og skilja hvað það er sem býr að baki. Fyrst og fremst þurfum við að vera almennilegt fólk og vera góð hvert við annað,“ sagði Víðir.

 

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár