Ísland nýtir sér stórveldakapphlaup Kína og Bandaríkjanna

Grund­vall­ar­stefnu­breyt­ing hefur átt sér stað hjá íslenskum stjórn­völdum gagn­vart Kína, að því er fram kemur í nýrri rannsókn um samskipti Íslands og Kína sem kynnt verður á morgun í Þjóð­minja­safninu.

Ísland sóttist eftir pólitísku og efnahags­legu skjóli Kína eftir hrun og notfærði sér aukinn áhuga stór­veldanna á Norðurslóðum og stað­setningu landsins í Norður-Atlantshafi til þess að efla samskipti við Kína á sínum tíma. Grundvallar­stefnu­breyting hefur hins vegar átt sér stað gagnvart Kína. Í dag nýtir Ísland sér stórvelda­kapphlaup Kína og Banda­ríkjanna í þeim tilgangi að reyna að tryggja landinu pólitískt og efnahagslegt skjól frá Banda­ríkjunum.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegri rannsókn sem Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmála­fræði við Háskóla Íslands og Snæfríður Gríms­dóttir aðjúnkt í kínverskum fræðum unnu að um samskipti Íslands og Kína á árunum 1995-2021.

Baldur og Snæfríður ræddu við Geir Sigurðsson prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands í nýjasta þætti Völundar­hússins, þáttum um utan­ríkisstefnu Íslands, um samskipti Íslands við Kína og niður­stöður skýrslunnar. Rann­sóknin verður kynnt á morgun, föstudag, á sérstakri málstofu sem hefst klukkan 12:00 í Þjóð­minja­safninu.

Íslenskir ráðamenn leituðu eftir skjóli kínverskra stjórnvalda eftir hrunið

Niður­stöður rann­sóknarinnar sýna að samskipti landanna megi greina í fjögur mismun­andi tímabil.

Fyrsta tímabilið er frá árinu 1995 til 2007 þegar ríkis­stjórnir Íslands og Kína stuðluðu markvisst að nánari samskiptum á milli ríkjanna. Tímabilið hófst með opnun sendiráðs Íslands í Peking árið 1995. Kína studdi umsókn Íslands að öryggis­ráði Sameinuðu þjóðanna. Ísland studdi við áheyrnar­aðild Kína að Norður­skauts­ráðinu og viðurkenndi Kína sem þróað markaðs­hagkerfi með undir­ritun vilja­yfir­lýsingar um að efla efnahagsleg tengsl landanna. Tíma­bilinu lauk með því að Kína og Ísland sammæltust um að kanna mögu­leikann á fríverslunar­samningi á milli ríkjanna.

Annað tímabilið hófst í kjölfar efnahags­hrunsins haustið 2008 þegar íslenskir ráðamenn leituðu eftir skjóli kínverskra stjórn­valda. Þá tók Kína ákvörðun um að veita Íslandi pólitískt skjól, þ.e.a.s. diplómatískan stuðning innan Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins og gerði gjaldmiðla­skipta­samning við Ísland árið 2010. Kína veitti Íslandi einnig efnahagslegt skjól með tilkomu Fríverslunar­samningsins árið 2013 sem tók gildi ári seinna. Samfélagsleg samskipti landanna fóru ört vaxandi á þessu tímabili. Löndin skrifuðu undir fjölmarga samstarfs­samninga. Þetta átti einkum og sér í lagi við rannsókna­samstarf eins og jarðhita­rannsóknir og rann­sóknir tengdum Norðurslóðum. Kína kom í fyrsta sinn að olíuleit á Norðurslóðum í gegnum íslensk stjórn­völd og fyrirtæki. Samvinna íslenskra háskóla við kínverska háskóla jókst. Konfúsíusar­stofnunin Norður­ljós var stofnuð við Háskóla Íslands. Með þessu var lagður grunnur að nánu pólitísku, efnahags­legu og samfélags­legu samstarfi. Segja má að pólitísk og efnahagsleg samskipti landanna hafi blómstrað á þessu tímabili. Það var einungis á einu sviði sem þau gerðu það ekki en Íslendingar reyndust tortryggnir í garð fjár­festinga Kínverja hér á landi og komu í veg fyrir landakaup Kínverja á Norð­austurlandi.

Nútíminn einkennist af varfærni íslenskra stjórnvalda í nálgun sinni gagnvart Kína

Þriðja tímabilið hófst um 2015 og stóð stutt yfir eða til um 2017. Á þessu skeiði hætti Ísland smám saman að leita eftir skjóli kínverskra stjórn­valda. Menningarleg tengsl takmörkuðust við afmarkaða hópa samfélagsins og voru mest á sviði bókmennta. Vísinda­samstarf takmarkaðist að miklum hluta við norðurslóða- og norðurljósa­rannsóknir þótt einka­fyrirtæki hefðu náð árangri í nýtingu jarðvarma í Kína. Pólitísk og efnahagsleg tengsl náðu aldrei flugi. Pólitísk samvinna færðist ekki í aukana, fríverslunar­samningurinn skilaði minni ávinningi en margir vonuðust eftir og litlar fjár­festingar voru milli landanna. Í samfélaginu mátti greina ákveðinn ótta við þau kínversku áhrif sem ákveðnir hópar töldu að nú væri orðin raunin hér á landi. Í rann­sókninni er sýnt fram á það að Kína veitti Íslandi aðeins takmarkað efnahagslegt skjól en að Íslandi hafi ekki hlotnast pólitískt skjól frá Kína.

Fjórða og síðasta tímabilið erum við nú að verða vitni að. Þetta tímabil einkennist af varfærni íslenskra stjórn­valda í nálgun sinni gagnvart Kína, stöðnun í samskiptum landanna og nú allra síðast vaxandi ágreiningi. Þetta tímabil hófst í tengslum við ákvörðun íslenskra stjórn­valda að taka ekki afstöðu til þess hvort þiggja ætti boð kínverskra stjórn­valda um þátttöku í Belti og Braut, sem er innviða- og fjár­festinga­verkefni kínverskra stjórn­valda. Í dag taka íslensk stjórn­völd mið af stefnu helstu banda­manna sinna, þ.e. Banda­ríkjanna, Bretlands og Norður­landanna, gagnvart Kína.

Áhugi Bandaríkjanna á Íslandi tilkominn vegna aukinna umsvifa Kína á norðurslóðum

Viðmælendur í Völundar­húsi utan­ríkismála ræða sín á milli þá staðreynd sem kemur fram í rann­sókninni að utan­ríkis­ráðherra hafi lagt fram drög að frumvarpi til laga í samráðs­gátt stjórn­valda um breytingu á varnarmála­lögum um að endur­skilgreina öryggis­svæði við Gunnólfs­víkur­fjall svo það nái yfir meirihluta Finna­fjarðar. Hagsmuna­aðilar hafi haft augastað á svæðinu fyrir uppbyggingu á stór­skipahöfn á norðurslóðum. Í þessu samhengi sé athyglis­vert að minnast á að árið 2020 sagði bandarískur aðmíráll í heimsókn sinni til Íslands að Banda­ríkin hefðu áhuga á að fjárfesta í öryggis­innviðum á Austur­landi. Auk þessa íhugi íslensk stjórn­völd að takmarka möguleika fjarskipta­fyrirtækja á Íslandi til samstarfs við kínverska fjarskipta­geirann. Íslendingar taki einnig þátt í refsiaðgerðum Evrópu­sambandsins gegn Kína sem settar voru á þessu ári.

Í þættinum kemur fram að aukinn áhugi Banda­ríkjanna á Íslandi sé fyrst og fremst tilkominn vegna aukinna umsvifa Kína á norðurslóðum og ótta um aukin samskipti Íslands og Kína, einkum á sviði efnahags­mála, en einnig vegna aukinna hernaðar­umsvifa Rússa á norðurslóðum. Ísland sé því að láta undan þrýstingi frá Banda­ríkjunum með því að beina sjónum sínum frá Peking og að Washington. En þetta sé velkomin breyting að mati sumra íslenskra ráðamenn sem beri þá von í brjósti að Ísland geti í fram­tíðinni notið efnahagslegt skjól frá Banda­ríkjunum.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spil­aranum hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár