Evrópuþingið gagnrýnir aðstæður í Hong Kong

Bæði yfirvöld í Hong Kong og Beijing hafa gagnrýnt Evrópu­þingið fyrir ályktunina og segja hana vera hræsni af hálfu þingsins.

Myndin er frá mótmælunum í Hong Kong í júní.
Myndin er frá mót­mæl­unum í Hong Kong í júní. Mynd: EPA

Evrópu­þingið hefur samþykkt ályktun um að kalla formlega eftir því að yfirvöld í Hong Kong dragi formlega til baka hin umdeildu fram­salslög í Hong Kong. South China Morning Post greinir frá.

Framsals­lögunum var frestað í júní í kjöl­far harðra fjölda­mót­mæla. Mót­mæl­endur töldu að lögin gætu auð­veldað fram­­sal á almennum borg­­urum Hong Kong til Kína og myndu gera kín­verskum stjórn­­völdum kleift að rétta yfir fólki á meg­in­landi Kína í stað fyrir í Hong Kong. Til harðra átaka kom á milli mótmælenda og lögreglu og þurftu fjölmargir að leita á sjúkrahús.

Stjórn­völd í Beijing segja ályktun Evrópu­þingsins vera fulla af fáfræði og fordómum. Með ályktuninni hvetur Evrópu­þingið yfirvöld í Hong Kong til að fella niður kærur gegn frið­samlegum mótmælendum og hvetur þau jafnframt til að koma á sjálf­stæðri rannsókn um lögreglu­ofbeldi. Ályktunin gagnrýnir enn fremur „stöðug og aukin afskipti Kína af innan­ríkismálum Hong Kong.“

Utan­ríkis­ráðuneyti Kína sendi frá sér tilkynningu þar sem evrópsku stjórn­mála­mennirnir voru sakaðir um hræsni þar sem hún beini fingrum og skipi yfir­völdum Hong Kong fyrir.

Eve Geddie, framkvæmda­stjóri Evrópu­deildar mann­réttinda­samtakanna Amnesty International, tók undir gagn­rýnina og sagði Evrópu­ríki sjálf þurfa að hætta að nota táragas og gúmmí­kúlur þar sem það gæti verið notað gegn frið­samlegum mótmælendum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár