Hundruð þúsunda mótmæla í Hong Kong

Mótmælendur hafa flykkst á götur Hong Kong síðustu daga til að mótmæla nýrri laga­setningu sem gæti leyft yfir­völdum Hong Kong að framselja fanga til Kína.

Myndin er frá mótmælunum í Hong Kong 2014
Myndin er frá mót­mæl­unum í Hong Kong 2014 Mynd: Flickr

Til átaka kom á milli lögreglu og mótmælenda í Hong Kong í dag. Mótmælin hafa staðið yfir í þó nokkra daga og standa yfir enn. Mótmælin náðu hámarki sunnu­daginn síðastliðinn þegar hundruðir þúsunda íbúa flykktust á götur Hong Kong.

Ástæða mótmælanna er ný laga­setning sem að sögn mótmælenda auðveldar framsal á almennum borgurum Hong Kong til Kína og auðveldi þar af leiðir kínverskum stjórn­völdum að rétta yfir fólki á megin­landi Kína í stað fyrir í Hong Kong.

Amnesty International hefur gagnrýnt framkomu lögreglu sem beitt hafa táragasi og gúmmí­kúlum á mótmælendur. Mótmælendur hafa þeytt grjóti í lögreglu og kveikt elda til að sýna óánægju sína.

Utan­ríkis­ráðherra Bretlands, Jeremy Hunt, hefur blandað sér í málið og þrýsti á yfirvöld Hong Kong að hlusta á mótmælendur.

Allt hófst með einum manni

Málið á upphaf sitt að rekja til máls í Taiwan árið 2018, þar sem maður að nafni Chan Tong-Kai var sakaður um að hafa myrt kærustu sína, að því er kemur fram í frétt South China Morning Post. Chan flúði til Hong Kong og var hand­tekinn í kjölfarið. Ekki var þó hægt að senda hann til Taiwan þar sem ekki ríkir samningur á milli ríkjanna um flutning fanga.

Því brugðust yfirvöld Hong Kong við með því að leggja fram laga­setningu sem leyfir stjórn­völdum Hong Kong að flytja fanga til annarra ríka, þó að ekki liggi fyrir samningur um flutning fanga.

Mótmælendur óttast að myndist lagaleg glufa þegar fangar séu fluttir til Taiwan, vegna þess að Kína gerir tilkall til eyjarinnar. Málið er svo umdeilt að til líkamlegra átaka kom í löggjafar­ráði Hong Kong.

Ekki allir á einu máli um lagasetninguna

Carrie Lam, leiðtogi yfirvalda í Hong Kong, sagði að mótmælin vera skipulagðar óeirðir. Enn fremur hafa hátt­settir embættis­menn sagt að yfirvöld Hong Kong muni hafa loka­úrslit um hvort og þá hvenær fangar verði fram­seldir. Þá verði ekki hægt að framselja pólitíska fanga.

Regnhlífamótmælin skýrt í minni

Nú eru liðin 5 ár frá Regnhlífa­mótmælunum 2014. Þau mótmæli hófust vegna áhyggja af því að kínversk stjórn­völd hefðu of mikil áhrif á hver gæti boðið sig fram til kosninga í Hong Kong.

Mótmælendur flykktust líkt og nú í þúsundum talið á götur Hong Kong og kröfðust sjálf­ræðis og höfnuðu afskiptum kínverskra stjórn­valda.

Hægt er að fylgjast með framgangi mála núverandi mótmæla á Twitter undir merkinu #ExtraditionBill

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár