Bjarni tók upp hanskann fyrir almenningssamgöngur

Fjármála- og efnahags­ráðherra sagði á þingi á dögunum að honum þætti formaður Miðflokkins tala um almennings­samgöngur eins og þær skiptu engu máli. „Ég er ekki sammála því,“ sagði Bjarni.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á þinginu í síðustu viku.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra á þing­inu í síð­ustu viku. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahags­ráðherra tók upp hanskann fyrir fjár­festingar ríkisins í almennings­samgöngum, í kjölfar þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins gagnrýndi sérstak­lega fjár­veitingar til félagsins Betri samgangna í umræðum í þinginu í síðustu viku.

Fram kom í máli fjármála­ráðherra að honum þætti Sigmundur Davíð tala eins og skilvirkar almennings­samgöngur skiptu engu máli og sagðist Bjarni ekki sammála því.

Sigmundur Davíð sagði í ræðustól Alþingis, í óundirbúinni fyrir­spurn, að ríkis­stjórnin væri að „eyða peningum í alls konar vitleysu“ og tiltók í þeim efnum sér í lagi 900 milljóna króna aukin framlög til opinbera hluta­félagsins Betri samgangna, sem lögð voru til á milli umræðna í fjárlaga­vinnunni sökum þess að ekki kemur til álagningar svokallaðra flýti- og umferðar­gjalda á árinu 2023.

Formaður Miðflokksins lagði upp með það í ræðum sínum að nafn félagsins væri rangnefni, þar sem starfsemi þess snerist „um það að þrengja að samgöngum í borginni“ og sagði kostulegt að ríkið færi „að borga milljarð í að halda gangandi einhverju batteríi um að þrengja að samgöngum á höfuð­borgar­svæðinu vegna þess að ríkið hafi vanrækt að leggja ný gjöld á almenning“.

Vel hægt að réttlæta umtalsverða fjárfestingu

Bjarni steig í pontu og svaraði þeim aðfinnslum sem Sigmundur Davíð setti fram með þeim orðum að honum þætti formaður Miðflokksins „tala um almennings­samgöngur eins og þær séu einskis virði og það skipti engu máli að þær séu skilvirkar og virki hér fyrir höfuð­borgarbúa“.

„Ég er ekki sammála því,“ sagði Bjarni og bætti við að hann væri þeirrar skoðunar „að það sé vel hægt að réttlæta talsverða fjár­festingu eins og við höfum ákveðið í höfuðborgar­sáttmálanum til þess, samhliða vega­framkvæmdum fyrir bíla, að hér verði byggt upp nútímalegt og skilvirkt almennings­samgöngu­kerfi, alvöru­kerfi“.

Með gerð samgöngu­sáttmála höfuð­borgar­svæðisins var ákveðið að leggja 120 milljarða króna í bætta samgöngu­innviði á höfuð­borgar­svæðinu fram til ársins 2033.

Þar af var áformað að 52,2 milljarðar færu í stofn­vega­framkvæmdir, 49,6 milljarðar króna í Borgar­línu, 8,2 milljarðar í göngu- og hjóla­stíga og 7,2 milljarðar í bætta umferðar­stýringu og sértækar öryggis­aðgerðir. Þessar upphæðir voru á verðlagi ársins 2019.

Frumvarp ráðherra um umferðargjöld nú áformað í mars

Eins og Kjarninn sagði frá í liðinni viku eru það tafir sem orðið hafa á áformum um að leggja svokölluð flýti- og umferðar­gjöld á umferð á höfuð­borgar­svæðinu sem skýra aukin framlög ríkisins til Betri samgangna á næsta ári.

Ekki er búið að útfæra þessi nýju gjöld og ekki er heimild fyrir þeim í lögum sem stendur, en fjármála­ráðherra áformar á þessum þingvetri að leggja fram frumvarp um flýti- og umferðar­gjöldin. Áður var gert ráð fyrir því að frum­varpið liti dagsins ljós í nóvember en nú er áformað að það verði lagt fram í mars.

„Með frum­varpinu er lagt til að tekið verði upp nýtt fyrir­komulag gjaldtöku í formi flýti- og umferðar­gjalda á höfuð­borgar­svæðinu með gildis­töku hinn 1. janúar 2024. Markmið frum­varpsins er að standa straum af stofn­framkvæmdum samgöngu­mannvirkja, fjár­mögnun og afleiddum kostnaði slíkrar uppbyggingar. Gjöldunum er ætlað að tryggja nauðsyn­lega fjár­mögnun um leið og þeim er ætlað að stuðla að því að markmiðum Samgöngu­sáttmála ríkis og sex sveitar­félaga á höfuð­borgar­svæðinu verði náð,“ segir í þing­málaskrá ríkis­stjórnarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár