Vísar 2 til 3 milljónum úr landi um leið og hann tekur við embætti

Donald Trump var í viðtali við 60 mínútur. Það er fyrsta sjónvarpsviðtalið sem hann gefur eftir að hann var kjörinn forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump var í við­tali við 60 mín­útur. Það er fyrsta sjón­varps­við­talið sem hann gefur eftir að hann var kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Donald Trump ætlar að víkja tveimur til þremur milljónum óskráðra innflytjenda í Banda­ríkjunum úr landi „um leið“ og hann kemst til valda 20. janúar næst­komandi. Þetta er haft eftir honum í frétta­þættinum 60 mínútum.

„Það sem við ætlum að gera er að vísa úr landi fólki sem eru glæpamenn, eru á sakaskrá, eru gengja­meðlimir, eru eiturlyfja­salar; þetta eru örugglega tvær milljónir – gætu jafnvel verið þrjár milljónir – við ætlum að vísa þeim úr landi og við ætlum að hreppa þau í varðhald,“ er haft eftir Trump.

Frá þessu er meðal annars greint á vef breska dagblaðsins The Independent. Þetta er fyrsta sjónvarps­viðtalið sem Donald Trump veitir eftir að hann var kjörinn forseti Banda­ríkjanna á þriðjudaginn. Hann hafði lofað að beita sér í innflytjenda­málum og meðal annars banna múslimum að búa í Banda­ríkjunum, flytja alla Mexíkóa úr landi; allt fólk sem hann sagði vera glæpamenn.

Spurður hvort hann ætli enn að byggja vegg eftir öllum syðri landa­mærum Banda­ríkjanna svarði Trump einfald­lega: „Já.“

Lesa nánar: Hefur Trump kastað af sér úlfsfeldinum?

Paul Ryan, forseti bandaríska þingsins, hafði áður sagt að Donald Trump hefði ekki gert neinar áætlanir um að standa við loforð um brott­flutning innflytjenda frá Banda­ríkjunum. Þetta virðist því vera enn ein U-beyjan í stefnu Trump og Repúblikana.

Fjöldi fólks hefur mótmælt kjöri Trumps í stærstu borgum Banda­ríkjanna öll kvöld síðan ljóst var að hann yrði kjörinn á miðvikudag. Fólkið er ekki síst að mótmæla því sem Trump hefur lofað. Trump hefur til að mynda lofað því að gera arfleifð Baracks Obama að engu, með því að kasta heilbrigðis­kerfi Obama út um gluggan og afnema allar skuld­bindingar Banda­ríkjanna í Parísar­samningnum um lofts­lagsmál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár