Snérist Donald Trump á punktinum?

Donald Trump hefur hegðað sér allt öðru­vísi eftir að hann náði kjöri á þriðju­dag­inn en í kosn­inga­bar­átt­unni. Hefur þessi ofstækiskall blíð­ari mann að geyma?

Donald Trump hefur viðrað umdeildar skoðanir um nánast allt. Svo birtist hann, nýkjörinn forseti, og flutti jarðbundna ræðu.
Donald Trump hefur viðrað umdeildar skoð­anir um nán­ast allt. Svo birt­ist hann, nýkjör­inn for­seti, og flutti jarð­bundna ræðu. Mynd: EPA

Það er annar Donald Trump sem mætir augliti fólks núna eftir að hann hefur náð kjöri sem for­seti Banda­ríkj­anna en áður en úrslitin urðu ljós. Sem fram­bjóð­andi Repúblikana­flokks­ins háði Trump lág­kúru­lega kosn­inga­bar­áttu sem rakin var með gíf­ur­yrðum og bulli um allt milli him­ins og jarðar.

Hann ætl­aði að gera arf­leið Barack Obama sem for­seta að engu með því að afnema allar þær til­skip­anir sem sitj­andi for­seti hefur skrifað undir. Þar á meðal er sjúkra­trygg­inga­kerfið sem jafnan er kallað Obamacare og kjarn­orku­sam­komu­lagið við Íran. Auk þess­ara mála stendur Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn um lofts­lags­mál á brauð­fótum því Donald Trump hefur lýst því yfir að hann trúi ekki á að lofts­lags­breyt­ingar séu að eiga sér stað.

[adspot]

Nú hefur verð­andi for­seti hins vegar kastað af sér úlfs­feld­inum – í það minnsta að hluta til – og talar nú á jarð­bund­inn hátt um menn og mál­efni. Fyrir kosn­ingar átti mót­fram­bjóð­andi hans Hillary Clinton heima í fang­elsi en núna, hrósar hann henni fyrir dugnað í sinn og seg­ist geta ímynda sér að leita ráða hjá eig­in­manni hennar og fyrr­ver­andi for­seta Bill Clinton. Skemmst er að minn­ast þess að í kapp­ræðum fyrir kosn­ingar úthróp­aði Donald Trump eig­in­mann Hillary Clinton sem nauð­gara og rak upp saumana á gömlum sárum á ferli Bills.

Það eru hins vegar vís­bend­ingar um að Donald Trump hafi í hyggju að standa við mörg lof­orð sín.

Kjöri Trump hefur víða verið mót­mælt í borgum bæði við austur- og vest­ur­strönd­ina. Mót­mæl­endur hafa sum staðar heitið því að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að stefnu­mál Trump verði ekki að veru­leika. „Donald Trump er að fara að stuðla að því að rústum Ameríku,“ sagði einn mót­mæl­andi í sam­tali við Al-Jazeera. „Þetta kerfi er klár­lega ekki að virka og við þurfum að gera eitt­hvað öðru­vísi,“ sagði hún og veif­aði skilti sem á stóð „#NoMor­ePres­ident“.

Keppast við að tryggja mikilvæg mál

John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, lét hafa eftir sér í opin­berri heim­sókn í Nýja Sjálandi að nú væri allt kapp lagt á það í rík­is­stjórn Barack Obama að tryggja aðild Banda­ríkj­anna að lofts­lags­samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna þó Donald Trump verði for­seti.

Við und­ir­skrift sam­þykktu Banda­ríkin að þau væru skuld­bundin í fjögur ár til að fylgja sam­þykktum samn­ings­ins. Samkvæmt frétta­stofu Reuters leita ráð­gjafar Donalds Trump nú leiða til þess að kom­ast hjá því að þurfa að upp­fylla skil­yrðin í þessi fjögur ár.

John Kerry vildi ekki velta vöngum um hvað Trump hygð­ist gera með Par­ís­ar­samn­ing­inn. Hann lagði hins vegar áherslu á skoðun sína um að lofts­lags­málin ættu að vera í fyr­ir­rúmi hjá nýrri rík­is­stjórn. „Vís­bend­ing­arnar eru orðnar svo margar að fólk í opin­bera geir­anum ætti ekki að voga sér að reyna að kom­ast hjá aðgerðum,“ sagði Kerry.

„Þar til 20. jan­úar, þegar núver­andi rík­is­stjórn fer frá, munum við leggja allt kapp á að upp­fylla skyldur okkar gagn­vart fram­tíð­ar­kyn­slóðum svo þær geti mætt þessum ógnum við sjálfu líf­inu á plánet­unni.“

Emb­ætt­is­menn Baracks Obama kepp­ast einnig við að festa í sessi banka­reglur áður en Trump tekur við emb­ætti for­seta. Trump hefur einnig lofað að skrifa reglur um fjár­mála­geir­ann upp á nýtt.

Nú kveður við annan tón

Önnur ríki heims og alþjóða­sam­fé­lagið hafa einnig verið að taka örlítið við sér á þeim dögum sem liðnir eru frá kjöri Donalds Trump. Á mið­viku­dag virt­ist heim­ur­inn ein­fald­lega vera í losti; for­svars­menn stofn­anna og leið­togar ríkja gerðu það sem allir venju­legir emb­ætt­is­menn gera venju­lega og ósk­uðu nýkjörnum for­seta til ham­ingju með kjörið og sögð­ust hlakka til að vinna með honum.

Einn þeirra var Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, sem sagði að hann hlakk­aði til að vinna með nýjum for­seta Banda­ríkj­anna í að mæta ögrandi nýju heims­ör­ygg­is­á­standi. Stol­ten­berg rit­aði grein í breska blaðið The Observer sem kom út í dag þar sem greina má aðeins beitt­ari tón.

„Það er ekki mögu­leiki í stöð­unni að ein­angra sig, hvorki fyrir Evrópu né Banda­ríkin,“ skrif­aði Stol­ten­berg. NATO er ein þeirra alþjóð­legu stofn­anna sem Trump hafði tjáð sig um og lýst yfir stefnu­breyt­ingu gagn­vart, yrði hann for­seti. Í grein­inni bendir Stol­ten­berg á að aðeins einu sinni hafi 5. grein sátt­mál­ans um NATO verið virkjuð. Það var þegar banda­lags­ríkin gripu til vopna eftir að ráð­ist var á Banda­ríkin 11. sept­em­ber 2001. NATO-ríkin hafa raunar staðið í ströngu vegna þeirra stríða sem Banda­ríkin efndu til sem við­bragð vegna árásanna í New York, bæði Afganistan og í Írak.

„Það var meira en tákrænt,“ skrifar Stol­ten­berg um virkjun fimmtu grein­ar­innar. „NATO tók í kjöl­farið yfir allan stríðs­rekstur í Afganistan. Hundruð þús­undir evr­ópskra her­manna hafa gengt her­þjón­ustu í Afganistan síðan. Og meira en þús­und þeirra hafa gjaldið það með lífi sínu; í verk­efni sem var beint svar við árás á Banda­ríkin.“

[adspot]

„Eðlilega erum við ólík ríki. En leið­togar beggja vegna Atl­ants­hafs­ins, og þvert á póli­tíska lit­rófið, hafa alltaf við­ur­kennt þær taugar sem binda okkur. Saga okkar er um sam­eig­in­leg vanda­mál sem við leystum í sam­ein­ingu,“ skrifar Stol­ten­berg.

Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra sagði í sam­tali við Kjarnann á mið­viku­dag að það væri ótíma­bært að lesa of mikið í orð­ræðu Donalds Trump í kosn­inga­bar­átt­unni. Hann hafði þá um morg­un­inn talað á allt öðrum nótum í sig­ur­ræðu sinni og fyrir heim­inum birt­ist þar allt annar maður en hafði rekið kosn­inga­bar­átt­una.

Trump lagði mikla áherslu á í kosn­­inga­bar­áttu sinni að aðild­­ar­­ríki NATO myndu, í hans valda­­tíð, leggja til þær fjár­­hæðir sem þær hafa skuld­bundið sig til að greiða til NATO. Ísland er meðal aðild­­ar­­ríkja NATO og er þar minnsta aðild­­ar­­ríkið og eina ríkið sem hefur ekki her. Ísland er meðal þeirra landa sem hefur ekki greitt að fullu þær fjár­­hæðir sem samn­ing­­ur­inn utan um Atl­ants­hafs­­banda­lagið gerir kröfu um.

„Það er nokkuð erfitt að ráða í hans stefnu; hann hefur ekki lagt til lista um hvað hann hygg­ist gera. Það verður farið betur yfir það og þess vegna er ótíma­bært að álykta neitt um þetta, fyrr en við sjáum hver verði þeirra utan­rík­is­ráð­herra og hver verði þeirra varn­ar­mála­ráð­herra,“ sagði Lilja á mið­viku­dag­inn.

Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá

Síðustu daga hefur kom­ist óskýr mynd á það hverjir það verða sem muni manna rík­is­stórn Donalds Trump og hverjir verða hans helstu ráð­gjafar í Hvíta hús­inu. Trump hefur sjálfur sagt að hann metur tryggð fram yfir allt annað svo trygg­asta sam­starfs­fólkið fær vænt­an­lega bestu emb­ættin. Hér eru fáeinir sam­verka­menn taldir til.

Fyrst ber að nefna Stephen K. Bannon, fram­kvæmda­stjóra kosn­inga­bar­átt­unnar og stjórn­anda Breibart News. Sá hefur rasískar skoð­anir; hefur skýra afstöðu gegn inn­flytj­endum og aðhyllist þjóð­ern­is­hyggju. Bannon varð að fall­byssu­fóðri fyrir kosn­inga­bar­áttu Hillary Clinton (þó það hafi ekki skilað miklu) vegna öfga­fullra skoð­ana. Bannon er einnig talin vera í hópi þeirra sem Trump íhugar að gera að starfs­manna­stjóra í Hvíta hús­inu.

Lou Barletta og Marsha Blackburn eru bæði kjörnir full­trúar og hafa stutt Trump lengi. Barletta hefur sam­þykkt hörð inn­flytj­enda­lög í Pensil­vaníu þar sem hann er þing­maður. Blackburn er þekkt­ust fyrir ofboðs­lega íhalds­samar skoð­anir sínar á hjóna­böndum sam­kyn­hneigðra og fóst­ur­eyð­ingum. Hún hefur einnig haldið því fram að lofts­lags­breyt­ingar séu bara plat og að and­rúms­loft jarðar sé raun­veru­lega að kólna.

Þá er talið að elstu börnin hans þrjú muni fá veiga­mikil verk­efni í stjórn­ar­tíð Trump. Þau munu til dæmis fá það verk­efni að reka við­skipta­veldi hans á meðan hann stjórnar Banda­ríkj­unum. Það þarf ekki að rekja í löngu máli hvernig það gæti stang­ast á við lög og reglur í Banda­ríkj­unum og hvernig risa­stórir hags­muna­á­rekstrar geta átt sér stað.

Þeir stjórn­mála­menn sem taldir eru lík­legir ráð­herrar í rík­is­stjórn Trumps eru full­trúar á borð við Söruh Palin, Chris Christie, Newt Gingrich og Rudy Giuliani. Vanalega hafa for­seta­efni verið löngu búin að útbúa lista yfir fólk sem það vill ráða í ráð­gjafa­stöður eða ráð­herra­emb­ætti áður en það nær kjöri. Frá því hefur verið greint að Hillary Clinton hafi verið búin að und­ir­búa þessa daga fram að emb­ætt­is­tök­unni 20. jan­úar 2017 vand­lega.

Kjör Donalds Trump viðrist því hafa komið jafn flatt upp á hann sjálfan og alla heims­byggð­ina. Enn er ómögu­legt að segja hvernig for­seti Donald Trump verður en ljóst af því fólki sem hann hefur raðað í kringum sig, og af því sem hann hefur látið út úr sér að hann verði íhalds­samur leið­togi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár