Forsendur brostnar og örlög lífskjarasamningsins ráðist 30. september

Forsendu­nefnd ASÍ og SA hefur komist að þeirri niður­stöðu að forsendur lífs­kjara­samningsins frá 2019 séu brostnar, hvað aðgerðir stjórn­valda varðar. Formaður VR segir að örlög samninganna muni ráðast á fundi samninga­nefnda ASÍ og SA 30. september.

Frá undirritun lífskjarasamningsins í apríl árið 2019.
Frá und­ir­ritun lífs­kjara­samn­ings­ins í apríl árið 2019. Mynd: ASÍ

Samninga­nefndir Alþýðu­sambands Íslands og Samtaka atvinnu­lífsins munu hittast á fundi fimmtudaginn 30. september, til þess að ræða um framhald lífs­kjara­samningsins. Forsendu­nefnd ASÍ og SA telur forsendur samningsins brostnar er kemur að þeim málum sem stjórn­völd hétu að beita sér fyrir er samningarnir voru undir­ritaður.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir við Kjarnann að hann hafi verið á fundi með samninga­nefnd ASÍ í dag, þar sem þessi niður­staða hafi verið formlega tilkynnt.

Hann segir að ríkis­stjórnin fari nú með það veganesti inn í kosningar að mögulega séu samningar á almennum vinnu­markaði í uppnámi og segir það ekki standast að ráðherrar kenni hægagangi í þinginu um að ákveðin mál hafi ekki verið kláruð.

„Verð­tryggingar­málin, því var bara haldið inni í fjármála­ráðuneytinu mánuðum saman,“ segir Ragnar Þór og nefnir að auki húsa­leigulög, starfs­kjaralög og lífeyrismál.

Hann býst við því að brátt muni verða gerð ítarlegri grein fyrir því hvað ASÍ telur nákvæmlega standa út af hvað efndir stjórn­valda varðar.

Flest aðildarfélög ASÍ muni vilja verja samninginn

Spurður um fram­haldið segir Ragnar Þór að nú þurfi samninga­nefndir ASÍ og SA að hittast til þess að fara yfir stöðuna og það verði gert 30. september, sem áður segir, eða einungis fimm dögum eftir að kosið verður til Alþingis.

„Við munum að sjálfsögðu reyna að verja samningana og ég held að flest aðildar­félög ASÍ muni verja samninginn eins og kostur er,“ segir formaður VR.

Lífs­kjara­samningarnir eiga að vera í gildi á almennum vinnu­markaði þar til í október árið 2022, en Ragnar segir að þeir gætu losnað um næstu mánaðarmót ef annar aðilinn við samninga­borðið tekur ákvörðun um að segja þeim upp.

„Það er ekki drauma­staðan til að lenda í svona eftir COVID, að fá allt upp í loft á almennum vinnu­markaði,“ segir Ragnar Þór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár