May krefst skýringa frá Trump á leka leyniþjónustunnar

Myndir og gögn sem tengjast sprengju­árásinni í Manchester láku frá leyni­þjónustu­aðilum Banda­ríkjanna.

Theresa May, forsætis­ráðherra Bretlands, ætlar að krefja Donald Trump Bandaríkja­forseta skýringa á því hvers vegna myndi og gögn úr rann­sókninni á sprengingunni í Manchester láku til fjölmiðla þar í landi. Hún hyggst taka málið upp við Trump á leiðtoga­fundi NATO ríkja í Brussel á morgun.

Myndir af sprengjunni sem notuð var í hryðjuverka­árásinni í Manchester í byrjun vikunnar birtist í bandarískum fjöl­miðlum í dag, meðal annars í New York TImes.

Bresk yfirvöld eru í fjöl­miðlum í Bretland sögð æf vegna lekans, enda rann­sóknin á viðkvæmu stigi. 22 létust í sprengingunni í Manchester Arena og 64 slösuðust, en um sjálfsmorðs­árás var að ræða. Sjö hafa verið handtekinir, en talið er að ódæðis­maðurinn, Salman Abedi, hafi ekki verið einn að verki við skipulagningu á glæpnum.

Borgar­stjórinn í Manchester, Andy Burnham, hefur þegar komið áhyggjum sínum vegna upplýsinga­leika Bandaríkja­manna til sendi­herra Banda­ríkjanna í Bretlandi, en meðal þess sem birtist í fjöl­miðlum í Bana­ríkjunum voru myndir af spreng­unni sem notuð var, og fleiri myndir af vettvangi.

Að sögn breska ríkis­útvarpsins BBC leggja stjórn­völd í Bretlandi allt kapp á að flýta rann­sókninni sem mest og tryggja öryggi borgarana. Ennþá er viðbúnaðar­stig hátt í Bretlandi og fimm þúsund manna herlið til taks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár