Blekkingarleikur á loftslagsráðstefnu

Jafnvel þó að staðið yrði við háleit markmið nýaf­stað­innar loftslags­ráðstefnu myndi það ekki duga til að koma í veg fyrir hamfarir af völdum loftslags­breytinga. Nýjar rann­sóknir sýna að mannkynið er að tapa kapp­hlaupi við tímann og óafturkræfar breytingar eru þegar að eiga sér stað. Keðju­verkandi áhrif gera útlitið enn svartara.

Loftslags­ráðstefna Sameinuðu þjóðanna var haldin í tuttugasta og sjötta sinn í Glasgow á dögunum. 40 þúsund gestir komu fljúgandi frá öllum heims­hornum, þar á meðal 120 þjóðar­leiðtogar. Það vakti athygli að lang­stærsta sendi­nefndin var á vegum olíu­fram­leiðenda, en þeir sendu meira en fimm hundruð fulltrúa til að gæta sinna hagsmuna á ráðstefnunni. Þar að auki voru fulltrúar slíkra fyrir­tækja hafðir með í sendi­nefndum 27 ríkja, Rússar og Kanada­menn voru meðal þeirra sem sendu beinlínis útsendara olíu­iðnaðarins fyrir sína hönd.

Umhverfis­verndar­samtökin Global Witness sendu frá sér yfir­lýsingu fyrir ráðstefnuna þar sem því var harðlega mótmælt að sjálfur olíu- og gasiðnaðurinn fengi svo fyrirferðar­mikið hlutverk. Talsmaður þeirra, Murray Worthy, sagði í viðtali við breska ríkis­útvarpið að það gæfi ekki mikla von um breytingar þegar samtalinu væri stýrt af slíkum hagsmuna­aðilum. 

„Þessi iðnaður hefur síðustu áratugi varið miklu púðri í að afneita vandanum og tefja allar alvöru aðgerðir sem gætu komið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár