Í þá tíð… Innlimun Austurríkis: Fyrsta fórnarlamb Hitlers?

Þýskaland innlimaði Austur­ríki árið 1938. Í kjölfarið fylgdi innrás í Tékkóslóvakíu og Pólland.

Mikil fagnaðarlæti mættu Adolf Hitler og hans mönnum er þeir óku inn í Vín eftir innlimunina.
Mikil fagn­að­ar­læti mættu Adolf Hitler og hans mönnum er þeir óku inn í Vín eftir inn­limun­ina.

Á þessum degi fyrir réttum 79 árum, hinn 12. mars árið 1938 var Austur­ríki innlimað í Þýskaland án nokkurrar teljandi mótspyrnu. Frétta­myndir þess tíma sýna mikil fagnaðar­læti almennings þegar Adolf Hitler ekur sigri hrósandi um götur Vínar­borgar eftir að hafa lagt undir sig fæðingar­land sitt. Eftir stríð var staða Austur­ríkismanna lævi blandin. Voru þeir sannarlega „fyrsta fórnar­lamb nasista“, eins og margir vildu vera láta?

Adolf Hitler fæddist í austurríska bænum Braunau am Inn (sem þá tilheyrði Austurrísk-Ungverska keisara­veldinu) rétt við landamæri Þýska­lands. Hann flutti ungur til Vínar og svo til Munchen rétt áður en fyrri heims­styrjöldin braust út og skráði sig í þýska herinn.

Eftir ósigur í stríðinu liðaðist Austur­ríki-Ungverja­land sundur og Austur­ríki var stofnað sem lýðræðis­ríki. Þar tókust hins vegar á tvö öfl, annars vegar íhalds­menn og hins vegar sósíal­istar. Fylkingarnar tókust á um árabil, en þeim átökum lauk með því að þeir fyrr­nefndu tóku öll völd í landinu í febrúar 1934 eftir nokkurra daga rimmu sem kölluð er „Austurríska borgara­styrjöldin“.

Afarkostir Hitlers

Stjórnartíð íhalds­manna fram að innlimuninni 1938 bar sterk merki fasisma, en þeir höfðu þó bannað starfsemi nasista­flokksins þar í landi árið 1933. Nasistar reyndu að steypa stjórn­völdum í Vín – með stuðningi þýskra stjórn­valda – um sumarið 1934, en höfðu ekki erindi sem erfiði. Uppreisninni var hrundið og þúsundir nasista voru hand­teknir.

Þegar kom fram á árið 1938 hafði Hitler þegar tekið stjórnina í Saarlandi og Rínar­löndum og hafði hug á að bæta enn við landsvæði Þýska­lands. Hann kallaði kanslara Austur­ríkis, Kurt von Schuschnigg, því til fundar við sig í Arnar­hreiðrinu svokallaða, afdrepi sínu í Berechtsgaden hinn 12. febrúar það ár.

Þar beið Hitler ekki boðanna og hellti sér yfir von Schuschnigg vegna meintra svika og ósamvinnu­fýsi austurrískra stjórn­valda. Lagði hann þar fram kröfur um að allir nasistar yrðu látnir lausir úr austurrískum fangelsum, nasista­flokkurinn yrði leyfður á ný og stækur nasisti yrði settur í embætti innan­ríkis­ráðherra með fulla stjórn yfir lögreglunni. Auk þess skyldi stríðs­mála­ráðuneytið og fjármála­ráðuneytið verða sett undir stjórn nasista.

Þessar kröfur voru óumsemjanlegar og Hitler gaf skilmerki­lega í ljós að ef ekki yrði gengið að þeim myndi þýski herinn þramma inn í Austur­ríki og taka þar stjórnina.

Von Schuschnigg taldi sig ekki geta annað en skrifað undir skilmálana, en aðeins eftir að hafa fengið fullvissu um að fullveldi Austur­ríkis yrði virt.

Innrásin fyrirsjáanlega

Eftir að nasistum hafði verið sleppt úr haldi hófu þeir umsvifa­laust að grafa undan stjórn­völdum og var mikill órói í landinu. Von Schuschnigg brást við með því að boða til þjóðar­atkvæða­greiðslu um hvort Austur­ríki ætti að halda sjálf­stæði sínu. Það hvatti Hitler til þess að bregðast skjótt við og hinn 12. mars rúllaði þýski herinn yfir landa­mærin undir því yfirskini að þýsk-ættaðir Austur­ríkismenn hefðu kallað eftir hjáp. Hitler kom við í fæðingarbæ sínum og lagði blómsveig að leiði foreldra sinna í Leonding á leið sinni til Vínar þar sem honum var fagnað eins og hetju tveimur dögum eftir innlimunina.

Hinn 10. apríl fór þjóðar­atkvæða­greiðslan svo fram og var innlimunin samþykkt með 99% atkvæða.

Ekki leið á löngu þar til að ofsóknir gegn gyðingum hófust af fullum krafti og Austur­ríki varð full­gildur hluti af Þriðja ríkinu. Sem dæmi um það má nefna að 800.000 Austur­ríkismenn börðust fyrir þýska herinn í Seinni heims­styrjöldinni og þá varð Rapid Wien þýskur meistari í fótbolta árið 1941.

Fram­haldið á vegferð Hitlers í Evrópu þarf ekki að fjölyrða um, enda brugðust Evrópu­ríki ekkert við útbreiðslu­stefnu hans, frekar en áður. Tékkóslóvakía var næst, og þá Pólland áður en Seinni heims­styrjöldin braust út.

Arfleifð innlimunar

Leiðtogar Banda­manna skilgreindu Austur­ríki árið 1943 sem „fyrsta fórnar­lamb útþenslu­stefnu Hitlers“, en sama ár hófust loft­árásir á skotmörk þar í landi. Austur­ríki var svo hertekið í apríl 1945, nokkrum dögum áður en Þýskaland gafst upp. Eftir stríð lýstu stjórn­völd í Austur­ríki því yfir að aðeins lítill hópur Austur­ríkismanna hafi sannarlega unnið með nasistum, en aðrir höfðu þjáðst og jafnvel veitt mótspyrnu.

Allar götur síðan hefur viðhorf almennings í Austur­ríkis á árunum undir stjórn nasista verið umdeilt. Sannarlega var mann­fagnaður á götum úti, en það voru að sjálfsögðu áróðurs­myndir sem voru ekki að skjal­festa undir­liggjandi kergju, og þjóðar­atkvæða­greiðslan var sömuleiðis lítt marktæk vegna hótana og annars konar misferlis.

Mál þessi komu upp á yfir­borðið með miklum krafti þegar Kurt Waldheim, fyrr­verandi aðal­ritari Sameinuðu þjóðanna, bauð sig fram til forseta Austur­ríkis árið 1986. Þá kom í ljós að hafði ekki einungis verið í þýska hernum á stríðs­árunum, heldur tekið virkan þátt í aðgerðum þar sem fjölda­morð voru framin á skæru­liðum á Balkans­kaga sem og þar sem gyðingar voru fluttir í útrýmingar­búðir.

Ekkert bendir til þess að Waldheim hafi sjálfur framið stríðs­glæpi, en eftir að hann var kjörinn forseti lokaði alþjóða­samfélagið á öll samskipti við hann.

Síðan þá hefur margt gerst í austurrískum stjórn­málum sem hefur orðið til þess að rifja upp þessa óþægilegu fortíð, ekki síst ákvarðanir almennra kjósenda sem hafa kosið flokka og fólk yst af hægri jaðri stjórn­málanna. Þar ber hæst Frelsis­flokkinn sem var meðal annars í ríkis­stjórn á árunum 2000 til 2007 og er enn þann dag í dag þriðji stærsti flokkurinn á þingi og hefur mælst stærstur í skoðana­könnunum í tæp tvö ár. Að ógleymdum fulltrúa flokksins, Norbert Hofer, sem tapaði forseta­kosningum í fyrra með örlitlum mun.

Fleiri markverðir atburðir 12. mars

1894

Coca Cola kemur á markaðinn í flöskum í fyrsta sinn.

1933

Franklin D. Roosevelt Bandaríkjaforseti ávarpar þjóð sína í fyrsta sinn í útvarpi. Hann átti eftir að gera þetta að reglulegum sið og voru þessi ávörp jafnan kölluð „fireside chats“.

1947

Harry Truman Bandaríkjaforseti leggur fram stefnu sína „The Truman Doctrine“ sem lýtur að því að stöðva framgang kommúnisma um heim allan.

1969

Paul og Linda McCartney ganga í hjónaband. Sama dag voru George Harrison og Patti kona hans handtekin fyrir að hafa kannabisefni undir höndum.

1994

Enska biskupakirkjan vígir kvenpresta í fyrsta sinn.

2003

Zoran Dindjic, forsætisráðherra Serbíu, skotinn til bana af útsendara glæpasamtaka þar í landi.

2009

Fjárglæframaðurinn Bernie Madoff lýsir sig sekan, fyrir rétti, um að hafa svikið 18 milljarða dala út úr viðskiptavinum sínum.

2011

Kjarnaofn í kjarnorkuverinu í Fukushima í Japan bræðir úr sér og springur daginn eftir öflugan jarðskjálfta. Ekki sér enn fyrir endann á aðgerðum til að koma í veg fyrir frekari mengun af völdum slyssins.

Afmælisbörn dagsins:

Ratko Mladic, stríðsglæpamaður (75), Mitt Romney, auðjöfur (70), Steve Harris, bassaleikari (61), Courtney B. Vance, leikari (57), Pete Doherty, tónlistarmaður (38).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár