Stærsti kröfuhafi Íslands á tæpa þúsund milljarða

Eignir vog­un­ar­sjóðs­ins Burlington Loan Mana­gement, stærsta ein­staka kröfu­hafa fall­inna íslenska banka, juk­ust um 65 pró­sent í fyrra. Alls nema bók­færðar eignir hans tæp­lega þús­und millj­örðum króna. Virði eign­ar­safns hans á Íslandi dróst hins vegar lít­il­lega saman.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi sjóðs­ins vegna árs­ins 2014 sem nýverið var skilað inn til írsku fyr­ir­tækja­skrá­ar­innar, en Burlington, sem er fjár­magn­aður og stýrt af banda­ríska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Davidson Kempner, er með heim­ils­festi þar í landi.

Bókfærðar eignir hærri en árlegar tekjur íslenska ríkisins


Burlington er risa­vax­inn sjóður. Alls eru eignir hans bók­færðar á 7,4 millj­arða dali, eða 938 millj­arða króna. Stærstur hluti þeirra er í Írlandi og Bret­landi. Til að setja þá tölu í sam­hengi má nefna að allar tekjur rík­is­sjóðs Íslands á næsta ári eru áætl­aðar 696,3 millj­arðar króna á næsta ári sam­kvæmt nýfram­lögðu fjár­laga­frum­varpi, eða 74 pró­sent af eignum Burlington. Eignir sjóðs­ins juk­ust gríð­ar­lega á síð­asta ári, en þær voru um 565 millj­arðar króna í lok árs 2013.

Uppi­staðan í eignum sjóðs­ins eru fjár­fest­inga­eignir, meðal ann­ars skulda­bréf útgefin af bönkum og ýmis konar fast­eignir. Allar eignir eru bók­færðar á gang­virði í gegnum rekstr­ar­reikn­ing. Þær eru því ekki færðar á mark­aðsvirði, enda eina leiðin til að vita hvert mark­aðsvirði þeirra er að selja þær. Miðað við þróun á bók­færðu virði eigna Burlington á Íslandi í árs­reikn­ingum sjóðs­ins und­an­farin ár virð­ast þær mun frekar vera bók­færðar á því verði sem eign­irnar voru keyptar á.

Á miklar eignir á Íslandi


Og Burlington á gríð­ar­lega mikið af eignum á Íslandi. Þær hefur hann sankað að sér í gegnum árin. Á árinu 2013 jók sjóð­ur­inn til að mynda eignir sínar á Íslandi um 70 pró­sent og í lok þess árs voru 18 pró­sent af fjár­fest­inga­eignum hans á Íslandi. Bókfært virði þeirra var 738 millj­ónir dala, eða um 95 millj­arðar króna.

Eignir sjóðs­ins á Íslandi dróg­ust lít­il­lega saman á síð­asta ári án þess að það sé sér­stak­lega útskýrt í árs­reikn­ingnum. Í lok síð­asta árs voru þær um bók­færðar á um 700 millj­ónir dali, eða um 90 millj­arða króna. Til sam­an­burðar voru bófærðar eignir Burlington hér­lendis 55,5 millj­arðar króna í lok árs 2012. Alls voru eignir Burlington á Íslandi um tíu pró­sent af fjár­fest­ing­ar­eignum hans í lok síð­asta árs.

Markaðsvirðið mun hærra en bókfært virði


Mark­aðsvirði eigna Burlington á Íslandi er mun hærra en 90 millj­arðar króna. Miðað við væntar end­ur­heimtir í þrotabú Glitnis eru nafn­virði krafna Burlington í bú bank­ans, sam­kvæmt nýj­ustu upp­lýs­ingum Kjarnans um umfang þeirra, til að mynda að minnsta kosti vel á þriðja hund­rað millj­arð króna. Miðað við að kröfu­hafar Glitnis geta búist við að fá allt að 33 pró­sent af nafn­virði krafna sinna greitt, gangi áform um greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags eftir, má áætla að raun­virði þeirra krafna sem Burlington á á slitabú Glitnis sé um 81 millj­arður króna, miðað við síð­ustu birtu upp­lýs­ingar um umfang krafna sjóðs­ins.

Burlington er stærsti ein­staki kröfu­hafi slita­bús Glitnis.

Burlington er stærsti einstaki kröfuhafi slitabús Glitnis.
Burlington er stærsti ein­staki kröfu­hafi slita­bús Glitnis.

Sjóð­ur­inn er einnig einn stærsti kröfu­hafi slita­bús Kaup­þings. Í nóv­em­ber 2012 átti hann kröfur í búið að nafn­virði 109 millj­arðar króna. Miðað við væntar end­ur­heimtir kröfu­hafa Kaup­þings ætti sú eign að skila Burlington um 29 millj­örðum króna þegar búinu verður slitið. Vert er að taka fram að eignir Burlington og tengdra aðila gætu hafa auk­ist eða dreg­ist saman frá því að fjöl­miðlar komust síð­ast yfir upp­lýs­ingar um umfang krafna í búið. Heim­ildir Kjarnans herma þó að þessir aðilar séu enn á meðal stærstu kröfu­hafa í bú Kaup­þings.

Til við­bótar á Burlington fullt af öðrum eignum hér­lendis. Sjóð­ur­inn á umtals­verðar kröfu í bú Lands­bank­ans, er á meðal eig­anda ALMC (áður Straumur fjár­fest­inga­banki), á beint 13,4 pró­sent hlut í Klakka (sem seldi stóran hlut í VÍS í fyrra og á allt hlutafé í Lýsingu) og keypti 26 millj­arða króna skuldir Lýsingar skömmu fyrir ára­mót 2013. Auk þess hefur sjóð­ur­inn verið að kaupa hluti í Bakkavör í Bret­landi af miklum móð, en þær eignir eru skráðar sem breskar þótt aðrir stórir eig­endur séu að mestu íslenskir og rætur fyr­ir­tæk­is­ins liggi hér­lendis.

Því er ljóst að mark­aðsvirði eigna Burlington á Íslandi, það fé sem myndi fást fyrir þær ef eign­irnar yrðu seldar, er miklu hærra en það virði sem þær eru bók­færðar á í bókum sjóðs­ins.

Er fjármagnaður af Davidson Kempner


Burlington sjóð­ur­inn er fjár­magn­aður af Davidson Kempner European Partners í London, sem er dótt­ur­fé­lag banda­ríska sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Davidson Kempner, eins stærsta vog­un­ar­sjóðs í heimi. Sjóðir Davidson Kempner eru með um 25,4 millj­arða dali, tæp­lega 3.300 millj­arða króna, í stýr­ingu. Til sam­an­burðar var verg lands­fram­leiðsla Íslands á síð­asta ári 1.989 millj­arðar króna, eða 60 pró­sent af því sem sjóðir Davidson Kempner stýra.

Fyr­ir­tækið sér­hæfir sig meðal ann­ars í að hagn­ast á við­skiptum með kröfur í gjald­þrota fyr­ir­tækjum. Hlutir í Burlington eru í eigu alls tólf sjóða Davidson Kempner. Hverjir end­an­legir eig­endur hlut­deild­ars­kirteina í þeim sjóðum eru veit eng­inn nema stjórn­endur Davidson Kempner.

Burlington, sem er skráður til heim­ilis á Írlandi, var stofn­aður 24. apríl 2009. Hann er í raun skráð í eigu þriggja góð­gerð­ar­sam­taka. Í árs­reikn­ingi Burlington kemur his vegar líka fram að stjórn­andi sjóðs­ins (e. corporate administrator and company secretary) sé dótt­ur­fé­lag þýska bankaris­ans Deutsche Bank, Deutsche International Corporate Services Limited á Írlandi.

Deutsche Bank átti mikið undir í íslenska efna­hags­hrun­inu. Og virð­ist enn eiga mikið undir við lausn á þeim vand­ræðum sem hrunið olli.

Mikil samskipti við Deutsche Bank


Samkurl Burlington við Deutsche Bank hefur því verið nokkuð mikið. Dótt­ur­fyr­ir­tæki þýska bankaris­ans, Deutsche Bank AG í Amster­dam, heldur til að mynda á 99 pró­sent af hlut­deild­ars­kirteinum í ALMC. Heim­ildir Kjarnans herma að Burlington eða sjóðir Davidson Kempner séu end­an­legir eig­endur hluta þeirra skirteina. Þá keypti Burlington 26 millj­arða króna skuldir Lýsingar af Deutsche Bank skömmu fyrir síð­ustu ára­mót.

Deutsche Bank átti mikið undir í íslenska efnahagshruninu. Og virðist enn eiga mikið undir við lausn á þeim vandræðum sem hrunið olli.
Deutsche Bank átti mikið undir í íslenska efna­hags­hrun­inu. Og virð­ist enn eiga mikið undir við lausn á þeim vand­ræðum sem hrunið olli.

Deutsche Bank var einn stærsti, ef ekki stærsti, lán­veit­andi íslensks efna­hags­lífs fyrir hrun. Það vakti því athygli sum­arið 2014 þegar hol­lenski seðla­bank­inn til­kynnti að hann hefði selt Deutsche Bank það sem eftir stóð af Icesave-kröfum bank­ans, alls um 700 millj­ónir evra. Kjarninn greindi frá því 29. ágúst 2014 að bank­inn hefði keypt kröf­urnar fyrir aðra, og væri búinn að selja þær áfram.

Kaup­end­urnir voru fleiri en tveir og á meðal þeirra voru þekktir vog­un­ar­sjóðir sem eiga aðra hags­muni á Íslandi. Til­gang­ur­inn er að styrkja stöðu þeirra sem eiga mest undir þegar kemur að upp­gjöri þrota­búa föllnu bank­anna. Þar á eng­inn meira undir en Burlington Loan Mana­gement.

Sala hol­lenska seðla­bank­ans á Icesave-kröfum kom í kjöl­farið af því að bresk sveit­ar­fé­lög, sem áttu einnig slíkar kröfur, seldu þær í febr­úar síð­ast­liðnum. Þegar til­kynnt var um þá sölu kom ekki fram hverjir kaup­endur krafn­anna væru.

Kjarninn greindi frá því í des­em­ber í fyrra að Deutsche Bank væri orðin þriðji stærsti kröfu­hafi í slitabú Glitnis með kröfur að nafn­virði upp á 157,1 millj­arð króna. Bankinn hefur bætt við sig miklu magni krafna frá byrjun árs 2013. Þeir sem vel þekkja til í kröfu­hafa­iðn­að­inum telja öruggt að Deutsche Bank sé að halda á þessum kröfum sem bank­inn er skráður fyrir á Glitni fyrir ein­hverja aðra. Bankinn sé milli­liður, ekki end­an­legur eig­andi þeirra.

Sátu nær örugglega við samningsborðið


Í aðdrag­anda þess að íslensk stjórn­völd kynntu áætlun sína um losun fjár­magns­hafta í júní síð­ast­liðnum höfðu átt sér stað við­ræður við stærstu kröfu­hafa föllnu bank­anna í nokkra mán­uði. Lee Buchheit, ráð­gjafi fram­kvæmda­hóps um losun hafta sem lék lyk­il­hlut­verk í þeim samn­ingum sem nú liggja fyrir um greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags og losun hafta, sagði í við­tali við Kjarnann í júní að við­ræð­urnar hafi verið við þrjá til fjóra stærstu kröfu­hafa í hverju slita­búi fyrir sig, sem taldir voru leið­andi í kröfu­hafa­hópi þeirra.

Lee Buchheit og félagar ræddu við þrjá til fjóra stærstu kröfu­hafa­hópanna í hverju slita­búi fyrir sig. Burlington hefur nær örugg­lega átt þar full­trúa.

Lee Buchheit og félagar ræddu við þrjá til fjóra stærstu kröfuhafahópanna í hverju slitabúi fyrir sig. Burlington hefur nær örugglega átt þar fulltrúa.
Lee Buchheit og félagar ræddu við þrjá til fjóra stærstu kröfu­hafa­hópanna í hverju slita­búi fyrir sig. Burlington hefur nær örugg­lega átt þar full­trúa.

Telja verður nær öruggt að full­trúar Burlington hafi verið í þessum hópi, þar sem sjóð­ur­inn er án efa stærsti ein­staki kröfu­hafi föllnu íslensku bank­anna.

Sá sem stýrir málum Burlington og Davidson Kempner hér­lendis heitir Jeremy Clement Lowe. Innan kröfu­hafa­iðn­að­ar­ins eru allir sam­mála um að Lowe sé lang­virkastur allra kröfu­hafa hér­lendis. Hann dreifi hins vegar verk­efnum á milli inn­lendra aðila, not­ast við þjón­ustu að minnsta kosti þriggja fjár­mála­fyr­ir­tækja og nokk­urra mis­mun­andi lög­mann­stofna.

Þessi taktík gerir það að verkum að eng­inn hefur heild­ar­mynd af því sem Lowe og Burlington eru að gera á Íslandi nema hann sjálfur og þeir sem með honum starfa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár