Áhorfendur fögnuðu þegar Ísland var nefnt á nafn: „Er fólk frá Íslandi hérna?“

Ísland nýtur vinsælda sem litla liðið á Evrópu­meistara­mótinu í knatt­spyrnu. Áhorf­endur í spjall­þætti Stephens Colbert í New York fögnuðu þegar Ísland var nefnt.

Stephen Colbert
Stephen Colbert Mynd: CBS

„Er fólk frá Íslandi hérna?“ spurði bandaríski þáttar­stjórn­andinn Stephen Colbert þegar fagnaðar­læti brutust út í The Late Show í gær við að landið var nefnt á nafn.

Ísland nýtur nú fordæma­lauss stuðnings í íþrótta­grein eftir að hafa náð að komast upp úr riðla­keppninni þrátt fyrir að vera fámennasta þjóðin til að taka þátt í stórmóti í knatt­spyrnu, sem er vinsælasta íþrótt heims. 

Guðmundur Benediktsson lýsandi hefur auk þess slegið í gegn með tilfinninga­legu uppnámi sem hann komst í við lýsingar á sigur­marki íslenska lands­liðsins gegn Austur­ríki á miðvikudaginn. „Engar áhyggjur. Það eru ekki úlfar að rífa hann í sig. Þetta er hamingja,“ segir Colbert.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár