Ekki tímabært að ræða rannsóknarnefnd um Íslandsbankasöluna

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir að stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd þurfi að fara yfir skýrslu Ríkis­endur­skoðunar og komast að því hvort enn séu einhverjum spurningum ósvarað. Skýrslan valdi henni sjálfri verulegum vonbrigðum með framkvæmd sölunnar.

Skýrslan góð
Skýrslan góð Katrín sagði nokkrum sinnum að sér þætti skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar góð. Nið­ur­stöð­urnar væru þó von­brigði. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það er margt í þessari skýrslu sem veldur mér verulegum vonbrigðum með framkvæmdina,“ sagði Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra á þingi í dag þar sem þingmenn biðu í röðum eftir að spyrja hana út í skýrslu Ríkis­endur­skoðunar um einka­væðingu 22,5 prósenta hlutar ríkisins í Íslands­banka. Katrín sagði að hæsta mögulega verð hafi ekki verið eini þátturinn sem horfa átti til, heldur líka dreift eignar­hald. 

Fyrsta tilraun

Hvar er ábyrgðin?Kristrún vildi vita hver ætl­aði að taka ábyrgð á klúðr­inu við sölu Íslands­banka.

Krafa um rann­sóknarnefnd var ítrekuð af minni­hlutanum, en strax og Ríkis­endurskoðun var falið að rannsaka söluna var kallað eftir að sérstakri rann­sóknarnefnd Alþingis yrði frekar falið verkefnið.

„Hvernig ríkis­stjórnin tekur á Íslands­bankamálinu mun skipta sköpum í því hvernig við komumst áfram sem samfélag út úr þessari traustskrísu,“ sagði Kristrún Frosta­dóttir, formaður Samfylkingarinnar. Hún spurði bæði um hvort Katrín teldi Bjarna hafa staðið við skyldur sínar og hvort hún myndi beita sér fyrir skipun rann­sóknar­nefndar. 

Því var ekki svarað beint.

„Mér finnst þessi skýrsla góð, mér finnst hún gefa góða mynd af ferlinu. Mér finnst hún gefa góða mynd af annmörkum - og það er ekki eitthvað sem ég fagna hér,“ sagði forsætis­ráðherra áður en hún nefndi svo sérstak­lega að Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra hafi sjálfur óskað eftir skýrslu Ríkis­endur­skoðunar. Stjórn­völd hefðu, að hennar mati, beitt sér fyrir því að allt yrði uppi á borðum hvað varðar söluna. 

Önnur tilraun 

Nei eða já?Halldóra vildi fá skýrt svar frá Katrínu, sem hún fékk ekki.

Halldóra Mogensen spurði þá strax aftur: styður Katrín skipun rann­sóknar­nefndar? „Svar já eða nei. Styður forsætis­ráðherra rann­sóknarnefnd.“

Það svar fékkst ekki.

Katrín sagðist vera farin að gruna að skýrslan hafi valdið einhverjum vonbrigðum. „Það segir mér nú kannski að einhver sé búin að gefa sér niður­stöðuna áður en vinnunni er lokið,“ sagði Katrín. Skýrslan svaraði mörgum spurningum og vitnað til þess að sumt væri áfram til skoðunar, svo sem í rannsókn fjármála­eftirlits Seðla­banka Íslands. 

Halldóra sagðist ánægð með skýrsluna og bað Katrínu að leggja sér ekki orð í munn. Skýrslan skildi samt eftir ósvöruðum spurningum. „Skiljanlega vegna þess að ríkis­endur­skoðandi hefur ekki þær heimildir sem þarf til,“ sagði Halldóra áður en hún ítrekaði spurninguna. 

Katrín sagði það einfald­lega ekki tímabært að ræða frekari rannsókn. Stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd ætti eftir að fara yfir málið og komast að því hvort enn væri einhverjum spurningum ósvarað. 

Þriðja tilraun

Hvað með frek­ari sölu eigna?Þor­gerður vildi vita hvort Katrín teldi rík­is­stjórn­inni stætt á að selja aðrar eignir rík­is­sjóðs í ljósi skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Þorgerður Katrín, formaður Viðreisnar, var næst í röðinni en spurði að öðru en fyrri formennirnir tveir. Hún vildi vita hvort ríkis­stjórninni væri stætt á að halda áfram að selja eignir ríkisins.

„Hvaða augum lítur ráðherrann því að þinginu skuli gefnar ófull­komnar og misvísandi upplýsingar í svona stóru og miklu máli? Og í öðru lagi, er ríkis­stjórninni treystandi á þessum tíma­punkti að fara í frekari söluferli á öðrum ríkis­eignum?“ spurði Þorgerður nöfnu sína.

„Hún var ansi marglaga,“ sagði Katrín í kjölfarið um spurninguna og rakti fyrri svör sín um að málið væri enn til skoðunar fjármála­eftirlitsins og frekari upplýsingar væru væntanlegar. „Hérna erum við komin með góða skýrslu, vandaða skýrslu, vandaða skýrslu. Að sjálfsögðu þarf að gera eitthvað með það. Það þarf að fara yfir þetta,“ sagði hún og ítrekaði fyrri afstöðu um að fyrir­komulagið sem viðhaft var hafi ekki verið gott. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Ummæli Katrínar Jak að rannsóknarnefnd alþingis er ekki tímabær hér og nú, skýra þögn Orra Páls þingflokks-formanns xV, en einsog allir muna sagði hann í vor að hann myndi fyrstur manna samþykkja rannsóknarnefnd alþingis, ef rannsókn ríkisendurskoðanda væri ekki fullnægjandi, sem note bene lá fyrir strax í vor og er staðfest í rannsóknarskýrslunni núna.
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Ásamt því að setja málið í nefnd og svæfa það þar.
    Verður þá katrín jakopsdóttir fyrsta hirðfíflið til að segja að það þurfi að draga lærdóm af þessu ráni á eigum þjóðarinnar. ?
    1
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Bara eitt eftir og það er afsögn ríkisstjórnar VG liða í boði sjálfstæðisflokksins. Katrín Jakobsdóttir á að koma sér í burtu strax,
    2
  • Guðrún Aðalsteinsdóttir skrifaði
    Ennþá bullar hún Katrín, jæja óskaði hann eftir að salan væri skoðuð. Var það ekki þannig að Bjarna og þinginu var ekki stætt á öðru og neydd út í rannsókn á söluferlinu.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslandsbankasalan

FréttirÍslandsbankasalan

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Benediktsson, fyrr­verandi fjármála- og efnahags­ráðherra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þingsins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagnvart hverjum og einum kaupanda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera augljóst að ekki væri hægt að fylgja hæfis­reglum í sölu­meðferðinni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár