Nágrannar töldu sumir þörf á 400 bílastæðum í kjallara undir nýjum KR-velli

Íþrótta­svæði KR í Vestur­bænum mun taka stórtækum breytingum samkvæmt nýsamþykktu deili­skipulagi, sem gerir ráð fyrir byggingu hundrað íbúða við nýjan knattspyrnu­völl félagsins. Nágrannar hafa sumir miklar áhyggjur af bílastæða­málum.

KR-svæði framtíðarinnar?
KR-svæði fram­tíð­ar­innar? Mynd: Úr skipulagstillögu

Nýtt deili­skipulag KR-svæðisins við Frosta­skjól var samþykkt í umhverfis- og skipulags­ráði Reykja­víkurborgar í síðustu viku. Miklar breytingar verða á svæðinu ef skipulagið kemst til framkvæmda. Til stendur að reisa þar knatthús auk þess sem gert er ráð fyrir því að aðal­knattspyrnu­velli félagsins verði snúið og um hundrað íbúðir byggðar, með verslunar- og atvinnu­húsnæði á jarðhæðum, í kringum hálfan völlinn.

Knattspyrnu­félag Reykja­víkur skipuleggur svæðið og mun fyrir­huguð uppbygging húsnæðis verða á þeirra vegum. Eins og erki­fjendurnir í Val mun KR því geta nýtt ágóðann af fasteigna­uppbyggingunni í þágu félagsins, þó að uppbyggingin við Frosta­skjól sé á mun minni skala en sú sem hefur átt sér stað á vegum Valsmanna á Hlíðar­enda og gert það félag að ríkasta íþrótta­félagi á Íslandi.

Nokkuð bar á áhyggjum af bílastæða­skorti í kringum svæðið, í innsendum athuga­semdum íbúa í grenndinni til skipulags­yfirvalda í borginni. Húsfé­lögin við Meistara­velli 31, 33 og 35 sendu til dæmis inn erindi, þar sem því var komið á framfæri að íbúar teldu að það þyrfti að „grafa dýpra og gera bílastæða­kjallara sem tekur 400 bíla undir KR svæðinu,“ nánar tiltekið undir knattspyrnu­vellinum.

„Með 400 stæða bíla­kjallara undir KR vellinum væruð þið að hugsa til framtíðar en ekki til fortíðar,“ sagði í umsögn eins íbúa á Meistara­völlum fyrir hönd húsfé­laganna. Alls gerir deili­skipulags­tillagan ráð fyrir því að 120 bílastæði verði inni á reitnum, þar af 71 stæði í norð­vesturhluta reitsins, fjærst fyrir­huguðum íbúarhúsum. Við nýju íbúðar­húsin er aðallega gert ráð fyrir bíla­stæðum í götunni.

Því segjast íbúar á Kaplaskjóls­vegi sem sendu inn athugasemd hafa „miklar áhyggjur“ af. „Í dag er þegar lagt mjög þétt við allar aðliggjandi götur KR-svæðisins þegar keppnis­leikir fara fram, jafnvel í merkt einka­stæði. Ómögulegt er að skilja hvernig svona fá bílastæði til viðbótar við þau sem þegar eru eiga að þjóna þeim 100 íbúðum sem fyrir­hugað er að byggja sem og þjónustunni og íþrótta­mann­virkjunum öllum,“ sagði í athugasemd íbúanna.

Sjá fyrir sér verulega íþyngjandi umferðarálag

Stjórnir tveggja húsfélaga við Flyðru­granda (2-10 og 12-20) sögðust svo telja að áætluð bílastæða­þörf væri „stórlega vanmetin“ og að afleiðingarnar komi til með að verða þær „að skortur á bíla­stæðum og umferðar­álag verði verulega íþyngjandi“ fyrir íbúa í húsunum og annarri nærliggjandi byggð.

Í athuga­semdum húsfé­laganna var því einnig komið áleiðis að byggingar­áformin sem KR hefur í huga á lóðinni séu „yfir­þyrmandi“ og bent á að gert sér ráð fyrir samfelldri 145 metra langri húsaröð meðfram Flyðru­grandanum og 140 metra langri húsa­lengju meðfram Kaplaskjóls­vegi. Samkvæmt deili­skipulags­tillögunni geta húsin að hámarki orðið 18,9 metra há þar sem þau eru hæst.

„Í húsunum tveimur við Flyðru­granda 2-20 eru um 140 íbúðir. Í húsinu að Flyðru­granda 2-10 koma íbúar flestra íbúða sem snúa að KR-svæði til með að horfa inn í þennan langa og himinháa húsvegg. Íbúar þar munu algjör­lega tapa sýn á kenni­leyti til suðurs bæði náttúruleg og manngerð. Mun húsa­lengjan varpa alskugga á flestar þessara sólríku íbúða hússins í allt að þrjá mánuði á tíma­bilinu frá byrjun nóvember til loka janúar,“ segir í athuga­semdum húsfé­laganna við Flyðru­grandann.

Bílastæðafjöldi í samræmi við samgöngumat

Á fundi umhverfis- og skipulags­ráðs borgarinnar var í síðustu viku lagt fram skjal með ofan­greindum athuga­semdum og fleirum til, auk svara skipulags­yfirvalda borgarinnar við þeim. Hvað bílastæði varðar vísaði borgin til þess í svörum sínum að unnið hefði verið samgöngumat fyrir KR-svæðið, sem tilgreindi „þann bílastæða­fjölda sem er æskilegur skv. viðmiðum borgarinnar um reglur um bíla- og hjóla­stæði.“

„Vissulega má til sanns vegar færa að eðli svæðisins sem íþrótta­svæði er þannig að á vissum tímum mun mikill fjöldi gesta sækja svæðið. Á það helst við um íþrótta­viðburði en einnig aðra stærri viðburði, s.s. tónleika og aðrar skemmtanir og uppákomur. Yfirleitt er um að ræða viðburði sem standa yfir í nokkrar klukku­stundir og skapa umtals­verða umferð. Ljóst er að við slíkar aðstæður getur umferð við og um svæðið og næsta nágrennis orðið umtals­verð og reynt á afkasta­getu innviða. Samgöngu­matið skilgreinir og leggur til að umsjónar­aðilar KR og Reykja­víkurborgar hafi til taks áætlun sem miðar að því að stjórna umferð og notkun innviða svæðisins þegar stærri viðburðir fara fram. Á það t.d. við um hvar gestir geti lagt bifreiðum, hvaða farar­mátar eru heppilegir til að komast að svæðinu o.s.frv.. Með viðeigandi skipulagi og upplýsinga­gjöf má lágmarka álag sem viðburðir hafa á innviði og þjónustu­stig gatna­kerfisins. Gestir geta verið hvattar til að nýta sér vistvæna ferðmáta til þess að nálgast viðburði og að vel sé skilgreint hvar mögulegt sé að leggja ökutækjum, t.d. við skóla og aðrar opinberar byggingar sem eru yfirleitt minna notaðar þegar stærri viðburðir fara fram (stæði í borgar­landi),“ segir í svari borgarinnar um bílastæða­málin, en Efla verkfræði­stofa vann samgöngu­matið sem vísað er til.

Með því að búa í borg þá…

Athuga­semdum um að nýbyggingarnar á KR-svæðinu myndu rýra útsýni einhverra íbúa í grenndinni var svo flestum svarað með stöðluðum hætti.

„Með því að búa í borg þá geta íbúar ávallt átt von á því að nánasta umhverfi þeirra taki breytingum sem haft geta í för með sér skerðingu á útsýni, aukið skugga­varp, umferðar­aukningu eða aðrar breytingar. Verði menn að sæta því að með almennum takmörkunum þá geti hagsmunir þeirra í einhverju verið skertir með slíkum breytingum þar sem réttur íbúa til óbreytts útsýnis er ekki bundin í lög,“ sagði í svari borgarinnar við nokkrum athugasemd­anna.

Íbúum var svo bent á að þeir gætu leitað réttar síns, ef þeir teldu skipulags­ákvarðanir borgarinnar vera að valda sér tjóni.

Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn sátu hjá

Við afgreiðslu deili­skipulagsins var það samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Fram­sóknar, Pírata og Viðreisnar í umhverfis- og skipulags­ráði, en tveir fulltrúar Sjálfstæðis­flokks og fulltrúi Vinstri grænna í ráðinu sátu hjá.

Í bókun meirihluta­flokkanna fjögurra sagði meðal annars að tillögurnar gerðu ráð fyrir stór­bættri íþrótta­aðstöðu fyrir hverfið, þær myndu fjölga íbúum og efla þannig verslun og þjónustu á svæðinu. Bílastæða­málin væru svo í samræmi við bílastæða­stefnu borgarinnar.

Líf Magneu­dóttir fulltrúi Vinstri grænna í ráðinu sagðist fagna því að KR-ingar fengju betri íþrótta­aðstöðu, en sagði hins vegar „eitt og annað í útfærslu íbúða­húsanna sem gæti farið betur“ og kaus því að sitja hjá, þrátt fyrir að styðja hugmyndir að uppbyggingu á þessu svæði.

Fulltrúar Sjálfstæðis­flokks, þau Hildur Björns­dóttir og Kjartan Magnússon, sögðust fagna löngu tímabærri uppbyggingu íþrótta­mannvirkja fyrir KR en sögðust þó „harma“ að félagið þyrfti að „láta af hendi mögulegt framtíðar­svæði til íþrótta­uppbyggingar, svo fjármagna megi fyrir­huguð mannvirki.“

„Betur færi á því að félagið fengi samskonar stuðning til uppbyggingar aðstöðu og önnur hverfis­félög innan borgarinnar,“ sögðu fulltrúar Sjálfstæðis­flokks, sem einnig undir­strikuðu „mikilvægi þess að sjónar­miðum íbúa verði mætt, og að innviðir hverfisins verði efldir svo vel megi taka á móti nýjum íbúum sem óhjá­kvæmilega munu fylgja uppbyggingu íbúðar­húsnæðis á svæðinu.“

Kolbrún Baldurs­dóttir áheyrnar­fulltrúi Flokks fólksins í ráðinu sagðist í bókun sinni taka undir margar athuga­semdir sem bárust frá íbúum í grenndinni, um þrengsl oog skort á bíla­stæðum. „Horfast verður í augu við raun­veruleikann. Bílastæða­vandi er einnig í nærliggjandi götum. Skoða þarf að draga úr byggingar­magni og fjölga bíla­stæðum,“ sagði í bókun Kolbrúnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár