Mynd: Bára Huld Beck

Sagan af því hvernig Valur varð ríkasta íþróttafélag á Íslandi

Knatt­spyrnu­fé­lagið Valur er rík­asta íþrótta­fé­lag á Íslandi. Sú staða gerir Val kleift að bjóða upp á aðstöðu, aðstæður og launa­greiðslur sem önnur íþrótta­fé­lög geta illa eða ekki keppt við.

Sagan á bak­við hinn mikla upp­gang Vals er stór og mikil. Hún teygir sig aftur fyrir síð­ustu ald­ar­mót og felur í sér margar hraða­hindr­anir og allskyns átök, bæði inn­an­búðar meðal Vals­manna og við aðra sem vildu standa í vegi fyrir veg­ferð­inni af ýmsum ástæðum. Hér verður öll þessi saga rakin.

Fyrsti kafli: Aðdragandinn

Á árunum 1990-1992 hafði karla­lið Vals í knatt­spyrnu unnið þrjá bik­ar­meist­aratitla í röð og tekið þátt í Evr­ópu­keppni. Hand­boltalið Vals var líka það besta á Íslandi á tíunda ára­tugnum og vann hvern Íslands­meistar­tit­il­inn á fætur öðrum. Sögulega var félagið stór­veldi.

En fjár­hagur Vals var í molum. Skuldir söfn­uð­ust upp ár frá ári og voru að sliga allan rekstur.

Knatt­spyrnu­deildin var í verstum málum, enda fjár­frek­ust. Sú staða fór að end­ur­spegl­ast í frammi­stöð­unni á vell­inum og árið 1999 náði þetta nið­ur­læg­ing­ar­skeið félags­ins full­komnun þegar Valur féll úr efstu deild knatt­spyrnu karla í fyrsta sinn í sögu sinni.

Það sem gerði fallið enn verra var að Íslands­meist­ara­tit­ill­inn það árið fór til stór­veldis þess tíma, nágranna Vals úr vest­urbæ Reykja­víkur, KR.

Ári áður hafði KR gert eitt­hvað sem var ekki þekkt í íslenskum íþrótta­heimi. Nokkrir gall­harðir stuðn­ings­menn stofn­uðu eign­ar­halds­fé­lagið KR-sport sem hafði þann til­gang að styðja við rekstur knatt­spyrnu­deildar KR, og í raun taka yfir rekstur hennar. Skráðir stofn­endur voru tveir, Björgólfur Guð­munds­son og Haukur Gunn­ars­son.

Inn í félagið var greitt hlutafé sem síðan átti að vera hægt að ávaxta og nota ágóð­ann af því til að styrkja fjár­hags­lega rekstur knatt­spyrnu­liðs KR. Á meðal fjár­fest­inga sem KR-sport réðst í var að kaupa þrjá veit­inga­staði á Eiðis­torgi: Rauða ljónið, Kon­íaks­stof­una og Sex Baujuna. Líkast til má deila um ágæti þeirrar fjár­fest­ingar.

Ýmsir harðir stuðn­ings­menn Vals, sem áttu fjár­muni og fullt af vilja til að gera vel fyrir félagið sitt, horfðu til þess að KR-leiðin gæti verið leið sem nýst gæti þeim.

Á annan tug kjölfestufjárfesta

Í byrjun des­em­ber 1999 var félagið Valsmenn hf. stofnað til að „vera sjálf­stæður fjár­hags­legur bak­hjarl fyrir Knatt­spyrnu­fé­lagið Val“. Alls lögðu á annan tug ein­stak­linga fram eina milljón króna í fyrstu. Þeir urðu svo­kall­aðir „kjö­festu­fjár­festar“ í hinu nýja félagi. Á meðal þeirra sem til­heyrðu þeim hópi var margt þjóð­þekkt fólk. Helstu drif­kraft­arnir voru ann­ars vegar Grímur Sæmund­sen, fyrr­ver­andi leik­maður Vals og nú helsti eig­andi og stjórn­andi Bláa lóns­ins, og Helgi Magn­ús­son, stór­tækur fjár­festir sem um ára­bil var einnig stjórn­ar­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna. Á meðal ann­arra sem lögðu fram milljón krónur voru Guðni Bergsson, ein ást­sæl­asti sonur Vals og þá enn atvinnu­maður í knatt­spyrnu, og fjöl­miðla­mað­ur­inn Ingvi Hrafn Jónsson, sem á síð­ustu árum er best þekktur fyrir rekstur sjón­varps­stöðv­ar­innar sál­ugu ÍNN.

Grímur Sæmundsen, forstjóri og einn helsti eigandi Bláa lónsins, hefur leikið eitt af lykilhlutverkunum í þróun Vals síðustu áratugi.
Grímur Sæmund­sen, for­stjóri og einn helsti eig­andi Bláa lóns­ins, hefur leikið eitt af lyk­il­hlut­verk­unum í þróun Vals síð­ustu ára­tugi.

Fleiri velunn­urum Vals var í kjöl­farið boðið að leggja til lægri fjár­hæðir. Alls söfn­uð­ust hluta­fjár­vil­yrði fyrir 50 millj­ónum króna og á end­anum inn­heimt­ust 43 millj­ónir króna af þeim. Flestir lögðu til mjög lágar upp­hæðir, um tíu þús­und krónur.

Í fyrstu stjórn Vals­manna hf. sátu Brynjar Harð­ar­son, fyrr­ver­andi hand­bolta­leik­maður hjá Val og íslenska lands­lið­inu sem var for­maður, Helgi Magn­ús­son, Elías Her­geirs­son, Friðrik Soph­us­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og áhrifa­maður í stjórn­málum um ára­bil, Stefán Gunn­ars­son, Kjartan G. Gunn­ars­son og Örn Gúst­afs­son.

Fyrsti skráði fram­kvæmda­stjór­inn var lög­mað­ur­inn Brynjar Níelsson, síðar þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og mik­ill Valsari.

Brynjar Harð­ar­son tók þó fljót­lega við öllum rekstri félags­ins sem snérist um að fjár­festa hluta­féð. Það var meðal ann­ars gert með kaupum á stóru aug­lýs­inga­skilti sem sett var upp við Hlíð­ar­enda og kaupum á verð­bréfum.

Þessi fyrstu ár var ávöxt­unin nokkrar millj­ónir króna á ári. Það var vissu­lega búbót fyrir skuldum hlaðið félag en var ekki að fara að umbylta rekstr­inum á Hlíð­ar­enda.

Áttu landið

Valur var í þeirri ein­stöku stöðu að eiga landið sem félagið stund­aði starf­semi sína, á Hlíð­ar­enda. Það hafði átt það frá því maí­mán­uði 1939. Það reynd­ist á end­anum mesta lukka Vals að hafa fest sér þetta land sem um 90 árum síðar varð eitt verð­mætasta bygg­ing­ar­land í höf­uð­borg lands­ins.

Valsmenn hf. höfðu áhuga á að nýta sér þessa ein­stöku stöðu til að styrkja Val og bæta aðstöðu félags­ins. Fyrsta skrefið sem stigið var til þess var að gera samn­ing við Reykja­vík­ur­borg hinn 11. maí 2002 um Hlíð­ar­enda­svæðið. Samkvæmt honum lét Valur hluta af erfða­festu­landi Vals undir umferð­ar­mann­virki sem tengd­ust m.a. legu nýju Hring­braut­ar­innar og stórt svæði sem átti að skipu­leggja sem lóðir með­fram Flug­vall­ar­vegi og Hlíð­ar­fæti. Samhliða var gerður lóða­leigu­samn­ingur um það svæði sem íþrótta­svæði Vals stendur á.

Á þessum tíma skuld­aði Valur um 200 millj­ónir króna og við blasti að umtals­verða fjár­muni þurfti til að fjár­festa í bættri aðstöðu á svæði félags­ins. Samn­ing­ur­inn sem gerður var við Reykja­vík­ur­borg var metin á tæpan einn millj­arð króna. Þá fjár­muni átti að fá með því að selja bygg­inga­rétt af lóð­unum sem Valur lét frá sér í sam­komu­lag­inu og við­bót­ar­lóðum sem Reykja­vík átti við svæðið.

Fjár­mun­irnir áttu að not­ast ann­ars vegar til að greiða niður skuldir Vals og hins vegar að fjár­magna 780 milljón króna upp­bygg­ingu mann­virkja. Á meðal þess sem átti að byggja var íþrótta­hús með áfastri útistúku og aðal­leik­vangur við hlið þess. Mann­virki sem í dag eru ris­inn og bera nöfnin Origo-höll­inn og Origo-völl­ur­inn.

Annar kafli: Fjárfestingin og pólitíski glundroðinn

Sérstök bygg­inga­nefnd Reykja­vík­ur­borgar og Vals sá um sölu bygg­inga­rétt­ar­ins. Hún gerði samn­ing við kaup­anda af honum hinn 11. maí 2005. Kaup­and­inn var Valsmenn hf. og kaup­verðið var 485 millj­ónir króna ásamt kaup­rétti á bygg­inga- og lóða­rétt­indum fyrir 385 millj­ónir króna. Auk þess átti kaup­and­inn að greiða gatna­gerð­ar­gjöld. Heild­ar­verðið var því um 900 millj­ónir króna.

Valur skuldaði um 200 milljónir króna snemma á þessari öld og fáir sýnilegir valkostir voru út úr stöðunni.
Valur skuld­aði um 200 millj­ónir króna snemma á þess­ari öld og fáir sýni­legir val­kostir voru út úr stöð­unni.

Valsmenn greiddu um 400 millj­ónir króna út til hinnar sam­eig­in­legu bygg­inga­nefndar og restin átti að greið­ast þegar lóða­leigu­samn­ingar væru til­búnir. Fjár­mun­irnir nýtt­ust til að greiða niður alla skuldir Vals og sem eig­in­fjár­fram­lag inn í bygg­ingu íþrótta­mann­virkja.

En hvernig gat félag stuðn­ings­manna Vals, sem hafði safnað undir 50 millj­ónum króna í hlutafé, greitt mörg hund­ruð millj­ónir króna fyrir bygg­inga­rétt? Það gat það með sama hætti og flestir aðrir sem létu hluti ger­ast á þessum árum gerðu það, með því að fá fjár­mun­ina að láni.

Frjálsi fjár­fest­inga­bank­inn, sem síðar fór á haus­inn, sá um að lána fjár­mun­ina.

Fyr­ir­komu­lagið var auð­vitað áhættu­samt og ljóst að Valsmenn, sem höfðu þarna skuld­sett sig veru­lega, þurftu að hafa tekjur af því fljót­lega ef ekki ætti illa að fara. Upp­haf­lega stóð til að fram­kvæmdir myndu hefj­ast þá strax um haustið 2005 en í sept­em­ber það ár bað þáver­andi skipu­lags­ráð Reykja­víkur Valsmenn um að hinkra aðeins. Fyrir dyrum væri sam­keppni um skipu­lag Vatns­mýri og vilji væri fyrir því að Hlíð­ar­enda­svæðið yrði hluti af því deiliskipu­lagi sem smíðað yrði í kjöl­far hennar.

Valsmenn sam­þykktu að fresta fram­kvæmdum til allt að loka árs 2007 gegn því að fá aukin bygg­inga­rétt á Hlíð­ar­enda­svæð­inu og gegn lof­orði Reykja­vík­ur­borgar um að félagið yrði ekki fyrir frek­ari fjár­hags­legum skaða vegna seink­unar á fram­kvæmdum og breyt­inga á skipu­lagi.

Sam­komu­lagið gerði að lokum ráð fyrir sér­stökum tafa­bótum, tíu millj­ónum króna á mán­uði, ef tafir yrðu á lúkn­ingu deiliskipu­lags og frá­gangi lóð­ar­leigu­samn­inga umfram 15. júlí 2007.

Pólitískur stólaleikur hindrar framgang

Á versta mögu­lega tíma fyrir Valsmenn varð hins vegar póli­tískur glund­roði í borg­ar­stjórn Reykja­víkur næstu miss­erin. Eftir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2006 lauk tólf ára valda­tíma R-list­ans og Sjálf­stæð­is­menn tóku við ásamt Birni Inga Hrafns­syni, sem þá var stjórn­mála­maður í Fram­sókn­ar­flokknum. Vil­hjálmur Þ. Vil­hjálms­son var gerður að borg­ar­stjóra og sat sem slíkur í rúmt ár, eða fram í októ­ber 2007 þegar meiri­hlut­inn sprakk vegna REI-máls­ins.

Fjórir borgarstjórar voru í Reykjavík á innan við einu ári. Ólafur F. Magnússon var einn þeirra, en hann sat þó einungis í nokkra mánuði.
Fjórir borg­ar­stjórar voru í Reykja­vík á innan við einu ári. Ólafur F. Magn­ús­son var einn þeirra, en hann sat þó ein­ungis í nokkra mán­uði.

Við tók meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Fram­sóknar og Frjáls­lynda flokks­ins og óháðra með Dag B. Egg­erts­son sem borg­ar­stjóra. Að 100 dögum liðnum ákvað Ólafur F. Magn­ús­son, borg­ar­full­trúi Frjáls­lynda flokks­ins og óháðra, að slíta þeim meiri­hluta og mynda nýjan með Sjálf­stæð­is­flokki gegn því að verða sjálfur borg­ar­stjóri. Sá meiri­hluti lifði í tæpa fimm mán­uði þangað til að Óskar Bergsson, sem hafði tekið við borg­ar­full­trúa­sæti Björns Inga, mynd­aði nýjan meiri­hluta með Sjálf­stæð­is­flokki og Hanna Birna Krist­jáns­dóttir varð borg­ar­stjóri síð­ustu tæpu tvö ár kjör­tíma­bils­ins.

Allt þetta gerði Vals­mönnum afar erfitt fyrir. Glund­roð­inn, og mis­mun­andi afstaða hvers meiri­hluta fyrir sig gagn­vart upp­bygg­ingu í Vatns­mýri, gerði það að verkum að tafir urðu á end­an­legu deiliskipu­lagi Hlíð­ar­enda­svæðis, sem leiddu til tafa á upp­bygg­ingu íþrótta­að­stöðu á Hlíð­ar­enda og til þess að ekki var hægt að hefja fram­kvæmdir á lóðum Vals­manna hf. eins og ráð­gert hafði verið.

Sumarið 2008 var staða Vals­manna hf. orðin nokkuð svört. Ekkert bólaði á deiliskipu­lagi og félagið gat ekki þjón­u­stað skuldir sínar. Daginn áður en að Ólafur F. Magn­ús­son var lát­inn hætta sem borg­ar­stjóri, þann 20. ágúst 2008, gerði borgin nýjan samn­ing við Vals og Valsmenn um að taka á sig allskyns kostnað vegna fram­kvæmda á Hlíð­ar­enda­svæð­inu og greiða Vals­mönnum hf. alls 120 milj­ónir króna í tveimur greiðslum.

Enn fremur var kveðið á um að breyt­ingum á deiliskipu­lagi og útgáfu nýrra lóð­ar­leigu­samn­inga skyldi lokið eigi síðar en 31. októ­ber 2009. Fram til þess að lóð­ar­leigu­samn­ingar hefðu verið gefnir út skyldi Reykja­vík­ur­borg greiða tafa­bætur og Valsmenn hf. skyldu end­ur­greiða Reykja­vík­ur­borg yfir­teknar og útlagðar fjár­hæðir í tveimur greiðslum, sex og tólf mán­uðum eftir útgáfu lóð­ar­leigu­samn­inga.

Svo kom hrun.

Þriðji kafli: Hrunið og neyðarbrautin

Þegar ósköpin dundu yfir íslenska þjóð haustið 2008 voru lán Vals­manna hf. við Frjálsa fjár­fest­inga­bank­ann í erlendum gjald­miðlum. Til að bæta gráu ofan á svart end­uðu leif­arnar af Frjálsa fjár­fest­inga­bank­anum inni í hinum alræmda Dróma, sem gerði þær upp ásamt eft­ir­stand­andi búi SPRON. Drómi hafði orð á sér fyrir að vera það slitabú sem erf­ið­ast var í öllum við­ræðum. Fyrir því fengu Valsmenn að finna.

Í árs­lok 2009 voru skuldir Vals­manna hf. sam­kvæmt árs­reikn­ingi bók­færðar á 2,9 millj­arða króna. Ekkert bólaði á fram­kvæmdum á Hlíð­ar­enda­svæð­inu sem áttu að not­ast til að greiða þessar skuldir og síðan að styrkja rekstur Vals.

Það sem hélt lífi í félag­inu var að Reykja­vík­ur­borg greiddi taf­ar­bætur. Í lok árs 2010 hafði borgin alls greitt 470 millj­ónir króna til Vals­manna en tók þá ein­hliða ákvörðun um að borga ekki meira. Á þeim tíma tók enda nýtt deiliskipu­lag gildi í borg­inni sem náði yfir bygg­ing­ar­svæði Vals­manna. Deilur félags­ins við Dróma gerðu það hin vegar að verkum að ekki var hægt að gefa út lóða­leigu­samn­inga.

Þessi patt­staða stóð meira og minna fram á árið 2013. Þá náð­ist, með aðkomu nokk­urra lyk­il­manna úr hlut­hafa­hópi Vals­manna hf., að fá rík­is­bank­ann Lands­bank­ann til að lána félag­inu sam­tals 1.125 millj­ónir króna til að gera loka­upp­gjör við Dróma. Samhliða var veði lyft af lóðum á Hlíð­ar­enda­svæð­inu og hægt var að gefa út lóða­leigu­samn­inga.

Það sumar var svo samið við Reykja­vík­ur­borg um loka­greiðslu vegna sam­komu­lags­ins sem gert var 2005 upp á 385 millj­ónir króna í fjórum jöfnum greiðslum sam­hliða útgáfu bygg­inga­leyfis á hverri af fjórum bygg­ing­ar­lóðum félags. Borgin féll frá verð­bótum sem safn­ast höfðu upp og Valsmenn féllu frá frek­ari kröfum um taf­ar­bætur með drátt­ar­vöxtum.

Valsmenn héldu að þeir væru komnir á græna grein. Þeir hófust handa við að skipu­leggja upp­bygg­ingu Hlíð­ar­enda­svæð­is­ins og væntu þess að nýtt deiliskipu­lag sem heim­il­aði þá upp­bygg­ingu myndi falla til þá og þegar. Um 600 íbúða upp­bygg­ing var í píp­unum auk atvinnu­hús­næðis.

Þá birt­ist enn ein hindr­unin: Hjartað í Vatns­mýr­inni og aðrir vinir Reykja­vík­ur­flug­vallar.

Hjartað í Vatnsmýrinni

Til þess að fram­kvæmd­irnar gætu haf­ist þurfti að loka flug­braut 06/24 á Reykja­vík­ur­flug­velli, sem heitir einnig norð­austur suð­vest­ur­-braut og hefur á liðn­um árum iðu­lega verið nefnd neyð­ar­braut í opin­berri umræð­u.

Hin svokallaða neyðarbraut. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Hin svo­kall­aða neyð­ar­braut. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Fyr­ir­hugað hafði verið árum saman að loka braut­inni.

Árið 2005 und­ir­rit­uðu þá­ver­andi borg­ar­stjóri Stein­unn Val­dís Ósk­ars­dóttir og þáver­andi sam­göngu­ráð­herra Sturla Böðv­ars­son sam­komu­lag um sam­göngu­mið­stöð sem rísa skyldi í Vatns­mýr­inni. Hún átti að rísa þar sem braut 06/24 er. Árið 2009 und­ir­rit­uðu Krist­ján L. Möll­er, þá­ver­andi sam­göngu­ráð­herra, og Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, þáver­and­i ­borg­ar­stjóri, sam­komu­lag um að brautin ætti að loka, en þó var sá fyr­ir­vari á því sam­komu­lagi að það myndi rísa sam­göngu­mið­stöð við enda brautar 06/24.

Í októ­ber 2013 und­ir­rit­aði Hanna Birna, þá inn­an­rík­is­ráð­herra, og Jón Gnarr, þáver­andi borg­ar­stjóri, sam­þykkt um að ljúka vinnu við end­ur­skoðun á deiliskipu­lagi fyrir Reykja­vík­ur­flug­völl. Þeg­ar því yrði lokið átti að til­kynna um lokun braut­ar­inn­ar. Í des­em­ber 2013 óskað­i inn­an­rík­is­ráðu­neytið eftir því að und­ir­bún­ingur yrði hafin að lokun flug­braut­ar­inn­ar.

Árið 2015 var neyð­ar­brautin hins vegar enn opin. Þótt jarð­vinna hefði getað haf­ist á Hlíð­ar­enda­svæð­inu neit­aði Sam­göngu­stofa verk­tökum að koma fyrir bygg­ing­ar­krönum á svæð­inu og því var ekki hægt að hefja upp­bygg­ingu. Eina íbúða­bygg­ingin sem var risin var blokk sem Valsmenn byggðu sjálfir og eiga enn að stórum hluta.

Ljóst var að átök voru milli ríkis og borgar um málið og sam­tökin Hjartað í Vatns­mýr­inni, sem börð­ust gegn því að Reykja­vík­ur­flug­völlur verði fluttur börð­ust með mik­illi hörku gegn því að fram­kvæmdir Vals­manna yrðu að veru­leika. Umræðan fór fram á miklum til­finn­inga­nótum og því meðal ann­ars haldið fram að lífum yrði ógnað ef hin svo­kall­aða neyð­ar­braut myndi verða aflögð. Samtökin vildu að Alþingi myndi taka skipu­lags­valdið af borg­ar­yf­ir­völdum, sem þau sögðu að færu gegn vilja meiri­hluta þjóð­ar­innar sem vildi hafa flug­völl áfram í Vatns­mýr­inni, og koma í veg fyrir óaft­ur­kræfar fram­kvæmdir Vals­manna. Þau söfn­uðu meðal ann­ars tæp­lega 70 þús­und und­ir­skriftum þeirra sem kröfð­ust þess að flug­völl­ur­inn yrði áfram í Vatns­mýr­inni.

Flugbrautin notuð sem víglína

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri sagði í fréttum Stöðvar 2 í nóv­em­ber 2015 að ríkið væri ekki að standa við sinn hluta ­samn­ings varð­andi Rekyja­vík­ur­flug­völl og skipu­lag í Vatns­mýr­inni. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafði nokkru áður sagt í ræðu á flokks­þingi Fram­sóknar að öllum ætti að vera það „ljóst að grípa þarf til varna fyrir Reykja­vík­ur­flug­völl og koma í veg fyrir að borg­ar­yf­ir­völd grafi stöðugt undan flug­vell­inum og beiti brögðum til að losna við hann.“

Brynjar Harð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri Vals­manna, hélt erindi á opnum fundi um upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis síðla árs 2015. Þar var hann harð­orður um stöð­una sem var uppi. „Þessi flug­braut er notuð sem víg­lína í deilu um til­vist Reykja­vík­ur­flug­vall­ar. Rang­túlk­anir um ­mik­il­vægi henn­ar, hvort sem er fyrir völl­inn í heild sinni, sjúkra­flug eða rang­nefni eins og að kalla braut­ina neyð­ar­braut hefur verið end­ur­tekið efni í fjöl­miðlum lands­manna.

Þessar deilur stefna nú upp­hafi bygg­inga­fram­kvæmda á Hlíð­ar­end­areit í óvissu með til­heyr­andi skaða fyrir fjölda aðila. Stað­reynd­in er sú að Hlíð­ar­end­areitur getur og mun byggj­ast upp í sátt við Reykja­vík­ur­flug­völl. Það er ennþá tími til að snúa mál­inu á rétta braut og ­forða mála­ferlum með til­heyr­andi fjá­hags­skaða fyrir lóð­ar­eig­end­ur, verk­taka, ­fjölda hönn­uða og Reykja­vík­ur­borg. En ekki síst fyrir ungt fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem fær ekki rúm­lega 400 litlar íbúðir inn á íbúða­mark­að­inn verði þessi deila ekki leyst. Og loks fyrir rík­is­sjóð því það er hann sem mun þurfa að bera skaða­bóta­á­byrgð­ina af því að hafa skor­ast undan því að standa við und­ir­rit­aða samn­inga.“

Dómstólar útkljá málið

Það var í höndum inn­an­rík­is­ráð­herra að taka ákvörðun um að loka hinni svoköll­uðu neyð­ar­braut sam­kvæmt bind­andi lof­orði um slíkt sem Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, og Jón Gnarr, þáver­andi borg­ar­stjóri, und­ir­rit­uðu 25. októ­ber 2013.

Hanna Birna tók hins vegar ekki þá ákvörðun á meðan að hún sat í ráð­herra­stólnum og eftir að hún sagði af sér vegna Leka­máls­ins ákvað Reykja­vík­ur­borg, með stuðn­ingi Vals­manna, að stefna rík­inu til að láta það efna sam­komu­lagið.

Hér­aðs­dómur dæmdi í mál­inu í mars 2016 og komst að þeirri nið­ur­stöðu að loka ætti neyð­ar­braut­inni. Hæsti­réttur Íslands stað­festi þann dóm í júní sama ár og flug­braut­inni var lokað nokkrum vikum síðar.

Valsmenn gátu lokst haf­ist handa við að selja bygg­inga­rétti á Hlíð­ar­enda­land­inu og fram­kvæmdir við að byggja allt að 700 íbúðir á reitum í hinu nýja hverfi. Fyrstu íbúð­irnar fóru í sölu fyrir um ári síðan og hverfið er hratt að taka á sig mynd. Það verður ekki aftur snúið með upp­bygg­ingu þess úr þessu.

Fjórði kafli: Borgarastríð í Val

Þegar Valsmenn hf. urðu til var sam­komu­lag milli þeirra stuðn­ings­manna félags­ins sem stóðu að fram­kvæmd­inni og lögðu til hlutafé að þeim pen­ingum sem félagið myndi eign­ast yrði aldrei eytt. Þ.e. að það yrði aldrei gengið á höf­uð­stól­inn þótt hann myndi vaxa, heldur ætti að ávaxta hann og nota ávinn­ing­inn af því til að styrkja starf­semi Vals. Enginn ein­stak­lingur átti að græða á þessu, heldur ein­ungis Knatt­spyrnu­fé­lagið Valur.

Upphaflega áttu Valsmenn að snúast um að styrkja Val. Síðar vildi hluti þeirra hagnast persónulega á fjárfestingum félagsins.
Upp­haf­lega áttu Valsmenn að snú­ast um að styrkja Val. Síðar vildi hluti þeirra hagn­ast per­sónu­lega á fjár­fest­ingum félags­ins.

Síðla árs 2013 var stofnuð sjálfs­eign­ar­stofnun, Hlíð­ar­endi ses, af Knatt­spyrnu­fé­lag­inu Val. Markmið hennar var að halda utan um, byggja upp, varð­veita og við­halda þeim eignum og rétt­indum sem orðið höfðu til í stóra Vals-meng­inu árin á undan í þágu vaxtar og við­gangs Knatt­spyrnu­fé­lags­ins Vals.

Hug­myndin var sem­sagt að koma eign­ar­haldi á öllum mann­virkjum Vals og þeim eignum, bæði óbyggðum reitum og fjár­munum, sem safn­ast höfðu saman í Vals­mönnum inn í sjálfs­eign­ar­stofn­un­ina, og út úr hluta­fé­laga­fyr­ir­komu­lag­inu. Þá gæti eng­inn reynt, nokkru sinni, að ráð­stafa þessu fé með öðrum hætti en til Vals.

Það dróst hins vegar árum saman að færa eign­irnar yfir í Hlíð­ar­enda ses og það var ekki fyrr en á árinu 2017 sem raun­veru­legur skriður komst á málið. Þá var gert þrí­hliða sam­komu­lag milli stofn­un­ar­inar, Vals­manna hf. og Knatt­spyrnu­fé­lags­ins Vals.

Í maí 2018 var samið um end­an­legt upp­gjör skuld­ar­innar við Valsmenn hf. með yfir­töku Hlíð­ar­enda ses á hluta af eignum Vals­manna hf.

Sumir Valsmenn vildu fá arðinn til sín

Í milli­tíð­inni hafði hins vegar mikið gengið á. Til að sýna for­dæmi þá seldi hóp­ur­inn sem hafði sett milljón krónur hver inn í Valsmenn um ald­ar­mótin sína hluti í Vals­mönnum inn í Hlíð­ar­enda ses. Það var gert á geng­inu 5, en það gengi var ákveðið þannig að verð­gildi þeirra fjár­muna sem greiddir höfðu verið inn um ald­ar­mótin myndi halda sér. Þ.e. raun­virði pen­ing­anna sem menn fengu greitt til baka var það sama og þeir settu inn.

Lang­flestir hlut­hafar Vals­manna tóku þess­ari leið vel og seldu Hlíð­ar­enda ses. hluti sína á þessum for­sendum. Sjö hlut­hafar reynd­ust hins vegar vera á móti þess­ari ráð­stöfum og vildu fá mun hærra gengi, eða 15. Til að setja þá upp­hæð í sam­hengi þá hefði allir hóp­ur­inn sem greiddi inn 43 millj­ónir króna til Vals­manna í byrjun sam­tals fengið um 650 millj­ónir króna ef það gengi hefði verið sam­þykkt. Sá sem lagði til eina milljón króna hefði fengið 15 millj­ónir króna útgreiddar. Í for­svari fyrir hópnum voru Stefán B. Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi hand­bolta­maður í Val, og end­ur­skoð­and­inn Guð­mundur Þ. Frí­manns­son.

Þessi hópur hafði enn fremur sam­band við fleiri hluta­hafa og fékk þá til liðs við sig. Saman gerðu þeir hlut­hafa­sam­komu­lag sem gat stillt stjórn og stjórn­endum Vals­manna upp við vegg. Hörð og til­finn­inga­rík átök urðu í kjöl­farið.

Á end­anum ákváðu „kjöl­festu­fjár­fest­arnir“ í Vals­mönnum, sem þegar höfðu selt sinn hlut inn í sjálfs­eign­ar­stofn­un­ina án ágóða að höggva á þennan hnút og kaupa menn­ina sem vildu hærra verð út.

Valshjartað stofnað

Þann 18. sept­em­ber 2017 var haldin stofn­fundur nýs hluta­fé­lags sem fékk nafnið Vals­hjartað hf. Alls lögðu 39 manns í púkkið og söfn­uðu alls 45,5 millj­ónum króna. Þar á meðal voru Grímur Sæmund­sen, Helgi Magn­ús­son, Ólafur Gúst­afs­son, Brynjar Harð­ar­son, Karl Axelsson, Friðrik Soph­us­son, Halldór Ein­ars­son (Henson), Jakob Sig­urðs­son, Þor­grímur Þrá­ins­son og félag sem Dagur Sig­urðs­son á ásamt bræðrum sínum og for­eldrum.

Vals­hjartað tók auk þess lán og keypti á end­anum út óánægju­hóp­inn á um 100 millj­ónir króna.

Hin mikla uppbygging sem verið hefur á Hlíðarenda hefur leitt af sér að Valssamstæðan á milljarða króna í eignum.
Hin mikla upp­bygg­ing sem verið hefur á Hlíð­ar­enda hefur leitt af sér að Vals­sam­stæðan á millj­arða króna í eignum.

Hópur Vals­manna hafði þannig fengið að hagn­ast veru­lega á við­skiptum sem áttu upp­haf­lega ein­ungis að vera til þess fallin að styðja við Val. Og hópur ann­arra Vals­manna hafði tekið á sig þá fjár­hags­legu byrði að stofna félag fyrir eigið fé og skuld­setja það, til að losna við hina óánægju. Mikil beiskja er til staðar vegna þessa.

Fimmti kafli: Velgengni og velmegun

Staðan í dag er því þannig að þrátt fyrir miklar áskor­anir og erf­ið­leika hefur stofnun Vals­manna hf., og þær ákvarð­anir félags­ins að ráð­ast í fast­eigna­við­skipti á Hlíð­ar­enda, skilað því að Knatt­spyrnu­fé­lagið Valur er lang­rík­asta íþrótta­fé­lag á Íslandi.

Upp­hæð­irnar sem runnið hafa inn til Knatt­spyrnu­fé­lags­ins Vals frá styrkt­ar­fé­lögum á und­an­förnum árum hlaupa á hund­ruð millj­ónum króna alls og hafa gert Vals­mönnum kleift að vera annað hvort bestir eða á meðal þeirra bestu í öllum helstu hóp­í­þróttum beggja kynja hér­lendis: knatt­spyrnu, hand­bolta og körfu­bolta.

Hægt hefur verið að semja við eft­ir­sótta leik­menn, borga þeim laun sem aðrir geta ekki keppt við og jafn­vel boðið hluta þeirra að búa í ein­hverjum þeirra íbúða sem Vals­sam­steypan á enn á Vals­svæð­inu. Þetta er bæði gert með fjár­munum sem runnið hafa til Vals vegna fjár­fest­inga á Hlíð­ar­enda­svæð­inu en auk þess hafa sumir mjög fjár­sterkir stuðn­ings­menn tekið að sér að greiða kostnað við valda, og dýra leik­menn, úr eigin vasa.

Þá hefur Valur getað fjár­fest í afreks­stefnu sem er lík­lega sú metn­að­ar­fyllsta á Íslandi, og dregur að leik­menn sem alist hafa upp í öðrum íþrótta­fé­lögum. Hæfir þjálf­arar sækja í að vinna hjá Val vegna þess að aðstaðan hjá félag­inu er ein­stök, æfinga­tím­inn er boð­legri en víða ann­ars­staðar og Valur getur alltaf borgað laun á réttum tíma, sem er sann­ar­lega ekki eitt­hvað sem er raunin hjá mörgum öðrum íþrótta­fé­lögum.

Stefna á að vera stórveldi í öllum hópíþróttum

Árang­ur­inn hefur ekki látið á sér standa og skýrasta birt­ing­ar­mynd þess er karla­lið félags­ins í knatt­spyrnu sem hefur unnið fjóra titla á fjórum árum, þar á meðal Íslands­meist­ara­tit­ill­inn síð­ustu tvö ár. Þótt hökt hafi verið á gengi liðs­ins í fyrstu umferð­unum í ár blasir við að leik­manna­hóp­ur­inn sem var settur saman er þess eðlis að stefnt var að árangri í Evr­ópu­keppni, auk sig­urs í öllum inn­lendum keppnum. Jafn aug­ljóst er á kvenna­liði Vals í knatt­spyrnu, sem er þétt­skipað risa­nöfnum, að það stefnir á að vinna allt sem um er keppt í sumar.

Karlalið Vals í knattspyrnu varð Íslandsmeistari árin 2017 og 2018.
Karlalið Vals í knatt­spyrnu varð Íslands­meist­ari árin 2017 og 2018.

Karla- og kvenna­lið Vals hafa landað stórum titlum, bæði Íslands- og bik­ar­meist­aratitlum, á und­an­förnum árum og í ár varð kvenna­lið Vals Íslands-, Bikar- og Deild­ar­meist­ari í körfu­bolta með Helenu Sverr­is­dóttur, bestu körfu­bolta­konu lands­ins, í far­ar­broddi. Karlalið Vals í körfu­bolta hélt sæti sínu í efstu deild og við­mæl­endur Kjarnans sem þekkja vel til í körfu­bolta­heim­inum búast við að liðið styrki sig veru­lega fyrir næsta tíma­bil til að keppa ofar í deild­inni.

Milljarðaeignir

Sjálfs­eigna­stofn­unin Hlíð­ar­endi, sem hefur tekið við hlut­verki Vals­manna hf., á að geta stutt gríð­ar­lega vel við bakið á félag­inu í fram­tíð­inni ef haldið er vel á spil­unum. Stofn­unin átti, sam­kvæmt árs­reikn­ingi, 68,5 pró­sent hlut í Vals­mönnum og áður­nefnt Vals­hjarta 10,7 pró­sent hlut í því félagi í árs­lok 2017. Eign­ar­hlutur Hlíð­ar­enda ses hefur auk­ist síðan þá enda hafa fleiri útistand­andi hlut­hafar Vals­manna selt sinn hlut. Það sem eftir stendur er að mestu minni hlutir, og virði hvers telst í tugum þús­unda. Mikil handa­vinna fylgir því að gera þá alla upp og ekki hefur verið lagt í hana. Eignir Hlíð­ar­enda ses voru bók­færðar á 1,6 millj­arð króna í árs­lok 2017 og eigið fé stofn­un­ar­innar var 1,3 millj­arður króna. Eignir Vals­manna hf. voru á sama tíma bók­færðar á 2,5 millj­arða króna og eigið fé félags­ins var þá sam­tals 722 millj­ónir króna. Þá eiga Valsmenn helm­ings­hlut í hlut­deild­ar­fé­lag­inu Hlíð­ar­fæti, en hinn helm­ing­ur­inn var seldur til fjár­festa sem standa að félag­inu F-reitur ehf. á árinu 2017. Eignir Hlíð­ar­fóts voru metnar á 722 millj­ónir króna í árs­lok 2017 en félagið að fullu skuld­sett á móti.

Valsmenn hafa selt bygg­inga­rétti, byggt á Hlíð­ar­enda­svæð­inu, annað hvort sjálfir eða í sam­vinnu við aðra, hafa gert samn­inga við Reykja­vík­ur­borg sem tryggt hafa ótrú­lega upp­bygg­ingu mann­virkja á svæði Vals og sitja enn á bygg­inga­rétti sem á eftir að selja.

Heim­ild­ar­menn Kjarnans segja að virði þeirra heild­ar­eigna sem sitji eftir vegna alls þessa ævin­týris sé nú áætlað um fimm millj­arðar króna. Á móti þeim eru þó ein­hverjar skuldir. Það er ágætis ávöxtun á þeim 43 millj­ónum króna sem greiddar voru inn í byrjun.

Um leið hafa Valsmenn líka skilað ýmsu til baka til sam­fé­lags­ins. Félagið greiddi Reykja­vík­ur­borg háar fjár­hæðir fyrir bygg­ing­ar­rétt­inn á sínum tíma og hefur auk þess greitt um 400 millj­ónir króna í skatta á síð­ustu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannlíf

Mest lesið undanfarið ár