Vextir hækka enn á ný og eru orðnir sex prósent

Seðla­banki Íslands tilkynnti um vaxta­hækkun í dag um 0,25 prósentu­stig. Vextir bankans, svokallaðir stýri­vextir, eru því orðnir sex prósent.

Ákveðið í nefnd
Ákveðið í nefnd Stýri­vexir Seðla­banka Íslands eru ákvarð­aðir af pen­inga­stefnu­nefnd. Í henni sitja Ásgeir Jónsson, seðla­banka­stjóri sem for­maður, Rannveig Sig­urð­ar­dóttir, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri og jafn­framt stað­geng­ill for­manns, Gunnar Jak­obs­son, vara­seðla­banka­stjóri á sviði fjár­mála­stöð­ug­leika, Herdís Stein­gríms­dóttir, dós­ent í hag­fræði við Copenhagen Business School, og Gylfi Zoëga, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands. Mynd: Seðlabanki Íslands

Seðla­banki Íslands hefur hækkað vexti sína um 0,25 prósentu­stig og eru stýri­vextir því orðnir sex prósent. Ástæðan sem peninga­stefnu­nefnd bankans gefur fyrir þessari nýjustu hækkun í tilkynningu sinni er fyrst og fremst verðbólga. 

Verðbólga hækkaði á milli mánaða nú síðast og mældist 9,4 prósent á tólf mánaða tímabili. Bankin segir að undir­liggjandi verðbólga haldi áfram á sömu slóðum út árið og það verði ekki fyrr en á næsta ári sem hún taki að lækka. Bankinn spáir 4,5 prósent verðbólgu á síðustu þremur mánuðum næsta árs. 

„Vísbendingar eru jafnframt um að kjölfesta verðbólgu­væntinga í verðbólgu­markmiði bankans hafi veikst og því gæti tekið lengri tíma en ella að ná verðbólgu í markmið,“ segir svo í tilkynningu bankans. 

Sjö vikur eru síðan vextir voru síðast hækkaðir, þá líka um 0,25 prósentu­stig. Á þessu ári hafa vextir bankans hækkað úr tveimur prósentum í nú sex prósent. Alltaf hefur hækkanirnar verið gerðar …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár